Gyrðir blómstrar á Akureyri: Virkilega flott framtak hjá klúbbnum
„Leggst ótrúlega vel í mig, seinasti leikurinn á tímabilinu, erum mjög spenntir og allir Þórsarar er spenntir fyrir þessum stóra degi," segir Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, leikmaður Þórs, fyrir lokaumferðina í Bestu deildinni.
Þór mætir FH á Kaplakrikavelli á laugardag klukkan 14:00 og með sigri mun Þór halda sæti sínu í deildinni. Þórsarar eru með örlögin í sínum höndum eftir sigur gegn Stjörnunni um síðustu helgi en sama dag tapaði KA gegn Val. Þór er með stigi meira en grannarnir í KA sem tekur á móti ÍBV á laugardag.