Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
Í BEINNI
Vináttulandsleikur
Mexíkó
LL 4
0
Ísland
Mexíkó
4
0
Ísland
Richard Ledezma '22 1-0
Armando Gonzalez '24 2-0
Jesús Gallardo '59 3-0
Brian Gutiérrez '92 4-0
26.02.2026  -  02:00
Queretaro
Vináttulandsleikur
Aðstæður: Mjög krefjandi
Áhorfendur: Um 30 þúsund
Byrjunarlið:
12. Raúl Rangel (m)
3. Israel Reyes
6. Erik Lira ('66)
10. Efrain Alvarez ('56)
13. Armando Gonzalez ('66)
14. Marcel Ruiz ('56)
22. Everardo del Villar
23. Jesús Gallardo
24. Brian Gutiérrez
25. Roberto Alvarado ('56)
27. Richard Ledezma ('66)

Varamenn:
1. Luis Malagon (m)
28. Carlos Acevedo (m)
4. Víctor Guzman
5. Denzell Garcia
8. Carlos Rodriguez ('56)
9. Guillermo Martínez ('66)
11. Alexis Gutierrez ('56)
16. Jesus Garza ('66)
18. Érick Sánchez ('56)
19. Diego Campillo Del Campo ('66)

Liðsstjórn:
Javier Aguirre (Þ)

Gul spjöld:
Jesús Gallardo ('86)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Góða nótt! Þannig fór um sjóferð þá. Ef og hefði og allt það... en hefði verið gaman að sjá hvernig þetta hefði þróast hefðum við nýtt góða byrjun til að skora. Fengum svo sannarlega dauðafæri til að komast yfir. En svona er boltinn.

Mexíkó vinnur hér mjög sannfærandi og verðskuldaðan sigur. Sýndu gæði sín.
92. mín MARK!
Brian Gutiérrez (Mexíkó)
Slapp aleinn í gegn og kláraði snyrtilega Höskuldur Gunnlaugsson í miklu brasi með langan mexíkóskan bolta fram. Gutierrez rændi boltanum af honum og gerði þetta rosalega faglega.
91. mín
4 mínútur í uppbótartíma
89. mín
Mexíkó að pressa. Fyrst varði Anton og svo vann Mexíkó horn.
86. mín Gult spjald: Jesús Gallardo (Mexíkó)
Með tuddaskap við Gylfa.
85. mín
Inn:Daníel Hafsteinsson (Ísland) Út:Guðmundur Þórarinsson (Ísland)
85. mín
Inn:Baldur Kári Helgason (Ísland) Út:Jóhann Berg Guðmundsson (Ísland)
81. mín
Væri gott veganesti á koddann að fá eitt íslenskt mark í lokin Svona rétt til að fá skemmtilegri drauma.
79. mín
Jói Berg með sendingu inn í teiginn, boltinn hrekkur af varnarmanni sem nær með naumindum að koma í veg fyrir horn og sparka boltanum í innkast.
78. mín
Stemning í stúkunni og verið að taka bylgju.
76. mín
Inn:Birnir Snær Ingason (Ísland) Út:Ágúst Orri Þorsteinsson (Ísland)
Ágúst með nokkrar flottar rispur í þessum leik og var að búa til vesen á tíðum.
74. mín
Birnir Snær Ingason stendur við hliðarlínuna og bíður eftir því að fá að koma inn.
74. mín
Mini myndaveisla úr leiknum
Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

