Fotbolti.net
28.06.26 - 16:07
Haraldur Örn Haraldsson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Stjörnunnar og KA: Tvær breytingar hjá báðum liðum - Gummi Kri í banni

Byrjunarlið Stjörnunnar og KA: Tvær breytingar hjá báðum liðum - Gummi Kri í banni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikur Stjörnunnar gegn KA hefst klukkan 17:00 en þetta er leikur milli liða sem hafa ekki náð þeirri velgegni sem var vonast eftir og því mjög mikilvæg þrjú stig í boði. Byrjunarliðin hafa verið birt en þau má sjá hér fyrir neðan.

Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 1 KA

Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar gerir tvær breytingar frá síðasta leik þegar Stjarnan tapaði 2-1 fyrir ÍBV. Gustav Kjeldsen og Jóhann Árni Gunnarsson koma inn í liðið. Daníel Finns Matthíasson færist á bekkinn en Guðmundur Kristjánsson er ekki í hóp, en hann er í leikbanni vegna uppsafnaðra spjalda.

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA gerir einnig tvær breytingar á sínu liði sem tapaði 3-1 fyrir Breiðablik í síðustu umferð. Kári Gautason og Jakob Snær Árnason koma inn í liðið. Guðjón Ernir Hrafnkelsson sest á bekkinn en Samuel Karl Kroon er ekki í hóp. 

Byrjunarlið Stjarnan

  • 12. Árni Snær Ólafsson (m)
  • 3. Gustav Kjeldsen
  • 6. Sindri Þór Ingimarsson
  • 7. Örvar Eggertsson
  • 8. Jóhann Árni Gunnarsson
  • 11. Birnir Snær Ingason
  • 18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
  • 22. Emil Atlason (f)
  • 23. Benedikt V. Warén
  • 27. Damil Serena Dankerlui
  • 32. Örvar Logi Örvarsson

Byrjunarlið KA

  • 13. Steinþór Már Auðunsson (m)
  • 2. Birgir Baldvinsson
  • 3. Kári Gautason
  • 8. Jeppe Pedersen
  • 9. Sveinn Margeir Hauksson
  • 10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
  • 14. Danijel Dejan Djuric
  • 15. Oliver Heiðarsson
  • 23. Markús Máni Pétursson
  • 28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
  • 29. Jakob Snær Árnason
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.