Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Davíð Viðars: Við vitum að þetta getur orðið sársaukafullt á leiðinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH er með eitt stig eftir fjóra leiki í Bestu deildinni. Liðið gerði jafntefli við ÍBV í fyrstu umferðinni en hefur í kjölfarið tapaði gegn Stjörnunni, Val og síðast KR á mánudag. Þjálfari liðsins, Jóhannes Karl Guðjónsson, var ánægðari með leikinn gegn KR en leikinn gegn Val þar á undan.

„Ég sé framfarir á milli leikjanna. Heilt yfir höfum við ekki verið nógu góðir ennþá í ár, enda erum við bara með eitt stig, en mér fannst við taka skref fram á við í þessum KR-leik hvað varðar ákefð, þor og annað slíkt. Það voru jákvæðir hlutir sem við getum tekið með okkur," segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, við Fótbolta.net.

Lestu um leikinn: KR 4 -  2 FH

„Þetta heldur áfram, þetta er ferli, sú leið sem við ákváðum að fara hér í FH og við höfum mjög mikla trú á því að til lengri tíma er þetta sú leið sem er best fyrir okkur. Við vitum að þetta getur orðið sársaukafullt á leiðinni og við erum menn í það að takast á við það."

Óskar vitnaði í fræga ræðu
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, tjáði sig um FH við Fótbolta.net eftir leikinn á mánudag.

„Ég hef engan áhuga á því að FH-ingar veikist eitthvað sérstaklega í næstu umferðum. Ég vil að þeir geti komið með sitt sterkasta lið, haldi áfram á sömu braut og þeir hafa verið á og láti ekki gagnrýnina hafa áhrif á sig, muni bara eftir Theodore Roosevelt 1910: það eru ekki gagnrýnendur sem skipta máli, það eru þeir sem standa mönnum næst og eru í verkefninu sem skipta máli," sagði Óskar. Hann vitnar þar í frægu Man In The Arena ræðu 26. forseta Bandaríkjanna. Hann sagði líka eftirfarandi við Vísi eftir leikinn.

„Nú ríður á fyrir þá, ég hef verið í þeirra sporum, að byggja upp sem gengur ekki alltaf upp og er ekki alltaf beinn og breiður vegur. Ég vona bara að þeir haldi áfram með það sem var ákveðið í upphafi og treysta ferlinu."

Munu ná í fleiri stig og sýna betri frammistöðu
Davíð var spurður hvort hann hefði séð ummæli Óskars og hann játti því.

„Við erum á þeim stað að þetta er sú leið sem við ætlum að fara, við erum ekkert að fara bakka út úr henni eða eitthvað panikk hjá okkur þó að við séum með eitt stig eftir fjóra leiki. Það gerðist nú bara síðast í fyrra þar sem við vorum með eitt stig held ég eftir fimm leiki. Við erum með það breitt bak að við getum tekist á við þetta. Við erum vissir um að með tíð og tíma þá munum við ná í fleiri stig og sýna betri frammistöðu."

Það er gluggadagur í dag, eru líkur á því að FH muni taka inn leikmann fyrir gluggalok?

„Ef það er eitthvað sem við teljum að hentar okkur og geti styrkt okkur, passað inn í það sem við erum að reyna að gera, þá munum við klárlega að skoða að fá þann leikmann inn," segir Davíð.
Innkastið - Gulir en alls ekki glaðir
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 4 4 0 0 18 - 8 +10 12
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 4 3 0 1 10 - 5 +5 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 4 2 0 2 5 - 10 -5 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner
banner