Hans Viktor Guðmundsson er staddur í Queretaro í Mexíkó ásamt 19 öðrum leikmönnum íslenska landsliðsins. Liðið spilar vináttuleik við Mexíkó sem hefst 02:00 aðfaranótt fimmtudags að íslenskum tíma.
Hans Viktor er í fyrsta sinn í A-landsliðinu en hann lék á sínum tíma tólf leiki með U21 landsliðinu og skoraði í þeim eitt mark.
Hans er 29 ára hafsent sem gekk í raðir KA frá Fjölni eftir tímabilið 2023. Fjölni mistókst að fara upp úr 1. deildinni það tímabilið. Hann varð bikarmeistari með KA 2024 og var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins.
Fótbolti.net ræddi í síðustu viku við Hallgrím Jónasson - Hadda, þjálfara KA, um Hans Viktor.
Hans Viktor er í fyrsta sinn í A-landsliðinu en hann lék á sínum tíma tólf leiki með U21 landsliðinu og skoraði í þeim eitt mark.
Hans er 29 ára hafsent sem gekk í raðir KA frá Fjölni eftir tímabilið 2023. Fjölni mistókst að fara upp úr 1. deildinni það tímabilið. Hann varð bikarmeistari með KA 2024 og var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins.
Fótbolti.net ræddi í síðustu viku við Hallgrím Jónasson - Hadda, þjálfara KA, um Hans Viktor.
„Mér finnst ótrúlega gaman að sjá hann uppskera með landsliðskalli, hann kom hingað frá Fjölni, hafði alltaf verið í sínu félagi, farið upp og niður með liðinu og í pínu rótleysi. Ég sá snemma að það væri mikið varið í hann, en mér fannst hann svolítið villtur, þurfti aðeins að fara yfir það hvernig ég vil að varnarmenn og hafsentar hugsi. Hann er mjög klár strákur, var fljótur að ná þessu."
„Það fer ekki alltaf mikið fyrir honum í fyrirsögnum, hefur ekki fengið jafnmikla athygli og t.d. Ívar Örn. Hans Viktor hefur vaxið ótrúlega mikið. Meira að segja þegar liðið var að spila illa í fyrstu umferðum mótsins í fyrra, þá var hann alltaf solid. Mér finnst hann búinn að vaxa það mikið að mér finnst eðlilegt að hann hafi verið valinn í landsliðið. Hann er með virðingu allra í klefanum, er jarðbundinn og vinnur vinnuna sína - er mikill liðsmaður. Hans Viktor á þetta fullkomlega skilið," segir Haddi.
„Ég sem fyrrverandi hafsent reyni svolítið að miðla mínu þar - hef sterkar skoðanir á því hvernig hafsentar eiga að hugsa. Sem dæmi þegar Brynjar Ingi (Bjarnason) fór út, hann var hæfileikamikill en var ekki alveg með hausinn á réttum stað að mínu mati sem hafsent. Að sjá hann fara út, Ívar Örn verða eins flottan og hann hefur orðið og núna Hans. Það er gefandi ef ég tala fyrir mig."
Viðurkenning fyrir þá og félagið
Hans Viktor og Hallgrímur Mar Steingrímsson eru fulltrúar KA í landsliðinu. Leikurinn er spilaður utan landsleikjaglugga, KA er að hefja æfingaferð og missa þeir af upphafi hennar. Þjálfarinn segir að það hafi ekki komið til tals að meina þeim að fara í landsliðsferðina.
„Það var aldrei spurning af minni hálfu að þeir fengju að fara, þetta er ótrúleg viðurkenning fyrir þá. Þeir spila ekki gegn Njarðvík og missa af nokkrum dögum í æfingaferðinni. Ég held að þetta, að þeir séu að fara með landsliðinu, gefi okkur miklu meira en að fara banna þeim að fara. Varðandi meiðsli þá geta menn meiðst sama hvort það er í Mexíkó, á Marbella eða hér fyrir norðan. Ég held það sé hættulegt að hafa þær áhyggjur. Þetta er ótrúlega mikil viðurkenning fyrir þá að vera valdir og viðurkenning fyrir KA að vera með tvo stráka í landsliðshóp. Ég held að við fáum ótrúlega peppaða stráka til baka," segir Haddi.
Athugasemdir



