Ísland mætir Mexíkó í æfingaleik aðfaranótt fimmtudags ytra. KSÍ TV ræddi við Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfara, í aðdraganda leiksins.
„Það er langt liðið síðan við spiluðum við Úkraínu, þetta er langur tími fyrir mig persónulega. Gleði að vera kominn aftur út á völl með hóp af góðum leikmönnum, góðar æfingar og góðir fundir," sagði Arnar.
Það er ekki opinnber landsleikjagluggi svo leikmenn í stærstu deildum heims eru ekki til taks. Hópurinn er skipaður að mestu leyti leikmönnum úr Bestu deildinni.
„Þetta er landsleikur, alveg sama hvort bestu leikmennirnir eru að mæta. Við viljum standa okkur vel, ná í góð úrslit og sýna góða frammistöðu."
„Ég leyfi mér að vona að þetta hafi gríðarlega mikla þýðingu fyrir þá. Ekki bara af því þeir eru að koma fram fyrir hönd þjóðarinnar heldur líka Bestu deildina. Þetta eru elítu leikmenn úr okkar sterkustu deild og gaman fyrir þá að máta sig gegn sterku liði Mexíkó."
Arnar býst við erfiðum leik en vonast til að sjá frammistöðu eins og gegn Frakklandi í undankeppnii HM þar sem Ísland gerði 2-2 jafntefli heima og tapaði naumlega úti.
Athugasemdir


