Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 13:45
Elvar Geir Magnússon
Allir æfðu í Japan - Uppselt á leikinn í Tókýó
Eimskip
Brynjólfur Andersen Willumsson.
Brynjólfur Andersen Willumsson.
Mynd: KSÍ
Íslenska landsliðið er í Tókýó í Japan þar sem leikinn verður vináttulandsleikur gegn Japönum á sunnudag. Leikurinn verður klukkan 10:25 að íslenskum tíma.

Fyrsta æfing liðsins fór fram í dag og er æft við góðar aðstæður á Nishigaoka Football Field. Allir leikmenn liðsins tóku þátt í æfingunni.

Uppselt er á völlinn sem tekur um 67.700 manns í sæti. Búist er við um 150 Íslendingum í stúkuna.

„Það bíður okkur ærið verkefni gegn frábæru liði Japans og svo kemur leikur gegn Argentínu sem er lið sem allir þekkja," segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari í samtali við miðla KSÍ.

Leikurinn gegn Japan er spilaður utan landsleikjaglugga og því var ekki hægt að velja leikmenn úr öllum deildum Evrópu. Ísland spilar svo gegn Argentínu í Alabama 10. júní í Bandaríkjunum og var valinn annar hópur fyrir það verkefni.




Hópurinn gegn Japan
Markverðir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur
Ögmundur Kristinsson - Valur - 19 leikir
Adam Ingi Benediktsson - AB

Útileikmenn
Alfons Sampsted - Go Ahead Eagles - 23 leikir
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir
Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark
Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark
Valgeir Lunddal Friðriksson - Fortuna Düsseldorf - 16 leikir
Willum Þór Willumsson - NEC Nijmegen - 18 leikir
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 12 leikir
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 36 leikir, 1 mark
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa - 108 leikir, 5 mörk
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 9 leikir, 1 mark
Ísak Snær Þorvaldsson - Lyngby - 6 leikir, 1 mark
Stefán Ingi Sigurðarson - Go Ahead Eagles
Benoný Breki Andrésson - Stockport County F.C.
Slapp