Það styttist í að 2. deild karla fari af stað og erum við á Fótbolta.net byrjaðir að birta spá þjálfara fyrir deildina. Í áttunda sæti í spánni er KFG úr Garðabæ.
Ólafur Bjarni Hákonarson skoraði mark KFG í úrslitaleik Fótbolta.net bikarsins í fyrra en þessi 24 ára gamli leikmaður átti virkilega flott tímabil þar sem hann skoraði átta mörk í 21 leik í 2. deild. Ólafur Bjarni er uppalinn í Stjörnunni en hefur einnig leikið með Víkingi Ólafsvík, Njarðvík og Berserkjum/Mídas á sínum ferli. Alls hefur hann gert 22 mörk í 98 KSÍ-leikjum.
Í dag sýnir Ólafur Bjarni á sér hina hliðina.
Ólafur Bjarni Hákonarson skoraði mark KFG í úrslitaleik Fótbolta.net bikarsins í fyrra en þessi 24 ára gamli leikmaður átti virkilega flott tímabil þar sem hann skoraði átta mörk í 21 leik í 2. deild. Ólafur Bjarni er uppalinn í Stjörnunni en hefur einnig leikið með Víkingi Ólafsvík, Njarðvík og Berserkjum/Mídas á sínum ferli. Alls hefur hann gert 22 mörk í 98 KSÍ-leikjum.
Í dag sýnir Ólafur Bjarni á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Ólafur Bjarni Hákonarson
Gælunafn: óbj
Aldur: nýorðinn 24 ára
Hjúskaparstaða: lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnistætt úr leiknum: held alveg örugglega að ég hafi leikið fyrsta meistaraflokksleikinn á móti FH í Kórnum í einu af þessum undirbúningstímabils mótum ca. 2018. Kannski helst minnisstætt hvað þetta var allt óminnisstætt.
Uppáhalds drykkur: kaffi eða collab
Uppáhalds matsölustaður: bombay bazaar
Hvernig bíl áttu: rúlla um á rafmagnshjóli eða á gömlum prius þegar ég hef hann til umráða, næsta spurning takk.
Áttu hlutabréf eða rafmynt: nei
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Messan í den
Uppáhalds tónlistarmaður: Kanye, Travis og Yung Nigo Drippin
Uppáhalds hlaðvarp: dr. football podcast
Uppáhalds samfélagsmiðill: tiktokið yfirburða þessa dagana
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: 433.is
Fyndnasti Íslendingurinn: Óli Jó
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Gauti Gretarsson minnir a tima kl: 09:30 thann 29.04.2024 Sjukrathj Reykjav (s:5621916) Greida skal 5000.kr fyrir otilkynnt forfoll.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: ekki séns að ég muni klæðast united treyjunni á minni lífsleið
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: steven lennon eða atli guðna, geri ekki upp á milli þeirra
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Gaui Þórðar, the goat
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: bara hvaða bliki sem er, take your pick
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Thierry Henry
Sætasti sigurinn: KFA away í undanúrslitum neðrideildar bikarsins.
Mestu vonbrigðin: tapið á móti Víði í úrslitum neðrdeildar bikarsins.
Uppáhalds lið í enska: Arsenal
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: fá Birgir Ólaf Helgason (BÓ) aftur heim. Feel like shit, just want him back.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Róbert Frosti Þorkelsson
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Magnús Andri Ólafsson ber höfuð og herðar yfir aðra knattspyrnumenn í þessum flokki.
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: þetta er reyndar frábær spurning
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Jakob Emil er helvíti sleipur þarna
Uppáhalds staður á Íslandi: heima bara
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: þegar ég þurfti að beita glímubrögðum til að forða liðsfélaga mínum, Tómasi Orra Almarssyni frá því að fá rautt spjald þegar hann ætlaði að vaða í einn frá ÍH í mjólkurbikarnum í fyrra
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: verð alltaf að hita upp fyrir leiki
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: playoff basketball
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: vapor
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: viðskiptasiðfræði, þetta fag er bara mótsögn í sjálfu sér
Vandræðalegasta augnablik: ábyggilega þegar ég datt út í sjó við hafnartorg eitt gott síðkvöldið, það var ekkert spes
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: tæki magnús andra, pétur mána, eyjólf andra og einn bolta með – það væri bara joga bonito
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: myndi henda Tómasi Orra í Dr. Phil, það þarf aðeins að kryfja þennan gæja
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: fæddist í heitapotti, það var næs
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: gæðin hjá jóni arnari koma sífellt á óvart
Hverju laugstu síðast: laug að sjálfum mér að ég ætlaði að læra yfir north london derby
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: hita upp
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: myndi spyrja Arteta hvernig í ósköpunum hann vissi að Havertz yrðu kaup tímabilsins
Athugasemdir