Thibaut Courtois markvörður Real Madrid er loksins að verða klár í slaginn en hann hefur verið ansi óheppinn með meiðsli.
Courtois var að verða klár í slaginn í síðasta mánuði eftir krossbandsslit þegar hann meiddist aftur á hné.
Carlo Ancelotti stjóri Real Madrid greindi frá því í dag að hann sæi fyrir sér að Courtois muni ferðast með liðinu til Munchen þar sem liðið tekur á móti Bayern í undanúrslitum Meistaradeildarinnar þann 30. apríl.
Jude Bellingham er ekki í leikmannahópi Real sem mætir Real Sociedad á morgun vegna veikinda.
Athugasemdir