26.09.26 - 14:47
Brynjar Ingi Erluson
U17: Bjarki með tvennu í sigri á Bosníu og Hersegóvínu

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Ísland 3 - 1 Bosnía
0-1 Haris Musanovic ('17)
1-1 Bjarki Hrafn Garðarsson ('28 )
2-1 Bjarki Hrafn Garðarsson ('72 )
3-1 Óðinn Sturla Þórðarson ('87 )
0-1 Haris Musanovic ('17)
1-1 Bjarki Hrafn Garðarsson ('28 )
2-1 Bjarki Hrafn Garðarsson ('72 )
3-1 Óðinn Sturla Þórðarson ('87 )
Íslenska drengjalandsliðið, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, vann góðan 3-1 sigur á Bosníu og Hersegóvínu í fyrri umferð undankeppni Evrópumótsins í dag.
Leikið er í Bosníu og voru það heimamenn sem tóku forystuna á 17. mínútu.
Bjarki Hrafn Garðarsson, sem hefur verið sjóðandi heitur með U19 ára liði Borussia Dortmund síðasta mánuðinn, jafnaði metin á 28. mínútu og kom Íslandi síðan yfir tuttugu mínútum fyrir leikslok.
Óðinn Sturla Þórðarson gulltryggði sigurinn með marki nokkrum mínútum fyrir leikslok og annar sigur Íslands í riðlinum þar með staðreynd.
Ísland er á toppi riðilsins með fullt hús stiga og mætir Grikklandi í lokaleiknum á þriðjudag.