Fotbolti.net
27.07.26 - 17:43
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea leiðir baráttuna um Henderson

Chelsea leiðir baráttuna um Henderson
Canon

Mynd: EPA

Chelsea er að vinna í því að fá enska landsliðsmanninn Jordan Henderson frá Brentford. Það er David Ornstein sem segir frá þessu í dag.
Lundúnafélagið leiðir kapphlaupið um Henderson en fleiri félög í ensku úrvalsdeildinni hafa einnig áhuga.

Brentford er reiðubúið að leyfa hinum 36 ára gamla Henderson að fara án greiðslu, aðeins ári eftir að hann kom til félagsins frá Ajax.

Chelsea hefur sótt fjölmarga unga og efnilega leikmenn undanfarin ár en vill nú bæta reynslumeiri mönnum í hópinn sem geta leiðbeint yngri leikmönnunum.

Félagið hefur meðal annars skoðað Danny Welbeck hjá Brighton og John Stones, sem yfirgaf Manchester City þegar samningur hans rann út um síðustu mánaðamót. Chelsea reyndi einnig að fá Granit Xhaka frá Sunderland en fékk afsvar.

Henderson var 22 sinnum í byrjunarliði Brentford í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og kom tíu sinnum inn af bekknum.

Hann er uppalinn hjá Sunderland en fór ungur til Liverpool þar sem hann varð síðar lykilmaður og fyrirliði félagsins.

Henderson var í enska landsliðshópnum á heimsmeistaramótinu í sumar og varð þar með fyrsti Englendingurinn til að taka þátt á sjö stórmótum. Mótið fékk þó heldur leiðinlegan endi hjá honum þegar hann handleggsbrotnaði eftir að hafa stokkið yfir auglýsingaskilti og þurfti í kjölfarið að gangast undir aðgerð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.