71. mín
Innkast inn í teig Mexíkóa. Ágúst Orri fellur í teignum í baráttu við varnarmann en dómarinn dæmir ekkert.
70. mín
Jesús Gallardo tæklar Karl Friðleif niður aftanfrá en fær ekki spjald.
69. mín Gult spjald: Ágúst Orri Þorsteinsson (Ísland)
Ágúst Orri hendir sér í tæklingu. Israel Reyes liggur eftir og kveinkar sér.
68. mín
Varamaðurinn Carlos Rodriguez með skot en talsvert frá því að hitta á rammann.
66. mín
Inn: Jesus Garza (Mexíkó) Út:Richard Ledezma (Mexíkó)
66. mín
Inn: Diego Campillo Del Campo (Mexíkó) Út:Erik Lira (Mexíkó)
66. mín
Inn: Guillermo Martínez (Mexíkó) Út:Armando Gonzalez (Mexíkó)
65. mín
Höskuldur Gunnlaugsson of seinn og setti takkana í Armando Gonzalez. Heppinn að sleppa við spjald Höskuldur. Hefði þetta ekki verið æfingaleikur hefði hann farið í svörtu bókina.
63. mín
Inn:Óskar Borgþórsson (Ísland) Út:Emil Atlason (Ísland)
63. mín
Inn:Hallgrímur Mar Steingrímsson (Ísland) Út:Helgi Guðjónsson (Ísland)
63. mín
Inn:Hans Viktor Guðmundson (Ísland) Út:Guðmundur Kristjánsson (Ísland)
63. mín
Erik Lira í dauðafæri en Anton lokar á hann.
59. mín MARK!
Jesús Gallardo (Mexíkó)
Stoðsending: Brian Gutiérrez
Skallar boltann inn eftir hornspyrnu Rannsóknarefni hversu laus hann var!

En skallinn virkilega huggulegur, stýrði boltanum í hornið.
58. mín
Anton Ari ver vel Ekkert yfir frammistöðu Antons að kvarta. Brian Gutierrez með skot sem Anton ver vel í horn.
56. mín
Inn: Érick Sánchez (Mexíkó) Út:Roberto Alvarado (Mexíkó)
56. mín
Inn: Alexis Gutierrez (Mexíkó) Út:Marcel Ruiz (Mexíkó)
56. mín
Inn:Carlos Rodriguez (Mexíkó) Út:Efrain Alvarez (Mexíkó)
56. mín
Orrahríð að marki Íslands Hvert skotið frá Mexíkó á fætur öðru, það síðasta endar yfir markinu. Damir og Gummi Kristjáns í yfirvinnu við að kasta sér fyrir skot.
55. mín
Mexíkó að sækja. Gutierrez með skot rétt fyrir utan markteiginn en Damir gerir virkilega vel og lokar á skotið.
54. mín
Gylfi með hornspyrnu en við náum ekki að kreista fram marktilraun úr henni.
52. mín
Mexíkó með spil við vítateig Íslands en Gummi Tóta kemst í boltann og stöðvar þetta.
51. mín
Helgi Guðjóns með langt innkast, eftir baráttu endar boltinn afturfyrir. markspyrna dæmd.
50. mín
Óskar Borgþórs, Hallgrímur Mar og Hans Viktor eru að hita upp við hliðarlínuna.
49. mín
Beint í fang Antons Skot fyrir utan teig. Gonzalez langar í annað mark en þetta fór beint í fangið á Antoni Ara.
48. mín
Bæði lið eru í rólegheitum að undirbúa fyrstu skiptingar leiksins.
46. mín
MX yfir gegn Bestu Það var vitað mál að það yrði á brattann að sækja í þessum leik við krefjandi aðstæður gegn sterku liði Mexíkóa. Leikmenn úr hinni sterku MX deild æstir í að sýna landsliðsþjálfaranum að þeir eigi skilið að vera með í HM hópnum.

Seinni hálfleikur er kominn í gang.
45. mín
Ljósasýningar þegar Mexíkó skorar Eitt það áhugaverðasta við fyrri hálfleikinn var ljósasýningin sem var sett í gang þegar Mexíkó skoraði. Flóðljós vallarins byrjuðu að blikka og eldglæringar fóru í gang fyrir aftan markið. Já það er ekki hægt að segja annað en að Mexíkóar séu stemnningsmenn.

