Fotbolti.net
25.10.26 - 21:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

Ítalía: Skoraði sitt fyrsta mark og innsiglaði sigur Milan

Ítalía: Skoraði sitt fyrsta mark og innsiglaði sigur Milan
Canon

Mynd: EPA

Christian Pulisic kom Milan yfir snemma leiks gegn Udinese þegar varnarmennirnir sofnuðu á verðinum.

Luka Modric tók aukaspyrnu snöggt og sendi Pulisic í gegn sem skoraði örugglega. Omari Hutchinson innsiglaði sigur Milan þegar hann skoraði eftir að hafa fylgt á eftir skoti Ardon Jashari sem var varið út í teiginn.

Þetta var fyrsta mark Hutchinson en hann er á láni frá Nottingham Forest. Juventus vann þá Lecce. Weston McKenniie kom Juventus yfir og Douglas Luiz tryggði liðinu sigurinn.
Lecce 0 - 2 Juventus
0-1 Weston McKennie ('29 )
0-2 Douglas Luiz ('41 )
Rautt spjald: Gaspar, Lecce ('90)

Udinese 0 - 2 Milan
0-1 Christian Pulisic ('6 )
0-2 Omari Hutchinson ('65 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.