29.08.26 - 12:45
Ívan Guðjón Baldursson
Hlusta á tilboð í Woltemade

Skoraði 8 mörk í 33 úrvalsdeildarleikjum.

Mynd: EPA

Skoraði 8 mörk í 33 úrvalsdeildarleikjum.

Mynd: EPA
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greina frá því að Nick Woltemade gæti verið á leið til Ítalíu á lánssamningi.
Woltemade var keyptur til Newcastle fyrir metfé og skoraði 8 mörk í 33 úrvalsdeildarleikjum á sinni fyrstu leiktíð í deild þeirra bestu. Hann skoraði í heildina 11 mörk og gaf 5 stoðsendingar í 52 leikjum í öllum keppnum, en er ekki talinn vera ómissandi partur af leikmannahópinum.
Napoli er talinn vera líklegasti áfangastaðurinn fyrir Woltemade en önnur félög eru einnig sögð vera áhugasöm.
Sky segir að Newcastle sé ekki að reyna að losa sig við Woltemade, en félagið er tilbúið að hlusta á hagstæð tilboð í framherjann fjölhæfa sem var oft notaður á miðjunni á síðustu leiktíð.