Fotbolti.net
27.09.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Yngsti markaskorari Mexíkó orðaður við spænsku risana

Yngsti markaskorari Mexíkó orðaður við spænsku risana
Canon

Mynd: EPA

Gilberto Mora varð í nótt yngsti markaskorari í sögu Mexíkó þegar hann skoraði í 1-1 jafntefli gegn Kólumbíu í æfingaleik.

Hann er 17 ára, 11 mánaða og 12 daga gamall og bætti met Manuel Rosas frá HM 1930 en hann var 18 ára og þriggja mánaða þegar hann skoraði gegn Argentínu.
Vináttulandsleikir: Bandarískir táningar skinu skært - Mora braut blað fyrir Mexíkó
TENGT EFNI

Vináttulandsleikir: Bandarískir táningar skinu skært - Mora braut blað fyrir Mexíkó

Spænski miðillinn AS greinir frá því að Barcelona og Real Madrid hafi mikinn áhuga á honum.

Mora er sóknarsinnaður miðjumaður. Hann spilar með Tijuana í heimalandinu. Hann spilaði sinn fyrsta leik árið 2024 en leikirnir eru orðnir 62 talsins og hann hefur skorað 15 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.