Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
banner
banner
laugardagur 18. maí
Lengjudeild karla
mánudagur 13. maí
Lengjudeild kvenna
þriðjudagur 7. maí
Lengjudeild kvenna
mánudagur 6. maí
Besta-deild karla
Lengjudeild kvenna
laugardagur 4. maí
2. deild karla
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
miðvikudagur 1. maí
Lengjudeild karla
mánudagur 29. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 23. apríl
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
fimmtudagur 16. maí
Umspil Championship
Leeds 3 - 0 Norwich
Vináttulandsleikur
Trinidad and Tobago 2 - 0 Guyana
Bosnia Herzegovina U-19 1 - 1 Slovenia U-19
Montenegro U-18 3 - 2 North Macedonia U-17
Montenegro U-17 1 - 2 North Macedonia U-16
Serbia U-16 2 - 1 Bulgaria U-16
Eliteserien
SK Brann 2 - 1 Sandefjord
Haugesund 1 - 0 Kristiansund
Sarpsborg 1 - 7 Ham-Kam
Viking FK 1 - 4 Lillestrom
Bodo-Glimt 4 - 0 Tromso
Fredrikstad 4 - 1 Stromsgodset
Odd 0 - 4 Molde
Rosenborg 1 - 3 KFUM Oslo
La Liga
Almeria 0 - 1 Barcelona
Real Sociedad 1 - 0 Valencia
Las Palmas 2 - 2 Betis
mán 29.apr 2024 18:15 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá þjálfara í 2. deild: 8. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. KFG úr Garðabæ er spáð áttunda sætinu fyrir komandi tímabil.

KFG fagnar marki í fyrra.
KFG fagnar marki í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Veigar Páll er tekinn við liðinu.
Veigar Páll er tekinn við liðinu.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Arnar Barðdal ætti að geta skorað nokkur í sumar.
Jón Arnar Barðdal ætti að geta skorað nokkur í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Pétursson, öflugur.
Kári Pétursson, öflugur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tómas Orri Almarsson hér fyrir miðju.
Tómas Orri Almarsson hér fyrir miðju.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gerir KFG í sumar?
Hvað gerir KFG í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8. KFG, 54 stig
9. Völsungur, 37 stig
10. Reynir S., 35 stig
11. KF, 27 stig
12. Kormákur/Hvöt, 13 stig

8. KFG
KFG kom skemmtilega á óvart í fyrra. Það var alls ekki mikil trú á KFG fyrir tímabilið á meðal þjálfara deildarinnar og var þeim spáð neðsta sæti. Garðarbæjarfélagið hafði árið áður lent í þriðja sæti 3. deildar en þeir fóru upp um deild eftir að það varð ljóst að Kórdrengir myndu ekki taka þátt í Íslandsmótinu. Þeir fengu að vita það með litlum aðdraganda að þeir væru að spila í 2. deild en þeir fljótir að aðlagast og gerðu miklu betur en margir þorðu að vona. Liðið var í toppbaráttu stærstan hluta tímabils en missti dampinn í síðustu umferðunum er liðið tapaði fimm leikjum af sex og hafnaði því í áttunda sæti með 30 stig. KFG er og hefur alltaf verið stemningslið en liðið samanstendur nánast eingöngu af sprækum Garðbæingum. Það er skemmtilegt að horfa á þá spila fótbolta.

Þjálfarinn: Það var þjálfarabreyting í Garðabænum eftir síðustu leiktíð. Bræðurnir Björn og Kristján Mássynir hættu þjálfun liðsins og í þeirra stað tók Veigar Páll Gunnarsson við stjórnartaumunum. Bræðurnir tóku við KFG þegar liðið spilaði í 4. deild en þeir stýrðu liðinu í sjö tímabil og komust tvisvar upp í 2. deild. Veigar Páll er goðsögn í Garðabæ og var lengi atvinnu- og landsliðsmaður. Hann hefur á undanförnum árum þjálfað yngri flokka Stjörnunnar en hann stígur núna í sitt fyrsta starf sem aðalþjálfari í meistaraflokki.

Stóra spurningin: Hvernig gengur Veigari Páli með liðið?
Veigar Páll er með alvöru ferilskrá sem leikmaður og er klárlega einn besti fótboltamaður sem komið hefur úr Garðabæ, ef ekki bara sá besti. En hann er núna að fara inn í sitt fyrsta aðalþjálfarastarf í meistaraflokki og það verður gríðarlega gaman að sjá hvernig það fer. Hann er að taka við af mönnum sem voru lengi með liðið og það er örugglega ekki auðvelt að koma á eftir þeim, en hann getur alveg klárlega gert það.

Lykilmenn:
Jón Arnar Barðdal: Sóknarmaður sem sprakk skemmtilega út í Bestu deildinni með HK fyrir nokkrum árum. Hann færði sig yfir í KFG fyrir tímabilið 2022 og spilar þar mikilvægt hlutverk núna. Gerði tíu mörk í 19 leikjum í 2. deild í fyrra, og það eru klárlega hæfileikar þarna til að fara í tveggja stafa tölu aftur. Hann er búinn að vera heitur á undirbúningstímabilinu.

Kári Pétursson: Fjölhæfur leikmaður sem er með ágætis reynslu úr Bestu deildinni, rétt eins og Jón Arnar. Hann getur leyst margar stöður á vellinum. Hann kemur með fæting og hann getur skorað fyrir þig mörk.

Tómas Orri Almarsson: Herra KFG ef svo má segja. Uppalinn í Stjörnunni en hefur leikið með KFG alveg frá 2016 og er algjört hjarta í þessu liði. Skemmtilegur karakter og finnst andstæðingnum óþolandi að mæta honum.

Komnir:
Adrían Baarregaard Valencia frá Þrótti R. (á láni)
Bjarki Flóvent Ásgeirsson frá Sindra
Darri Már Garðarsson frá KFK
Guðmundur Ísak Bóasson frá Þrótti R.
Guðmundur Páll Einarsson frá Vestra
Helgi Snær Agnarsson frá Vængjum Júpiters
Jóhannes Flosi Rúnar Ingason frá Elliða
Svo hafa nokkrir ungir leikmenn komið frá Stjörnunni

Farnir:
Kristófer Leví Sigtryggsson í Grindavík (var á láni frá Gróttu)
Stefán Alex Ríkarðsson í KÁ
Svo hafa nokkrir leikmenn farið aftur í Stjörnuna

Þjálfarinn segir - Veigar Páll Gunnarsson
„Það er bara mikil spenna og tilhlökkun í herbúðum KFG fyrir sumrinu."

„Við höfum æft virkilega vel í vetur og nýtt tímann og þessa vetrarleiki til þess að hnoða okkur saman og slípa okkar áherslur. Við erum líka virkilega ánægðir með þá leikmenn sem hafa komið til okkar þannig að ég tel að hópurinn okkar sé bara orðinn ansi glæsilegur."

„Okkur er spáð áttunda sæti sem er bara gott og blessað en við teljum okkur geta gert mikið betur en það og ætlum okkur hærra í töflunni."

Fyrstu þrír leikir KFG:
4. maí, KFG - KF (Samsungvöllurinn)
10. maí, KFG - Haukar (Samsungvöllurinn)
18. maí, Höttur/Huginn - KFG (Fellavöllur)
Athugasemdir
banner
banner