Vonandi verður svona á HM í sumar!
45. mín
45. mín
Hálfleikur
Það hefur verið flautað til hálfleiks á Vampíruvaktinni Leiðinlegt að fá þessi tvö mörk á sig með tveggja mínútna millibili. Ísland byrjaði vel en svo steig Mexíkó á bensíngjöfina.
45. mín
Gylfi með hornspyrnu, fín spyrna inn á teiginn en varnarmaður Mexíkó grimmur og skallar frá.
43. mín
Roberto Alvarado átti skot af löngu færi en beint á Anton.
42. mín
Báðir að opna markareikningana
35. mín
Marcel Ruiz í hörkufæri eftir fyrirgjöf frá hægri en setur boltann sem betur fer framhjá. Mexíkó líklegra til að setja þriðja markið en við að minnka muninn eins og þróunin er núna.
33. mín
Gylfi með langa sendingu fram og Emil nær að reka höfuð í boltann en er langt frá marki Mexíkó og engin hætta skapast.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Mikill gæðamunur að sjást núna Eftir flott fyrsta korter frá Íslandi hefur Mexíkó algjörlega tekið öll völd á vellinum og okkar menn í ýmsu brasi varnarlega.
27. mín
Mexíkó skyndilega að ráða lögum og lofum! Hefðu getað komist í 3-0 en Anton Ari ver úr dauðafæri sem Gutierrez fékk. Skyndilega sækir Mexíkó linnulaust.
24. mín MARK!
Armando Gonzalez (Mexíkó)
Stoðsending: Jesús Gallardo
Flóðgáttir opnaðar? Langur bolti fram og Gallardo hefur betur í baráttunni við Höskuld sem fékk boltann yfir sig. Gallardo sendir fyrir og boltinn fer framhjá báðum miðvörðunum áður en Gonzalez skorar af stuttu færi.
22. mín MARK!
Richard Ledezma (Mexíkó)
Stoðsending: Armando Gonzalez
Mexíkó hefur stigið á bensíngjöfina Anton Ari og Gummi Kristjáns lentu í árekstri í baráttu í teignum. Gonzalez vippaði boltanum á Ledezma sem skoraði með skalla.

Mexíkó tekur forystuna.
19. mín
Ledezma með hörkuskot framhjá, boltinn fór af Emil og framhjá. Þetta var heldur betur fast! Skömmu síðar eiga heimamenn aðra tilraun en ekki eins hættulega.
17. mín
Stórhætta upp við mark Íslands! Það er alveg hægt að flokka þetta sem darraðadans eftir aukaspyrnu frá heimamönnum. Höskuldur er í markteignum og kemur boltanum frá.
14. mín
Mexíkó með hættulega fyrirgjöf en Damir nær að reka höfuðið í boltann og stöðva þetta.
13. mín
Jói Berg með skot að marki Úr frekar þröngu færi en kemur skotinu á markið. Rangel ekki í vandræðum með að verja.
12. mín
ÁGÚST ORRI!!! Sá er að búa til mikið vesen fyrir Mexíkóa í pressunni, hirðir boltann af varnarmanni Mexíkó og kemst í teiginn einn á móti Raúl Rangel markverði. Rangel nær að verja.

Helgi Guðjóns var aleinn þarna við fjærstöngina og Ágúst hefði getað rennt boltanum á hann og hann fyrir opnu marki.
10. mín
Gylfi brýtur af sér við hliðarlínuna og fær tiltal frá dómaranum.
9. mín
Lofandi byrjun hjá Íslandi Ísland að byrja þennan leik býsna vel. Ágúst Orri kemur boltanum á Karl Friðleif eftir harða baráttu, vann boltann af Mexíkóa. Karl Friðleifur svo með misheppnaða fyrirgjöf.

