Fotbolti.net
27.09.26 - 09:33
Elvar Geir Magnússon

Vináttulandsleikir: Bandarískir táningar skinu skært - Mora braut blað fyrir Mexíkó

Cavan Sullivan var í byrjunarliði Bandaríkjanna.

Cavan Sullivan var í byrjunarliði Bandaríkjanna.

Canon

Mynd: EPA

Ungstirnið Cavan Sullivan, 16 ára leikmaður Philadelphia Union, var í byrjunarliði Bandaríkjanna í 4-1 sigri í vináttulandsleik gegn Perú. Hann er yngsti leikmaður sem hefur spilað fyrir Bandaríkin í tvo áratugi.

Mauricio Pochettino landsliðsþjálfari Bandaríkjanna notar þennan langsliðsglugga til að skoða og gefa mörgum ungum leikmönnum tækifæri. Hinn bandarísk-íslenski Cole Campbell, leikmaður Elversberg í Þýskalandi, er í 28 manna hópnum en var ekki í leikdagshópnum gegn Perú.

Justin Ellis, 19 ára framherji Orlando City, lék sinn fyrsta landsleik og það tók hann aðeins fjórar mínútur að opna markareikninginn fyrir þjóð sína. Gianluca Lapadula jafnaði fyrir Perú í 1-1.
Bandaríkin komust yfir á 66. mínútu þegar Malik Tillman skoraði af vítapunktinum en það var Zavier Gozo, 19 ára leikmaður Crystal Palace, sem krækti í vítaspyrnuna.

Hinn 18 ára Julian Hall, leikmaður New York Red Bulls, kom Bandaríkjunum í 3-1 í sínum fyrsta landsleik og Sebastian Berhalter, leikmaður Middlesbrough, kom sér á blað í lokin og innsiglaði 4-1 sigur Bandaríkjanna.

Þetta var fyrsti vináttulandsleikur Bandaríkjanna af fjórum í glugganum en liðið mætir á eftir að mæta Síle, Mexíkó og Kanada.

Yngstur til að skora fyrir Mexíkó
Luis Suarez kom Kólumbíu yfir í 1-1 jafntefli gegn Mexíkó í vináttulandsleik en það var hinn 17 ára gamli Gilberto Mora sem jafnaði í 1-1 og varð yngsti markaskorari Mexíkó frá upphafi. Hann gerði frábærlega í markinu eins og sjá má hér að neðan.

Mora er 17 ára, 11 mánaða og 12 daga gamall og bætti met Manuel Rosas frá HM 1930 en hann var 18 ára og þriggja mánaða þegar hann skoraði gegn Argentínu.

Mora spilar fyrir Tijuana í heimalandinu og er sannkölluð vonarstjarna í mexíkóskum fótbolta. Hann átti frábærn leik gegn Kólumbíu og sýndi sköpunarmátt sinn.

Jonathan David með sigurmark
Jonathan David skoraði sigurmark Kanada sem vann Síle 1-0. Síle lék manni færri frá 36. mínútu þegar Lucas Cepeda fékk að líta rauða spjaldið.

David gekk í raðir Atletico Madrid í sumar á lánssamningi frá Juventus en spænska félagið er með ákvæði um að geta keypt hann. Sóknarmaðurinn er fullur sjálfstrausts og hefur byrjað tímabilið frábærlega með Atletico, hann er með þrjú mörk í fjórum leikjum fyrir liðið.

Vináttulandsleikir:
Bandaríkin - Perú 4-1
Mexíkó - Kólumbía 1-1
Kanada - Síle 1-0

Það helsta úr Bandaríkin Perú:


Mark Gilberto Mora:


Mark Jonathan David:
Sebastian Berhalter og Mauricio Pochettino.

Sebastian Berhalter og Mauricio Pochettino.

Canon

Mynd: EPA

Gilberto Mora varð yngsti leikmaður sögunnar til að skora fyrir Mexíkó.

Gilberto Mora varð yngsti leikmaður sögunnar til að skora fyrir Mexíkó.

Canon

Mynd: EPA

Jonathan David og markvörðurinn Maxime Crepeau fagna.

Jonathan David og markvörðurinn Maxime Crepeau fagna.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.