19.10.26 - 22:34
Andri Stefánsson
Kristófer um framlenginguna: Mér líður ótrúlega vel hérna og er spenntur fyrir næsta ári
Auglýsing

Kristófer verður áfram hjá Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristófer verður áfram hjá Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram og ÍA áttust við í Bestu deild karla í kvöld. Leikar enduðu með 4-2 útisigri Skagamanna. Fótbolti.net ræddi við Kristófer Konráðsson, sem skrifaði undir nýjan samning við Fram, eftir leik.

TENGT EFNI
Kristófer Konráðs áfram hjá Fram (Staðfest)
Hvernig gerir þú upp leikinn?
„Mér fannst kannski fyrstu tíu mínúturnar vera erfiðar, en við vorum með ágætis tök á leiknum þangað til við urðum manni færri. Eins og ég segi, mér fannst ÍA ekki skapa sér mikið og við vorum að ná því sem við vildum ná fram. Við vorum að fá okkar sénsa og okkar færi allan leikinn. Þannig að mér finnst bara að við hefðum átt að fá meira út úr þessum leik.“
Þú skorar tvö mörk. Þú hlýtur að vera ánægður með þína frammistöðu, þrátt fyrir úrslitin?
„Jú, jú, maður er alltaf það, sko. Maður vill náttúrulega fá eitthvað út úr þessum leik, en þegar maður nær að skora tvö mörk þá tekur maður það með sér.“
Kristófer hefur skrifað undir nýjan samning við Fram
Það kom fram í viðtali við Rúnar að þú værir að skrifa undir nýjan samning. Var það auðveld ákvörðun?
„Já, jú. Mér finnst það sem hefur verið í gangi hérna hjá liðinu síðustu ár, uppgangurinn síðan maður kom hingað, bara frábært. Það er frábær hópur af leikmönnum og mann langar alltaf að taka þátt í því sem er í gangi hérna og halda áfram að taka næsta skref fyrir klúbbinn.“
Þannig að þú ert virkilega ánægður í herbúðum Fram?
„Já, eins og ég segi, mér líður ótrúlega vel hérna og er bara spenntur fyrir næsta ári.“
Viðtalið í heild sinni er í spilaranum hér fyrir ofan.

Besta karla - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 26 | +51 | 63 |
| 2 | KR | 26 | +30 | 53 |
| 3 | Fram | 26 | +9 | 46 |
| 4 | ÍA | 26 | -1 | 37 |
| 5 | Breiðablik | 26 | +2 | 36 |
| 6 | Keflavík | 26 | -11 | 29 |