Bayern vill 100 milljónir fyrir Olise - Chelsea reynir að fá Guehi og Maignan frítt - Konate ætlar til Real Madrid
Besta-deild karla
Valur
73' 1
2
Stjarnan
Besta-deild karla
KR
LL 0
7
Víkingur R.
Besta-deild karla
FH
LL 2
2
Fram
Besta-deild karla
KA
LL 4
1
Vestri
Besta-deild kvenna
Valur
LL 6
2
Tindastóll
Besta-deild kvenna
FHL
LL 1
5
Breiðablik
KA
4
1
Vestri
Hallgrímur Mar Steingrímsson '28 , víti 1-0
1-1 Diego Montiel '57 , víti
Hans Viktor Guðmundsson '67 2-1
Birnir Snær Ingason '76 3-1
Hallgrímur Mar Steingrímsson '83 4-1
14.09.2025  -  14:00
Greifavöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason (f)
8. Marcel Ibsen Römer ('81)
9. Viðar Örn Kjartansson ('63)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson ('88)
17. Birnir Snær Ingason
26. Ingimar Torbjörnsson Stöle ('81)
28. Hans Viktor Guðmundsson
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('88)
- Meðalaldur 30 ár

Varamenn:
12. William Tönning (m)
11. Ásgeir Sigurgeirsson ('63)
14. Andri Fannar Stefánsson
21. Mikael Breki Þórðarson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
25. Dagur Ingi Valsson ('81)
44. Valdimar Logi Sævarsson ('88)
77. Bjarni Aðalsteinsson ('81)
90. Snorri Kristinsson ('88)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Petar Ivancic
Helgi Steinar Andrésson
Steingrímur Örn Eiðsson
Thomas Danielsen
Tryggvi Björnsson
Kjartan Páll Þórarinsson

Gul spjöld:
Ívar Örn Árnason ('17)
Marcel Ibsen Römer ('30)
Hallgrímur Mar Steingrímsson ('37)
Birgir Baldvinsson ('64)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Frábær sigur hjá KA en það er ekki nóg. KA og Vestri enda í neðri hlutanum.

