29.08.26 - 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Forest að sækja arftaka fyrir Anderson

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nottingham Forest er að reyna að kaupa táninginn Harrison Armstrong úr röðum Everton.
Armstrong er 19 ára gamall og er Forest tilbúið að borga 40 milljónir punda fyrir miðjumanninn. Hann á að leysa Elliot Anderson af hólmi á miðjunni eftir að hann var seldur til Manchester City.
Armstrong er uppalinn hjá Everton og gerði frábæra hluti á síðustu leiktíð. Hann stóð sig vel á láni hjá Preston í Championship deildinni á fyrri hluta tímabils, svo vel að hann var endurkallaður til Everton og vann sér inn byrjunarliðssæti. Hann hefur leikið allar mínútur Everton á fyrstu tveimur keppnisleikjum nýs tímabils.
Talið er að Everton sé reiðubúið til að samþykkja kauptilboð frá Forest ef félagið bætir aukagreiðslum og endursöluákvæði við milljónirnar 40. Félögin eru komin langt á veg í viðræðum sín á milli.
Forest er búið að krækja í Liam Delap, Ousmane Diomande, Xaver Schlager og Steven Benda í sumar eftir sölur á Anderson og Taiwo Awoniyi.