31.10.26 - 10:46
Brynjar Ingi Erluson
Börsungar vilja stjörnu nýliðanna

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona fylgjast náið með marokkóska framherjanum Yassir Zabiri, sem leikur með nýliðum Racing Santander. Frá þessu greinir Fichajes.
Þessi 21 árs gamli framherji kom til Santander á láni frá Rennes í sumar og hefur farið á kostum á tímabilinu, en hann hefur skorað átta mörk í tíu deildarleikjum.
Fichajes segir að Deco, yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona, sé mjög hrifinn af Zabiri og ekki skemmir fyrir að framherjinn hefur haldið með Barcelona frá barnsaldri. Hann fékk að upplifa draum sinn fyrr á tímabilinu þegar hann lék á Camp Nou og skoraði í 7-2 tapi gegn Börsungum.
Barcelona gæti auk þess fengið hann á nokkuð hagstæðu verði frá Rennes, en Zabiri er metinn á um 20 milljónir evra.
Zabiri varð heimsmeistari með U20 ára landsliði Marokkó á síðasta ári, þar sem hann varð jafnframt markahæstur og var valinn næstbesti leikmaður mótsins.