Viðtöl og skýrsla kemur inn á síðuna seinna í dag.
94. mín
Síðasta mínútan í gangi
92. mín
Fram búið að jafna gegn FH sem þýðir að sigur hjá KA dugir ekki. KA og Vestri verða bæði í neðri hlutanum.
91. mín
Cafu Phete með fínt skot en vel varið hjá Stubb.
88. mín
Inn:Snorri Kristinsson (KA) Út:Guðjón Ernir Hrafnkelsson (KA)
88. mín
Inn:Valdimar Logi Sævarsson (KA) Út:Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
87. mín
Dagur Ingi Valsson kemur boltanum í netið en rangstaða dæmd
87. mín
Inn:Sergine Fall (Vestri) Út:Morten Ohlsen Hansen (Vestri)
85. mín Gult spjald: Birkir Eydal (Vestri)
83. mín MARK!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
MAAARK Fjórir KA menn komast í gegn. Ásgeir sendir á Hallgrím Mar og hann skorar.
81. mín
Inn:Emmanuel Duah (Vestri) Út:Eiður Aron Sigurbjörnsson (Vestri)
81. mín
Inn:Birkir Eydal (Vestri) Út:Anton Kralj (Vestri)
81. mín
Inn:Bjarni Aðalsteinsson (KA) Út:Marcel Ibsen Römer (KA)
81. mín
Inn:Dagur Ingi Valsson (KA) Út:Ingimar Torbjörnsson Stöle (KA)
76. mín MARK!
Birnir Snær Ingason (KA)
MAAARK Skot úr D-boganum í netið. KA komið í góða stöðu
76. mín
Inn:Johannes Selvén (Vestri) Út:Diego Montiel (Vestri)
76. mín
Inn:Guðmundur Arnar Svavarsson (Vestri) Út:Vladimir Tufegdzic (Vestri)
73. mín
Ásgeir! Ásgeir Sigurgeirsson með skot í slá úr dauðafæri! Ótrúlegt!
70. mín
Það eru sviptingar í baráttunni um umspilssæti. FH er búið að snúa blaðinu við gegn Fram og KA er því í 6. sæti eins og staðan er núna.
67. mín MARK!
Hans Viktor Guðmundsson (KA)
Skora eftir horn. Erfitt að átta sig á því hvað gerðist. sýndist Hans Viktor vera í boltanum
65. mín Gult spjald: Morten Ohlsen Hansen (Vestri)
64. mín Gult spjald: Birgir Baldvinsson (KA)
63. mín
Inn:Ásgeir Sigurgeirsson (KA) Út:Viðar Örn Kjartansson (KA)
62. mín
DAUÐAFÆRI Marcel Römer í dauðafæri en nær ekki að setja bolltann á markið.
57. mín Mark úr víti!
Diego Montiel (Vestri)
Öruggt víti. Sendir Stubb í vitlaust horn
56. mín
VESTRI FÆR VÍTI Ívar Örn brýtur á Gunnari Jónasi sýnist mér. Klárt víti. Jóhann Ingi dómari tók sér góðan tíma í að dæma þetta en niðurstaðan hárrétt.
53. mín
KA menn leika sér hérna með boltann inn í vítateig Vestra. Enginn ætlaði að taka af skarið og skjóta. Það kemur loksins en Guy Smit ver.
46. mín
Seinni hálfleikur kominn af stað
45. mín
Hálfleikur
Heimamenn með forystuna í hálfleik. Staðan í deildinni breytist lítið þar sem Fram er að vinna FH. KA er komið í 7. sæti með jafn mörg stig og FH sem er með mun betri markatölu.
45. mín
Birnir Snær fær boltann á hættulegum stað en ræðst ekki á vörnina, reynir að senda inn fyrir vörn Vestra en gestirnir koma boltanum frá.
45. mín
Þrjár mínútur í uppbótatíma
41. mín
Boltinn verið meira og minna inn á vallarhelmingi KA eftir markið. Vestri hefur ekki náð að skapa sér neitt af viti.
37. mín Gult spjald: Gunnar Jónas Hauksson (Vestri)
37. mín Gult spjald: Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Aukaspyrna á hættulegum stað. Montiel með skotið framhjá
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín Gult spjald: Marcel Ibsen Römer (KA)
28. mín Mark úr víti!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
MAAARK Hallgrímur Mar skorar! Guy Smit fer í vitlaust horn.
27. mín
VÍTI KA fær víti
25. mín
Cafu Phete með bjartsýnistilraun hátt yfir
21. mín
Færi Boltinn fer manna á milli inn á teig KA, endar hjá Vladimir Tufegdzic sem hittir ekki markið úr heldur þröngu færi.
18. mín
Frábær sending inn fyrir á Viðar Örn sem er kominn einn í gegn en hann misreiknar boltann eitthvað og færið rennur út í sandinn.
17. mín Gult spjald: Ívar Örn Árnason (KA)
14. mín
Pedersen er staðinn upp og leikurinn heldur áfram.
12. mín
Jeppe Pedersen liggur hérna eftir að hafa skollið saman við samherja.
10. mín
Fín sókn hjá KA. Birgir Baldvinsson með fyrirgjöf en Viðar Örn með skot yfir.
5. mín
KA vill víti KA menn ekki sáttir. Vilja fá vítaspyrnu eftir viðskipti Guy Smit og Viðars. Vestri vildi líka fá víti rétt áður.
1. mín
Leikur hafinn
Viðar Örn Kjartansson sparkar þessu af stað
Fyrir leik
Gunnar Jónas Hauksson á erfitt verkefni fyrir höndum. Hann er að öllum líkindum að dekka Birni Snæ Ingason eða Hallgrím Mar, það öskrar á gult, Gunnar Jónas fær gult spjald er 4 í stuðul á Epic, skemmtilegt.
Fyrir leik
Byrjunarliðin KA tapaði á dramatískan hátt gegn Stjörnunni í síðustu umferð. KA komst í 2-0 en Guðmundur Baldvin Nökkvason fullkomnaði endurkomu Stjörnunnar með sigurmarki í blálokin.

