Fotbolti.net
27.07.26 - 12:22
Elvar Geir Magnússon

Hættu við Pirlo og sendiherra blandar sér í málið

Pirlo mun ekki taka við landsliði Ítalíu.

Pirlo mun ekki taka við landsliði Ítalíu.

Canon

Mynd: EPA

Aleksey Paramonov, sendiherra Rússlands á Ítalíu, hefur lýst yfir samúð sinni með Andrea Pirlo eftir að staðfest hefur verið að ítalska fótboltasambandið hætti við að ráða hann sem nýjan landsliðsþjálfara.

Samningur Pirlo við rússneska veðmálafyrirtækið Fonbet gerði það að verkum að sambandið hætti skyndilega við ráðninguna.
Pirlo sendir frá sér yfirlýsingu: Sorglegt hvernig umræðan hefur þróast
TENGT EFNI

Pirlo sendir frá sér yfirlýsingu: Sorglegt hvernig umræðan hefur þróast

Það átti að ráða Pirlo eftir að Pep Guardiola og Carlo Ancelotti höfðu báðir gefið afsvar.

Paramonov sendi frá sér opið bréf þar sem hann ver Pirlo og samstarf hans við Fonbet.

„Það væri án efa mikill heiður fyrir hvaða land eða samtök sem er að hafa þig semsinn fulltrúa. Það er miður að þrátt fyrir framlag þitt til íþrótta og ímyndar Ítalíu erlendis, standir þú frammi fyrir því að verða „útskúfaður“ hér á Ítalíu. Þetta veitir kannski ekki mikla hagnýta aðstoð, en við stöndum heilshugar með þér," segir Paramonov.

Hættu við Pirlo og sendiherra blandar sér í málið
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.