Fotbolti.net
22.10.26 - 15:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Þessi klúbbur á heima í efstu deild"

Auglýsing
Fyrirliði Þórsara.

Fyrirliði Þórsara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er bara spenna, geggjað að fá að spila svona stóran leik. Það hefur verið nóg af stórum leikjum núna upp á síðkastið en þessi er nú aðeins stærri," segir Aron Birkir Stefánsson sem er fyrirliði Þórs.

Á laugardag heimsækir Þór lið FH og með sigri mun Þór halda sæti sínu í deildinni. Á sama tíma tekur KA á móti ÍBV. Þór er með stigi meira en KA fyrir lokaumferðina.
Meiri spenna en stress
Þór er með örlögin í sínum höndum eftir sigur á Stjörnunni síðasta laugardag en sama dag tapaði KA gegn Val.

„Við hugsuðum bara um að vinna okkar og sjá hvað það gefur okkur. Við kláruðum okkar á laugardaginn, þetta spilaðist svona og þannig er það bara," segir Aron Birkir .

Er stress fyrir laugardeginum?

„Það er alltaf aðeins stress , en það er meiri spenningur heldur en stress."

Hefðu tekið þessari stöðu um mitt mót
Um mitt mót, rétt fyrir gluggaopnun, þá litu hlutirnir ekki vel út hjá Þór. Hefðuð þið á þeim tímapunkti tekið þessari stöðu?

„Ég held ég væri að ljúga ef við hefðum ekki gert það. Það var aðeins brekka þarna um mitt sumar og svo gerðum við vel, fengum inn góða menn og fleiri stigu upp. Við lögðum hart að okkur og æfðum vel og náðum að snúa þessu. Núna erum við með þetta í okkar höndum. Ég held að flestir hefðu tekið þessu á þeim tímapunkti (ef það hefði boðist)."

Ekki ósvipað leiknum gegn Þrótti fyrir rúmu ári
Það eru rúmir 13 mánuðir frá mjög góðum degi í Reykjavík. Heldurðu að þetta verði svipað? Þetta er auðvitað barátta á hinum enda töflunnar, en í deild ofar.

„Þetta er ekkert ósvipað að mörgu leyti, endum á útivelli. Það eru einhverjar rútuferðir og Þórsarar sem eru fyrir sunnan, vonandi verður vel mætt af Þórsurum í Kaplakrika á laugardaginn. Þetta eru aðeins öðruvísi forsendur en það eru mikil líkindi í þessu."

„Andinn er góður. Við unnum góður sigur á laugardaginn og mjög góðan sigur laugardaginn á undan. Það er búinn að vera stígandi í þessu núna alveg síðustu fimm-sex vikur. Menn eru klárir í þetta og bara fullur fókus."


Þetta eru fjögur stig úr leikjunum tveimur á móti FH, er eitthvað hægt að horfa í fyrri leiki á móti þeim í sumar?

„Þeir eru bara gott lið. Þetta verður í fjórða skipti núna í sumar sem við spilum við þá, töpuðum á móti þeim í bikarnum, síðan var jafntefli í Krikanum og við unnum þá hérna heima. Við hugsum um okkur og gerum það sem við erum góðir í."

Ferskir vindar með nýjum mönnum
Þú talar um að það hafi góðir menn komið í glugganum. Myndirðu segja að það væri svona lykillinn að breytingu á gengi liðsins?

„Það hjálpaði helling og má alveg segja að það hafi verið lykill. Þeir komu inn með ferska vinda og stimpluðu sig vel inn. Tökum bara Gyrði sem dæmi, kemur inn og er bara 'ég er mættur', lætur menn bara heyra það og talar og skipar mönnum fyrir. Þeir eru fleiri auðvitað, Þorri og Kevin og Victor líka. Það klárlega hjálpaði að fá þá inn og við það stigu fleiri upp. Menn svona fundu einhvern meðbyr og fundu einhverja orku."

Viljum gera eins vel og við getum fyrir klúbbinn okkar
Örlögin eru í ykkar höndum og ég spurði áðan út í stress eða pressu. Það er undir Þór komið að klúðra þessu ekki úr þessu. Er það eitthvað sem þið stressið ykkur á?

„Við bara nálgumst þennan leik eins og alla hina. Við settum upp fimm úrslitaleiki úrslitaleiki, erum búnir að vinna núna síðustu tvo og þetta er bara einn af þeim. Auðvitað er alltaf eitthvað stress og spenna, en pressan kemur bara frá okkur. Við viljum bara vinna og auðvitað viljum við gera eins vel og við getum fyrir klúbbinn okkar. Þessi klúbbur á heima í efstu deild og við munum gera allt sem í okkar valdi til þess að halda okkur þar"

Er þetta eitthvað aukakrydd að þetta sé barátta á móti KA?

„Það má alveg segja það, en í rauninni skiptir það engu máli. Við ætlum bara að klára okkar og þá verðum við í góðum málum," segir fyrirliðinn að lokum.
Eru með örlögin í eigin höndum fyrir lokaleikinn.

Eru með örlögin í eigin höndum fyrir lokaleikinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gyrðir Hrafn hefur komið mjög vel inn í lið Þórs.

Gyrðir Hrafn hefur komið mjög vel inn í lið Þórs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Birkir hefur átt mjög gott tímabil í marki Þórsara.

Aron Birkir hefur átt mjög gott tímabil í marki Þórsara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór vann Lengjudeildina fyrir rúmum 13 mánuðum síðan og þá fjölmenntu Þórsarar í stúkuna.

Þór vann Lengjudeildina fyrir rúmum 13 mánuðum síðan og þá fjölmenntu Þórsarar í stúkuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vonandi verður vel mætt af Þórsurum í Kaplakrika á laugardaginn

Vonandi verður vel mætt af Þórsurum í Kaplakrika á laugardaginn

Canon

Mynd: Toggipop

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.