Fotbolti.net
31.10.26 - 12:36
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo og Zidane skiluðu ekki inn atkvæðum

Ronaldo og Zidane skiluðu ekki inn atkvæðum
Canon

Mynd: EPA

Þrír fyrrum sigurvegarar Ballon d'Or skiluðu ekki inn atkvæðum sínum í kjörinu um besta unga leikmann ársins.
Yamal ungi leikmaður ársins þriðja árið í röð
TENGT EFNI

Yamal ungi leikmaður ársins þriðja árið í röð

Fyrrum sigurvegarar Ballon d'Or kjósa um Kopa-bikarinn, sem er veittur efnilegasta fótboltamanni heims.

Lamine Yamal vann verðlaunin þriðja árið í röð, en baráttan stóð á milli hans og Pau Cubarsi, liðsfélaga hans hjá Barcelona og spænska landsliðinu.

Það var mjótt á mununum, en Yamal hafði að lokum betur. Hann sagði þó þegar hann tók við verðlaununum að Cubarsi hefði einnig átt þau skilið.

Lionel Messi var meðal þeirra sem völdu Yamal besta leikmanninn, en þrír fyrrum sigurvegarar skiluðu ekki inn atkvæðum sínum.

Það voru þeir Cristiano Ronaldo, Zinedine Zidane og Michel Platini.

Alls settu fimmtán Yamal í efsta sæti, en tólf völdu Cubarsi besta leikmanninn.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.