Fotbolti.net
29.08.26 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Anna Björk spáir í 17. umferð Bestu kvenna

Anna Björk Kristjánsdóttir.

Anna Björk Kristjánsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Núna er komið að næst síðustu umferðinni í Bestu deild kvenna fyrir skiptingu.

Anna Björk Kristjánsdóttir, leikmaður KR, tók að sér það verkefni að spá í leiki umferðarinnar.
Fram 1 - 2 Stjarnan (14:00 í dag)
Hörkuleikur sem endar með naumum sigri Stjörnunar. Andrea Mist skorar sigurmarkið beint úr horni

Víkingur R. 0 - 2 Grindavík/Njarðvík (14:00 í dag)
Þægilegur sigur hjá útiliðinu. Bæði mörkin koma á fyrsta korterinu. Natasha skorar eitt mark í leiknum.

Breiðablik 3 - 1 ÍBV (16:00 í dag)
Þægilegur sigur hjá Breiðablik en öll mörkin þeirra koma í seinni hálfleik. Hrafnhildur Ása skorar tvö og Agla María eitt. Olga Sevcova skorar sárabóta mark fyrir ÍBV í uppbótartíma.

Þróttur R. 0 - 1 Þór/KA (16:00 í dag)
Hörkuleikur milli tveggja liða sem eru neðar en þau vilja vera í töflunni. Arna Sif er alltaf hættuleg í teignum og setur sigurmarkið eftir horn.

Valur 1 - 2 FH (13:00 á morgun)
FH verður of stór biti fyrir Val en leikurinn verður samt jafn og skemmtilegur. Valur kemst yfir í byrjun leiks en FH snúa þessu við og sækja góðan útisigur. Andrea Rán með mark og stoðsendingu.

Fyrri spámenn:
Arnar Páll (5 réttir)
Aldís Kara (4 réttir)
Ásta Eir (4 réttir)
Fanndís Friðriks (3 réttir)
Mist Rúnars (3 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Valgerður Ósk (2 réttir)
Alma Mathiesen (2 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)
Magnús Haukur (2 réttir)
María Gros (1 réttur)
Sædís Rún (1 réttur)
Thelma Karen (1 réttur)
Jóhann Fjalar (1 réttur)
Andrea Mist hefur skorað nokkur mörk úr horni í sumar.

Andrea Mist hefur skorað nokkur mörk úr horni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andrea Rán, leikmaður FH.

Andrea Rán, leikmaður FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Þú varst ekkert að spá þessu

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik16+2636
2FH16+2333
3Stjarnan16+626
4ÍBV16-324
5Grindavík/Njarðvík16-222
6Þróttur R.16-321
7Þór/KA16-318
8Valur16-1216
9Fram16-1716
10Víkingur R.16-1514
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.