Fotbolti.net
31.08.26 - 18:19
Ívan Guðjón Baldursson

Leggja fram tilboð í Enzo - Ræða aftur um Ndiaye

Leggja fram tilboð í Enzo - Ræða aftur um Ndiaye
Canon

Mynd: EPA

Manchester City er búið að leggja fram opinbert tilboð í argentínska miðjumanninn Enzo Fernández sem er samningsbundinn Chelsea.
Alonso um framtíð Enzo: Við erum undirbúnir
TENGT EFNI

Alonso um framtíð Enzo: Við erum undirbúnir

Man City ætlar að reyna að ganga frá félagaskiptunum, sem hafa verið afar umtöluð í fjölmiðlum undanfarnar vikur, fyrir gluggalok. Talið er að Chelsea vilji um 125 milljónir punda fyrir lykilmanninn sinn.

Fernández spilaði 25 mínútur með Chelsea gegn Fulham í fyrstu umferð úrvalsdeildartímabilsins en hefur ekki komið við sögu síðan vegna mikils áhuga frá Man City sem þarf sárlega á nýjum miðjumönnum að halda.

Þá er Man City í viðræðum við Everton um Iliman Ndiaye sem kostar um 60 milljónir punda. Everton vill fá Jack Grealish úr röðum City, en Grealish kostar talsvert minna þar sem hann er 30 ára gamall og aðeins með eitt ár eftir af samningi.

U-beygja hjá City og Ndiaye?
TENGT EFNI

U-beygja hjá City og Ndiaye?

Leggja fram tilboð í Enzo - Ræða aftur um Ndiaye
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.