Byrjunarlið Stjörnunnar og KA: Tvær breytingar hjá báðum liðum - Gummi Kri í banni


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur Stjörnunnar gegn KA hefst klukkan 17:00 en þetta er leikur milli liða sem hafa ekki náð þeirri velgegni sem var vonast eftir og því mjög mikilvæg þrjú stig í boði. Byrjunarliðin hafa verið birt en þau má sjá hér fyrir neðan.
Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar gerir tvær breytingar frá síðasta leik þegar Stjarnan tapaði 2-1 fyrir ÍBV. Gustav Kjeldsen og Jóhann Árni Gunnarsson koma inn í liðið. Daníel Finns Matthíasson færist á bekkinn en Guðmundur Kristjánsson er ekki í hóp, en hann er í leikbanni vegna uppsafnaðra spjalda.
Hallgrímur Jónasson þjálfari KA gerir einnig tvær breytingar á sínu liði sem tapaði 3-1 fyrir Breiðablik í síðustu umferð. Kári Gautason og Jakob Snær Árnason koma inn í liðið. Guðjón Ernir Hrafnkelsson sest á bekkinn en Samuel Karl Kroon er ekki í hóp.
Byrjunarlið Stjarnan
- 12. Árni Snær Ólafsson (m)
- 3. Gustav Kjeldsen
- 6. Sindri Þór Ingimarsson
- 7. Örvar Eggertsson
- 8. Jóhann Árni Gunnarsson
- 11. Birnir Snær Ingason
- 18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
- 22. Emil Atlason (f)
- 23. Benedikt V. Warén
- 27. Damil Serena Dankerlui
- 32. Örvar Logi Örvarsson
Byrjunarlið KA
- 13. Steinþór Már Auðunsson (m)
- 2. Birgir Baldvinsson
- 3. Kári Gautason
- 8. Jeppe Pedersen
- 9. Sveinn Margeir Hauksson
- 10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
- 14. Danijel Dejan Djuric
- 15. Oliver Heiðarsson
- 23. Markús Máni Pétursson
- 28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
- 29. Jakob Snær Árnason
