Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta karla
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
3 - 1
KA
KA
Emil Atlason 18'1 - 0Benedikt V. Warén 21'2 - 02 - 151' Hallgrímur Mar SteingrímssonÞorri Mar Þórisson 95'3 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Jóns var fimmta tap KA í röð

Hvað réði úrslitum?

Stjörnumenn stýrðu leiknum mest allan leikinn og nýttu sín færi í fyrri hálfleik vel. KA menn í fyrri hálfleik voru hins vegar verulega slakir. Það sem stakk einna helst var hvað þeim gekk bölvanlega að hitta á samherja. Norðanmenn komu skarpari inn í seinni hálfleikinn, minnkuðu muninn og voru aðeins að banka fyrir jöfnunarmarkið. Það kom ekki og Stjörnumenn kláruðu þetta á loka sekúndunum með því að bæta einu marki við.

Bestu leikmenn

1. Birnir Snær Ingason (Stjarnan)

Birnir var að skapa usla á kantinum allan leikinn. Maður sá þarna leikmanninn sem maður var búinn að sakna að horfa á.

2. Steinþór Már Auðunsson (KA)

Þrátt fyrir að hafa fengið á sig þrjú mörk þá var Stubburinn frábær í dag. KA menn hefðu tapað töluvert stærra ef hann hefði ekki verið í þessu stuði.

Atvikið

Þriðja mark Stjörnumanna sem kom alveg á loka sekúndunum var stór stund fyrir Þorra Mar sem hefur verið lengi frá vegna meiðsla. Hann skoraði þarna fyrsta markið sitt fyrir Stjörnuna og það gegn sínum gömlu félögum í KA. Hann fagnaði vel og innilega eftir það, en sagði eftir leik að hann hefði kannski ekki átt að gera það, en hann missti sig bara í gleðinni.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan fer upp í 14 stig en er ennþá í 8. sæti deildarinnar. Þeir nálgast þó eftir hlutann og fjarlægjast fallsætin. KA menn tapa sínum fimmta leik í röð og eru enn bara með 10 stig, en færast ekkert neðar í töflunni eins og er. Þeir eru í 10. sæti.

Vondur dagur

Allt KA liðið var skelfilegt í fyrri hálfleik. Þá leit liðið ekki út eins og lið í efstu deild. Kári Gautason átti mjög erfitt með að verjast gegn Birni Snæ einn á einn, en þá hefði KA liðið líka getað veitt honum betri hjálparvörn sem var lítið til staðar. Þá var Oliver Heiðarsson aldrei líklegur til að skapa hættu. Oft sem að boltinn barst til hans í fínni stöðu og sóknin dó við það.

Dómarinn - 8

Engin risa atvik, heilt yfir góð frammistaða hjá Jóhanni Inga þó að mér fannst hann aðeins auðveldlega leita í vasann eftir spjaldinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.