Ísland er að halda boltanum ágætlega og það er hugur í mönnum. Vonandi vísbending um það sem koma skal.
6. mín
Skalli vel framhjá Heimamenn fengu hornspyrnu og upp úr henni kom svo fyrirgjöf inn í teiginn. Brian Gutiérrez með skallann en vel framhjá. Engin hætta á ferðum.
4. mín
Ísland hefði átt að fá hornspyrnu sem Karl Friðleifur vann snemma leiks en dómarinn ekki á sama máli. Boltinn fór klárlega af heimamanni.
2. mín
Byrjunarlið Íslands Anton Ari
Höskuldur - Damir - Gummi Kristjáns - Gummi Tóta
Karl Friðleifur - Gylfi - Jói Berg - Helgi Guðjóns
Ágúst Orri
Emil Atla
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn loksins hafinn Ísland byrjaði með boltann. Leikurinn hófst 7 mínútum á eftir áætlun því Mexíkó var með einhverja mjög sérstaka athöfn fyrir leik. Ekki fleiri orð um hana.
Fyrir leik
Lúðrablástur og stuð Heljarinnar sýning í kringum þjóðsöng Mexíkó, lúðrablástur og reykvélar. Fólk ekkert að stressa sig þó klukkan sé orðin 2. Næst er komið að mínútuþögn.
Fyrir leik
Lofsöngurinn að baki Ekki margir Íslendingar í stúkunni, en Hanna Sím er að sjálfsögðu mætt!
Fyrir leik
Kolbeinn ekki með Arnar Gunnlaugsson segir í viðtali fyrir leikinn að Ísland þurfi að spila öflugan varnarleik og hafa þor og dugnað þegar við erum með boltann. Hann greinir frá því að Kolbeinn Þórðarson hafi verið stífur á æfingu í gær og hann tekur ekki þátt í leiknum.
Fyrir leik
Öryggið á oddinn! Lögreglan og herinn sameina krafta sína í öryggisgæslu í kringum þennan leik. Við vorum að fá þessar myndir sem Alex Cruz, ljósmyndari EPA, tók fyrir utan leikvanginn rétt áðan.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Fyrir leik
Leikvangurinn
Fyrir leik
Byrjunarlið heimamanna
Fyrir leik
Tveir leikmenn byrja sem eru ekki í Bestu Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliðinu en hann er án félags og þá er Damir Muminovic í vörninni en hann gekk í vetur í raðir Grindavíkur í Lengjudeildinni.

Þrír leikmenn Íslandsmeistara Víkings eru í byrjunarliðinu en fjórir frá Breiðabliki. Tveir eru í Stjörnunni og einn úr ÍA.
Fyrir leik
Gylfi er fyrirliði Níu leikmenn í byrjunarliði Íslands spila í Bestu deildinni, þar á meðal er Gylfi Þór Sigurðsson sem er með fyrirliðabandið.

Mynd: KSÍ

Fyrir leik
Ísland aldrei unnið Mexíkó Þetta verður sjötti landsleikurinn milli Mexíkó og Íslands en aldrei hefur Íslandi tekist að vinna.

Veðbankar telja að það muni ekki breytast í nótt en Epicbet er með 9,10 í stuðul á íslenskan sigur. 5,58 er á jafntefli og 1,30 á mexíkóska liðið sem skipað er leikmönnum úr hinni öflugu Liga MX.

Allar viðureignir Mexíkó og Íslands hafa verið vináttulandsleikir; þeir tveir fyrstu enduðu 0-0 en síðan hefur Mexíkó unnið síðustu þrjár viðureignir. Síðast í maí 2021 þar sem fór 2-1.
Fyrir leik
Mínútuþögn fyrir leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verður mínútuþögn fyrir vináttuleik Íslands og Mexíkó seint í kvöld. Það er vegna látinna hermanna sem létust að störfum fyrir mexíkósku þjóðina. Herinn felldi eiturlyfjabaróninn El Mencho á dögunum og létust hermenn í skotárásinni.
Fyrir leik
Óvissa var um leikinn
Mynd: KSÍ

Óeirðir hafa verið víða í Mexíkó síðustu daga eftir að glæpaforinginn Nemesio Oseguera Cervantes féll í bardögum við mexíkóska herinn. Mörgum kappleikjum í landinu hefur verið frestað.

