31.08.26 - 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Juve náði samkomulagi við Tottenham

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska stórveldið Juventus hefur náð samkomulagi við Tottenham um kaupverð fyrir miðjumanninn Pape Matar Sarr.

TENGT EFNI
Atletico gerir tilboð í David - Juve að fá Sarr
Sarr er 23 ára miðjumaður sem kemur á lánssamningi með árangurstengdri kaupskyldu. Hann á í heildina 141 leik að baki fyrir Tottenham, þar af 37 á síðustu leiktíð, og er auk þess með 42 landsleiki fyrir Senegal.
Juve greiðir 2 milljónir evra til að fá Sarr að láni. Félagið borgar 28 milljónir í viðbót til að kaupa hann næsta sumar ef það nær Meistaradeildarsæti og Sarr tekur þátt í helming leikja liðsins í deildinni.
Sarr er einn af nokkrum leikmönnum sem gætu yfirgefið Spurs fyrir gluggalok. Kevin Danso og Richarlison eru líklega á leið burt ásamt Mikey Moore og Souza.
Þá gæti Juventus selt Jonathan David til Atlético Madrid. Ef það gerist mun félagið reyna að kaupa Joshua Zirkzee úr röðum Manchester United.