27.07.26 - 14:02
Elvar Geir Magnússon
City vongott um að Rodri skrifi undir - Real Madrid undirbýr tilboð

Rodri (til hægri) í gleðinni.

Mynd: EPA

Rodri (til hægri) í gleðinni.

Mynd: EPA
Manchester City er vongott um að Rodri muni skrifa undir nýjan samning við félagið en býr sig undir að fá tilboð frá Real Madrid og mögulega fleiri félögum.
Rodri er þrítugur miðjumaður sem var valinn besti leikmaður HM þar sem hann vann heimsmeistaratitilinn með Spáni.
Rodri er þrítugur miðjumaður sem var valinn besti leikmaður HM þar sem hann vann heimsmeistaratitilinn með Spáni.

TENGT EFNI
PSG í baráttuna um Rodri
Real Madrid er sagt vera að undirbúa tilboð og þá er talið mögulegt að Barcelona og Paris Saint-Germain sendi líka inn tilboð.
Staða Rodri líkamlega hefur skapað áhyggjur en hann hefur verið í meiðslabrasi síðustu tvö tímabil og er að gangast undir aðgerð vegna bakmeiðsla. Hann minnti þó heldur betur á það hvað hann getur á nýafstöðnu heimsmeistaramóti.