Landsleikurinn mun hinsvegar fara fram og landsliðsþjálfari Mexíkó lofar því að allir verði öruggir. Mikil gæsla hefur verið í kringum íslenska liðið.

„Við erum meðvituð um viðkvæmt ástand en mexíkóska fótboltasambandið segir að öryggi allra verði tryggt," segir landsliðsþjálfarinn Javier Aguirre.

„Við höfum æft í afslöppuðu umhverfi, slökum á og tölum um íþróttir. Það eru skilaboðin sem ég get sent til stuðningsmanna sem fótboltaþjálfari."

Það er uppselt á leikinn sem er framundan, yfir 30 þúsund áhorfendur verða samankomnir á Estadio Corregidora.
Fyrir leik
Landsliðshópur Íslands í þessu verkefni
Helgi Guðjónsson og Gylfi Þór Sigurðsson ræða málin | Mynd: KSÍ

Anton Ari Einarsson - Breiðablik
Viktor Freyr Sigurðsson - Fram
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik
Karl Friðleifur Gunnarsson - Víkingur R.
Damir Muminovic - Grindavík
Hans Viktor Guðmundsson - KA
Guðmundur Kristjánsson - Stjarnan
Guðmundur Þórarinsson - ÍA
Baldur Kári Helgason - FH
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R.
Haukur Andri Haraldsson - ÍA
Kolbeinn Þórðarson - IFK Göteborg
Daníel Hafsteinsson - Víkingur R.
Birnir Snær Ingason - Stjarnan
*Hallgrímur Mar Steingrímsson - KA
*Óskar Borgþórsson - Víkingur R.
Ágúst Orri Þorsteinsson - Breiðablik
Helgi Guðjónsson - Víkingur R.
Emil Atlason - Stjarnan
*Jóhann Berg Guðmundsson

   21.02.2026 12:58
Hópur Mexíkó gegn Íslandi: Allir spila í heimalandinu
Fyrir leik
Landsleikur framundan!
Frá æfingu Íslands á keppnisvellinum | Mynd: KSÍ

Mexíkó og Ísland mætast í vináttulandsleik í kvöld. Leikurinn hefst kl. 20:00 að staðartíma í Queretaro, sem er kl. 02:00 í nótt að íslenskum tíma.

Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér og einnig sýndur í opinni dagskrá á Sýn Sport

Íslenska landsliðið, sem er að mestu skipað leikmönnum úr Bestu deildinni þar sem leikið er utan glugga, hefur verið við æfingar í Queretaro í vikunni.

Borgin er hátt í 2 þúsund metra yfir sjávarmáli og leikmenn íslenska liðsins hafa fundið vel fyrir þunna loftinu á æfingum í vikunni samkvæmt heimasíðu KSÍ.
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
2. Karl Friðleifur Gunnarsson
4. Damir Muminovic
5. Guðmundur Kristjánsson ('63)
6. Höskuldur Gunnlaugsson
7. Jóhann Berg Guðmundsson ('85)
8. Guðmundur Þórarinsson ('85)
9. Emil Atlason ('63)
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Helgi Guðjónsson ('63)
17. Ágúst Orri Þorsteinsson ('76)

Varamenn:
12. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Baldur Kári Helgason ('85)
13. Haukur Haraldsson
14. Birnir Snær Ingason ('76)
15. Hans Viktor Guðmundson ('63)
16. Daníel Hafsteinsson ('85)
18. Hallgrímur Mar Steingrímsson ('63)
19. Kolbeinn Þórðarson
20. Óskar Borgþórsson ('63)

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Davíð Snorri Jónasson

Gul spjöld:
Ágúst Orri Þorsteinsson ('69)

Rauð spjöld: