Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 28. apríl 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Hafa mánuð til að virkja ákvæðið
Mynd: EPA
Spænska félagið Real Madrid hefur einn mánuð til þess að virkja níu milljóna evra kaupákvæði í samningi argentínska sóknartengiliðsins Nico Paz hjá Como.

Real Madrid seldi Paz til Como árið 2024 þar sem hann hefur blómstrað undir stjórn Cesc Fabregas.

Hann er orðinn fastamaður í argentínska landsliðinu og er með langbestu leikmönnum ítölsku deildarinnar.

Fabrizio Romano og fleiri blaðamenn hafa fullyrt að hann sé á leið aftur til Real Madrid í sumar, en félagið þarf að hafa hraðar hendur til þess að tryggja sér þjónustu hans á tombóluverði.

Real Madrid er með níu milljóna punda endurkaupsákvæði sem gildir til 30. maí. Það er fastlega gert ráð fyrir því að hann fari til Real Madrid í sumar, en ekki er búið að ganga frá samningum og naumur tími til stefnu.

Á þessari leiktíð hefur Paz komið að nítján mörkum í ítölsku deildinni, en Como er í baráttu um að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð og er aðeins þremur stigum frá Meistaradeildarsæti þegar fjórar umferðir eru eftir af deildinni.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner