Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ótrúlega góð tilfinning að fá skilaboðin frá þjálfaranum - „Stefnt á þetta frá því ég var sex ára"
'Ég var allavega vongóður um að ég yrði valinn'
'Ég var allavega vongóður um að ég yrði valinn'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í fyrsta sinn í A-landsliðinu.
Í fyrsta sinn í A-landsliðinu.
Mynd: KSÍ
Átti frábæra frammistöðu gegn Samsunspor í Sambandsdeildinni.
Átti frábæra frammistöðu gegn Samsunspor í Sambandsdeildinni.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Ágúst Orri Þorsteinsson er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Mexíkó í vináttuleik seint í kvöld, nánar tiltekið 02:00 aðfaranótt fimmtudags að íslenskum tíma. Spilað er í Queretaro og mætti íslenska liðið til Mexíkó á laugardag. Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net og í opinni dagskrá á SÝN Sport.

Fótbolti.net ræddi við Ágúst Orra, sem er 21 árs sóknarmaður, á mánudag um landsliðsvalið.

„Ólafur Ingi, þjálfarinn minn hjá Breiðabliki, talaði við mig á æfingu og lét mig vita að ég hefði verið valinn í A-landsliðið. Mér leið mjög vel að heyra það, ótrúlega góð tilfinning. Að spila með A-landsliðinu er það sem maður er búinn að vera stefna á síðan maður var sex ára úti á velli, þetta er ótrúlega spennandi."

„Ég held og vona að tilfinningin að klæðast treyjunni verði óraunveruleg. Ég hef náttúrulega bara verið í yngri landsliðum, þetta er á öðru stigi. Við erum að fara spila á móti mjög góðu og sterku liði Mexíkó og fyrir framan fullt af áhorfendum. Þetta verður alvöru veisla. Völlurinn tekur um 35 þúsund manns og það er uppselt, það verða vonandi alvöru læti á leiknum,"
segir Ágúst Orri.

Varstu að búast við því að fá kallið í þennan hóp?

„Ég var allavega vongóður um að ég yrði valinn, sérstaklega eftir hvernig tímabilið endaði í fyrra, í Sambandsdeildinni þ.e.a.s., mér fannst ég standa mig mjög vel. Svo það var geðveikt að vera valinn."

Með Antoni Ara á herbergi
Höskuldur Gunnlaugsson og Anton Ari Einarsson eru liðsfélagar Ágústs hjá Breiðabliki og hann lék með Damir Muminovic á síðasta tímabili. Hvernig er að vera með þessum gaurum í landsliðshóp?

„Það er mjög gaman, þetta eru allt toppmenn þessir Blikar og ég þekki þá mjög vel. Restin af hópnum hefur komið mér á óvart, þetta eru allt alvöru toppmenn hérna. Ég þekki þá voða lítið og hef eiginlega aldrei talað við þá, það er ógeðslega gaman að kynnast nýjum og skemmtilegum strákum sem hafa sama áhugamál og maður sjálfur."

Markvörðurinn Anton Ari er herbergisfélagi Ágústs í ferðinni. „Við félagarnir erum saman, ræðum stóru málin. Jú jú, hann hefur eitthvað sagt mér frá flugumferðarstjórn."

„Það er geðveikt að vera með honum í herbergi. Hann er fáránlega góður leikmaður, maður sér hversu mikill fagmaður hann er á æfingum, gerir allt 100% og ég elska það við hann,"
segir Ágúst.

Ef hann kemur við sögu í kvöld verður það hans fyrsti A-landsleikur. Hann á að baki 31 leik fyrir yngri landsliðin og þrjú mörk.
Athugasemdir
banner