Það er ein breyting á liði KA frá leiknum gegn Stjörnunni. Jóan Símun Edmundsson er í banni en Viðar Örn Kjartansson kemur inn í liðið í hans stað.

Það er einnig ein breyting á liði Vestra eftir 1-1 jafntefli gegn KR. Fatai Gbadamosi tekur út leikbann og Morten Ohlsen Hansen kemur inn og tekur við fyrirliðabandinu.
Fyrir leik
Dómarateymið Jóhann Ingi Jónsson er dómari leiksins. Ragnar Þór Bender og Eðvarð Eðvarðsson verða honum til aðstoðar. Sveinn Arnarsson er fjórði dómari og Bragi Bergmann eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Boð og bönn Jóan Símun Edmundsson verður í banni hjá KA í dag og Vestri verður án Fatai Gbadamosi vegna leikbanns.
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna Liðin mættust í fyrri leik liðanna fyrir Vestan í 11. umferð þar sem Vestri hafði betur. Diego Montiel skoraði eina mark leiksins i fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Bjössi Hreiðars spáir heimasigri Sigurbjörn Hreiðarsson, sem er mikill sérfræðingur um deildina, spáir í lokaumferðina.

KA 2 - 0 Vestri
Tvö flott lið mætast í svakalegum leik. KA nýtir sér heimavöllinn og vinna. Hallgrímur og Birnir skora í sitthvorum hálfleik. KA liggur svo á bæn um að leikurinn í Krikanum fari ekki jafntefli og að ÍBV vinni ekki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Vestri Þegar öllu er á botninn hvolft hefur Vestri átt frábært tímabil. Liðið var í toppbaráttu í upphafi móts og varð bikarmeistari. Liðið hefur nælt í fimm stig úr síðustu fimm leikjum.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
KA KA hefur verið mikið jójó lið undanfarið. Liðið tapaði á ótrúlegan hátt gegn Stjörnunni í siðustu umferð 3-2 eftir að hafa komist í 2-0 en sigurmark Stjörnunnar kom í blálokin. Fyrir þann leik hafði liðið unnið og gert jafntefli til skiptis í fimm leikjum í röð.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Barist um sæti í efri hlutanum Liðin gera sér von um að enda í efri hlutanum fyrir tvískiptinguna en bæði lið eru fyrir neðan strikið eins og staðan er núna. Vestri er í 8. sæti með 27 stig, stigi á eftir Fram og ÍBV sem eru í 6. og 7.sæti og tveimur stigum á eftir FH sem er í 5. sæti. KA er í 9. sæti með 26 stig.

5. FH 29 stig
6. Fram 28 stig
7. ÍBV 28 stig
8. Vestri 27 stig
9. KA 26 stig

FH fær Fram í heimsókn á sama tíma og þessi leikur fer fram, klukkan 14. ÍBV heimsækir Breiðablik á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Allt undir á Greifavellinum Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og Vestra í lokaumferðinni í Bestu deildinni fyrir tvískiptingu. Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
2. Morten Ohlsen Hansen (f) ('87)
3. Anton Kralj ('81)
5. Thibang Phete
6. Gunnar Jónas Hauksson
7. Vladimir Tufegdzic ('76)
8. Ágúst Eðvald Hlynsson
10. Diego Montiel ('76)
28. Jeppe Pedersen
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson ('81)
40. Gustav Kjeldsen
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
1. Benjamin Schubert
14. Birkir Eydal ('81)
15. Guðmundur Arnar Svavarsson ('76)
19. Emmanuel Duah ('81)
21. Silas Songani
29. Johannes Selvén ('76)
77. Sergine Fall ('87)
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Jón Hálfdán Pétursson
Vladan Djogatovic
Vignir Snær Stefánsson
Ferran Montes I. Corominas
Jón Ólafur Ragnarsson

Gul spjöld:
Gunnar Jónas Hauksson ('37)
Morten Ohlsen Hansen ('65)
Birkir Eydal ('85)

Rauð spjöld: