Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
Í BEINNI
Vináttulandsleikur
Haítí
LL 1
1
Ísland
Haítí
1
1
Ísland
0-1 Gylfi Þór Sigurðsson '61
Wilson Isidor '88 1-1
31.03.2026  -  17:35
Toronto
Vináttulandsleikur
Aðstæður: Vor í lofti
Dómari: Carly Shaw-MacLaren (Kanada)
Áhorfendur: Leikið án áhorfenda
Maður leiksins: Gylfi Þór Sigurðsson
Byrjunarlið:
12. Alexandre Pierre (m)
4. Ricardo Adé
5. Hannes Delcroix
8. Martin Expérience
9. Duckens Nazon ('64)
10. Jean-Ricner Bellegarde ('84)
11. Louicius Don Deedson ('64)
14. Leverton Pierre ('37)
15. Ruben Providence
18. Wilson Isidor
22. Jean-Kévin Duverne ('84)

Varamenn:
1. Johny Placide (m)
23. Josué Duverger (m)
2. Wilguens Paugain ('84)
3. Delentz Pierre
6. Carl-Fred Sainte ('84)
7. Derrick Etienne Jr. ('64)
13. Duke Lacroix
16. Woobens Pacius
17. Danley Jean Jacques
19. Yassine Fortune
20. Frantzdy Pierrot ('64)
21. Josué Casimir
24. Woodensky Pierre ('37)

Liðsstjórn:
Sebastien Migne (Þ)

Gul spjöld:
Jean-Kévin Duverne ('13)
Jean-Ricner Bellegarde ('80)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Engu bætt við. Þetta var súrt.

Mynd: EPA

Mynd: EPA
88. mín MARK!
Wilson Isidor (Haítí)
Haítí jafnar Wilson Isidor, leikmaður Sunderland, jafnar metin hérna rétt áður en uppbótartíminn fer af stað.

Þarna litu varnarmenn Íslands ekki vel út.

Mynd: EPA
85. mín
Brynjólfur skorar en markið er dæmt af vegna rangstöðu. Hárréttur dómur.
85. mín
Ruben Providence með fast skot sem Hákon Rafn á ekki í vandræðum með.
84. mín
Inn: Carl-Fred Sainte (Haítí) Út:Jean-Ricner Bellegarde (Haítí)
84. mín
Inn:Wilguens Paugain (Haítí) Út:Jean-Kévin Duverne (Haítí)
83. mín
Inn:Mikael Egill Ellertsson (Ísland) Út:Gylfi Þór Sigurðsson (Ísland)
83. mín
Inn:Hákon Arnar Haraldsson (Ísland) Út:Arnór Sigurðsson (Ísland)
83. mín
Sókn Haítí aðeins að aukast. Þeim hefur þó ekki tekist að skapa sér nein álitleg færi síðustu mínútur.
82. mín
Leikmenn Haítí vilja fá vítaspyrnu, hendi, en ekkert dæmt. Boltinn fór í lærið á Jóni Degi.
81. mín
Logi skallar boltann aftur fyrir og Haítí fær hornspyrnu. Það kemur ekkert úr þessari hornspyrnu.
80. mín Gult spjald: Jean-Ricner Bellegarde (Haítí)
Fer harkalega í Jón Dag.
79. mín
Ég ætla að stökkva niður og gera mig kláran í viðtöl. Guðmundur Aðalsteinn siglir þessari lýsingu í höfn.
78. mín
Derrick Etienne Jr. með vandræðalega lélegt skot úr flottri stöðu. Ísland vildi aukaspyrnu í aðdragandanum. Andri Fannar liggur á grasinu og sjúkraþjálfararnir hlaupa inn á völlinn.
76. mín
Brynjólfur Willumsson flaggaður rangstæður.
75. mín
Brotið á Arnóri Sigurðssyni á hægri kantinum og Ísland fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika. Gylfi með spyrnuna en Haítí hreinsar frá.
73. mín
Mikael Anderson þarf aðstoð frá sjúkraþjálfurum þegar hann fer haltrandi af velli.

Mynd: EPA
72. mín
Inn: Brynjólfur Willumsson (Ísland) Út:Mikael Anderson (Ísland)
72. mín
Inn:Ísak Bergmann Jóhannesson (Ísland) Út:Stefán Teitur Þórðarson (Ísland)
72. mín
Inn:Jón Dagur Þorsteinsson (Ísland) Út:Kristall Máni Ingason (Ísland)
Þreföld skipting hjá Íslandi.
71. mín
Mikil ástríða í fréttamönnunum frá Haítí sem hafa tuðað samfleytt í fimm mínútur út af einhverri rangstöðu áðan.
70. mín
Leikurinn farinn aftur af stað og Aron heldur leik áfram.
68. mín
Haíti með máttlausan skalla framhjá. Aron Einar liggur eftir í grasinu og þarf aðhlynningu. Fékk högg á öxlina í baráttunni við Wilson Isidor.
67. mín
Gylfi heldur betur að minna á sig fyrir komandi landsliðsverkefni, hann er kominn með 28 landsliðsmörk í 85 leikjum.

   31.03.2026 18:58
Gylfi núna kominn tveimur mörkum fram úr næstu mönnum
64. mín
Inn:Frantzdy Pierrot (Haítí) Út:Duckens Nazon (Haítí)
64. mín
Inn:Derrick Etienne Jr. (Haítí) Út: Louicius Don Deedson (Haítí)
61. mín MARK!
Gylfi Þór Sigurðsson (Ísland)
Stoðsending: Logi Tómasson
GYLFI BRÝTUR ÍSINN!!! Logi Tómasson kemur upp vinstrsa megin og tíar boltann snyrtilega upp fyrir Gylfa sem er aleinn í teignum og klárar með skoti í fyrsta! Með vinstri í vinstra hornið.

Vel gert hjá Stefáni Teiti í aðdragandanum, hann átti langa og hnitmiðaða sendingu á Loga.
61. mín
Haítí fær skyndilega dauðafæri Löng sending fram og Duckens Nazon sleppur, Stefán Teitur á eftir honum, en skotið frá Nazon framhjá.
60. mín
Allt afskaplega rólegt, þjálfararnir að undirbúa skiptingar.
54. mín
Það þarf einhver að taka á skarið og ná að brjóta þetta upp, leikurinn heldur áfram í sama takti og í fyrri hálfleik.
52. mín
Logi Tómasson reynir að koma boltanum á Gylfa sem er í góðri stöðu við vítateigsendann en því miður kemst varnarmaður á milli.
50. mín
Haíti með sendingu inn í teig sem breytir um stefnu af varnarmanni og endar svo í höndunum á Hákoni Rafni.
46. mín
Inn:Andri Fannar Baldursson (Ísland) Út:Kristian Hlynsson (Ísland)
Andri Fannar kemur inn í hálfleik Seinni hálfleikur hafinn.
45. mín
Rólegur leikur fyrir markverðina Fátt um fína drætti og lítið reynt á Alexandre Pierre og Hákon.
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik Í lok fyrri hálfleiksins átti Haítí skot úr teignum en í varnarmann, nánar tiltekið Hjört Hermannsson. Annars voru hápunktar þessa fyrri hálfleiks alveg afskaplega fáir.
43. mín
Gylfi með fyrirgjöf úr aukaspyrnu frá hægri en Haítí nær að koma knettinum frá.
41. mín
Úlfur skýtur framhjá Jean-Ricner Bellegarde, leikmaður Wolves, tekur skot fyrir utan teig en framhjá markinu.
38. mín
Haíti með marktilraun Skot utan teigs frá Don Deedson. Boltinn beint á Hákon sem á ekki í nokkrum vandræðum með að handsama knöttinn.
37. mín
Inn:Woodensky Pierre (Haítí) Út:Leverton Pierre (Haítí)
Pierre skipting
35. mín
Ágætis spil hjá íslenska liðinu en menn ekki alveg nægileg vel tengdir í teignum og boltinn hrekkur afturfyrir í markspyrnu. Leikurinn aftur stopp þar sem leikmaður Haíti þarf aðhlynningu, það er Bellegarde. Einn þeirra allra besti maður.
33. mín
Leikurinn alls ekki verið þrumustuð hingað til Það verður að segjast eins og er. Ísland þó aðeins betri aðilinn.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Skot yfir Ísland vann boltann af Haítí á hættulegum stað. Stefán Teitur freistar gæfunnar og lætur vaða en hittir boltann ekki sérlega vel og hann fer örugglega yfir markið.
26. mín
Shaw-MacLaren dómari mikið að nota flautuna núna. Leikmaður Haítí þarf aðhlynningu og leikurinn stopp.
24. mín
Mikael Anderson dæmdur brotlegur og Haítí fær aukaspyrnu á ljómandi fínum stað, þó aðeins of langt frá til að vera augljóst skotfæri.

Jean-Ricner Bellegarde er þó bjartsýnn og lætur vaða en engin hætta. Vel yfir.
23. mín
Fyrri hálfleikur hálfnaður Ísland betra liðið en við höfum enn ekki náð tilraun á rammann. Alexandre Pierre ekki þurft að gera neitt.
21. mín
Arnór með lipur tilþrif og leikur á tvo leikmenn Haítí, lendir svo í árekstri og fer niður en ekki dæmt. Arnór vildi aukaspyrnu þarna.
19. mín
Dagur Dan með fyrirgjöf á fjærsvæðið en þar er engin blá treyja.
16. mín
KRISTALL! Gylfi með fyrirgjöf og Kristall kastar sér í boltann í teignum en skallar yfir!
15. mín
Stefán Teitur með sendingu á Mikael Anderson sem er að sleppa... en flaggaður rangstæður. Þetta var mjög tæpt. Miðað við viðbrögð Mikaels þá fannst honum þetta ekki vera réttur dómur. Ekkert VAR í dag.
13. mín Gult spjald: Jean-Kévin Duverne (Haítí)
Kristall Máni Ingason liggur í grasinu eftir að Haítímaður braut á honum. Var alltof seinn og Kristall öskraði hressilega. Ísland fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika frá vinstri.
10. mín
Haítí með marktilraun Wilson Isidor með fyrstu marktilraun Haítí. Tekur skot úr erfiðri stöðu í fyrsta eftir fyrirgjöf frá hægri. Skotið framhjá.
8. mín
Ísland mun meira með boltann hér í upphafi og Gylfi er áberandi. Hann reynir sendingu inn í teiginn ætlaða Mikael Anderson en aðeins of föst og þetta endar í markspyrnu.
6. mín
Gylfi lætur vaða fyrir utan teig Arnór Sigurðsson rennir boltanum á Gylfa sem lætur vaða rétt fyrir utan teiginn. Skotið meðfram grasinu og framhjá.

Stuttu seinna er Kristian Hlyns flaggaður rangstæður eftir að hafa komist í hættulega stöðu.
3. mín
Við erum með bakverði sem elska að taka þátt í sóknarleiknum svo Stefán Teitur dettur á tíðum niður eins og þriðji miðvörðurinn. Það má búast við miklu flæði hjá fremstu mönnum Íslands miðað við uppstillinguna.
2. mín
Ísland byrjar á fínu spili og Mikael Anderson á fyrirgjöf meðfram jörðinni sem Ricardo Adé varnarmaður Haítí hreinsar frá.
1. mín
Leikur hafinn
17:37 Þetta er komið af stað Mikael Anderson sparkar þessu í gang. Ísland í bláu, Haítí í hvítu. Vonandi verða veðurguðirnir okkur hliðhollir næstu tvo tímana eða svo!
Fyrir leik
17:35 Liðin fara úr upphitunargallanum og leikmenn Íslands stilla sér upp í liðsmyndatöku fyrir Mumma Lú og Arnar Laufdal.
Fyrir leik
17:34 Seven Nation Army með The White Stripes í spilaranum. Gott val.
Fyrir leik
17:29 Leikmenn eru komnir út á völl í 5 mínútna upphitun.
Fyrir leik
17:28 Fáum ekki að syngja þjóðsöngvana! Fjölmiðlafulltrúi að tilkynna hér að þegar leikmenn snúi út á völlinn verði fimm mínútna upphitun og svo beint í leikinn sjálfan. Þjóðsöngvunum verður sleppt.
Fyrir leik
17:25 Aðili úr þjálfarateymi Haítí er að raða upp keilum á vellinum. Stutt upphitun leikmanna á að hefjast eftir 3 mínútur.
Fyrir leik
17:21 Samkvæmt niðurtalningu á vellinum ættu leikmenn að snúa aftur út á völl í stutta upphitun eftir 8 mínútur. Á meðan ég bíð held ég áfram að glensa í kollegum mínum frá Haítí og jafnvel drekk enn einn kaffibollann.
Fyrir leik
Nú stefnt á að leikurinn hefjist sirka 17:35 Ef það kemur þriðja eldingaviðvörunin þá verður leiknum aflýst samkvæmt upplýsingum sem við vorum að fá frá KSÍ.
Fyrir leik
17:04 Pistill Víðis Sigurðssonar: Meðan við bíðum eftir að leikur geti hafist þá er hér pistill sem blaðamaðurinn þaulreyndi Víðir Sigurðsson var að birta á Facebook síðu sinni:

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Miðað við styrkleikalista FIFA á að vera lítill munur á landsliðum Íslands og Haití sem eru í þann veginn að hefja vináttulandsleik karla í fótbolta í Toronto í Kanada. Á heimslistanum situr Ísland í 75. sæti en Haití er átta sætum neðar, í 83. sætinu.

Haití er hins vegar á leiðinni á HM 2026 í sumar, í annað sinn í sögu þjóðarinnar. Samkvæmt áðurnefndum styrkleikalista á Haití að vera þriðja besta landslið Karíbahafsins, á eftir Jamaíku (69. sæti) og Curacao (82. sæti).

Curacao mun einnig leika á HM í sumar og Jamaíka spilar einmitt í kvöld úrslitaleik í umspili um HM-sæti gegn Lýðveldinu Kongó þar sem fyrrverandi lærisveinar Heimis Hallgrímssonar eiga möguleika á að tryggja sér HM-farseðlana.

Sérfræðingar Sýnar töluðu Haití full mikið niður fyrir leikinn í dag og tíndu þar til smáþjóðir sem Haití hafði sigrað í undankeppninni. Þeim láðist hins vegar að geta þess að í úrslitariðli Norður- og Mið-Ameríku hirti Haití HM-sætið á kostnað Kosta Ríka og Hondúras sem hafa verið í hópi sterkustu liða svæðisins.

Haití teflir m.a. fram tveimur leikmönnum úr ensku úrvalsdeildinni og mörgum fleirum úr sterkum deildum og Ísland mætir því hörkuliði í Toronto, liði þar sem allir eru að slást um sæti í hópnum sem fer á heimsmeistaramótið í sumar.

Haiti er aðeins þriðja þjóðin úr Karíbahafinu sem Ísland mætir í landsleik karla í fótbolta. Sem er dálítið merkilegt því alls er 31 þjóð úr þessum heimshluta innan vébanda Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, og af þessu svæði koma flestar þjóðirnar í Concacaf, Knattspyrnusambandi Norður- og Mið-Ameríku.

Áður hefur Ísland fjórum sinnum mætt liði Bermúda í vináttulandsleikjum og einu sinni liði Trínidad og Tóbagó. Þar með er það upptalið en lítum aðeins betur á þessi samskipti Íslendinga við eyþjóðirnar sólríku.

Ísland átti góð samskipti við Bermúda á sjöunda áratug síðustu aldar og þjóðirnar mættust þrisvar, fyrst árið 1964 og svo tvisvar árið 1969.

Ísland vann fyrsta leikinn, 4-3, á Laugardalsvellinum sumarið 1964 þar sem KR-ingarnir Ellert B. Schram og Þórólfur Beck skoruðu tvö mörk hvor.

Bermúdamenn mættu aftur í Laugardalinn fimm árum síðar, 1969, og Ísland vann aftur, nú 2-1. Ellert var aftur á skotskónum, sem og Skagamaðurinn Matthías Hallgrímsson.

Íslendingar endurguldu Bermúdamönnum heimsóknina og mættu þeim í Hamilton, höfuðstað eyjarinnar, sama haust. Þá hafði Bermúda betur, 3-2, en Matthías skoraði aftur, sem og Björn Lárusson, félagi hans frá Akranesi.

Síðan leið 21 ár en árið 1990 mætti íslenska landsliðið aftur til Hamilton og vann þá öruggan sigur, 4-0. Pétur Pétursson úr KR skoraði tvö mörk, Pétur Ormslev úr Fram eitt og Kjartan Einarsson úr KA eitt.

Frá þeim leik og þar til Ísland og Haití mættust í Kanada í dag hafði Ísland aðeins einu sinni leikið gegn liði úr Karíbahafinu. Það var snemma árs 2006 þegar íslenska liðið fór til London og lék þar gegn Trínidad og Tóbagó á Loftus Road, heimavelli Queen’s Park Rangers. Lið TT var þá á leið í lokakeppni HM í fyrsta sinn og stemningin var gríðarleg með liðinu, eyjaskeggjar búsettir í London troðfylltu völlinn og fögnuðu vel 2-0 sigri sinna manna. Dwight Yorke, sem margir muna eftir sem leikmanni Manchester United, skoraði bæði mörkin.

Þegar sá sem þetta skrifar mætti á Loftus Road til að fjalla um leikinn á sínum tíma gekk hann inn í hreinræktaða þjóðhátíðarstemmningu fólksins frá Trínidad og Tóbagó fyrir utan leikvanginn þar sem dans og söngur settu skemmtilegan svip á aðdraganda leiksins.
Fyrir leik
16:59 Önnur eldingaviðvörun! Liðin voru búin að stilla sér upp að búa sig undir þjóðsöngvana en halda nú skyndilega aftur til búningsklefa.

Hvenær leikurinn mun hefjast veit ég ekki....
Fyrir leik
16:57 Liðin eru loks að ganga til vallar Þá er komið að því að þjóðsöngvarnir verði leiknir fyrir framan tóman völl. Minnir óneitanlega á Covid tímabilið þegar veiran sú skæða ógnaði heimsbyggðinni.

Haítí er með skemmtilegan þjóðsöng sem myndi sóma sér vel á Þjóðlagahátíðinni í Fjallaborg.

„La Dessalinienne“ heitir söngurinn og er til heiðurs byltingarleiðtoganum og fyrsta stjórnanda Haítí, Jean-Jacques Dessalines.

Upphafstextinn í lauslegri íslenskri þýðingu: „Fyrir landið, fyrir forfeðurna - Göngum saman, göngum saman - Hleypum engum svikurum í okkar raðir!“

Fyrir leik
16:49 Ég er í mikilli undirtölu Ég er eini íslenski fjölmiðlamaðurinn hér í fréttamannastúkunni á meðan fjölmiðlamennirnir frá Haítí eru um 20. Þeir eru í miklum gír og læti í þeim, margir hverjir með húfur og trefla merkta Haítí og greinilega mikill HM fílíngur í þeim. Bara gaman.

Liðin eru að halda inn úr upphitun, styttist í að leikurinn geti loks hafist.
Fyrir leik
16:35 Liðin eru mætt aftur út í upphitun Eldingaviðvöruninni hefur verið aflétt. Stefnir í að leikurinn geti hafist klukkan 17.

Mynd: KSÍ

Hákon Rafn Valdimarsson byrjar í markinu.
Fyrir leik
Skilaboð frá Epic:
Mynd: KSÍ

Miklar breytingar hjá Íslandi og ólíkt Kanadaleiknum munu þeir keyra á þá, þetta verður opinn leikur að ég held, yfir 3 mörk er á frábærum stuðli á Epic, 2,49 takk fyrir.
Fyrir leik
Stefnt á að leikurinn hefjist 17:00 (13:00 að staðartíma) Samkvæmt upplýsingum frá Ómari Smárasyni þá munu leikmenn fá 15 mínútur til að hita upp, svo 3 mínútur í klefanum áður en kemur að þjóðsöngvum. Áætlað er að hefja leik 17:00.
Fyrir leik
Eldingaviðvörun og allir kallaðir inn úr upphitun!
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Í miðri upphitun fyrir leikinn kemur skyndilega eldingaviðvörun og leikmönnum er skipað að fara inn í klefa af öryggisráðstöfunum! Upphitun hefst aftur 16:34 (12:34 að staðartíma).

Það er því ljóst að það verða tafir á því að leikurinn fer af stað. Ekki er vitað hvenær hann mun hefjast.
Fyrir leik
Spilar sinn fyrsta landsleik síðan 2024 Arnór Sigurðsson hefur ekki spilað í íslenska búningnum síðan í september 2024 en hann hefur gengið í gegnum erfið meiðsli. Hann hefur verið flottur með Malmö í vor og spennandi að sjá hann í sviðsljósinu í dag. Ég spjallaði við Arnór hér í Toronto á dögunum og má sjá hlekk á það viðtal hér að neðan.

Mynd: KSÍ

   27.03.2026 11:40
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Fyrir leik
Dómari leiksins: Carly Shaw-MacLaren (Kanada)
   31.03.2026 15:57
Kvendómari flautar leik Haítí og Íslands
Fyrir leik
Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni í byrjunarliði Haíti
Mynd: EPA

Wilson Isidor, sóknarmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, spilar sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Haítí. Isidor er 25 ára og fæddist í Frakklandi en fékk nýlega grænt ljós á að spila fyrir Haítí en afi hans er frá eyríkinu.

Isidor lék fyrir yngri landslið Frakkland upp í U20 en sá ekki fram á að geta brotið sér leið inn í ógnarsterkt A-landslið þjóðarinnar.

Isidor lék sinn fyrsta landsleik fyrir Haítí þegar hann kom af bekknum í 1-0 tapi gegn Túnis á laugardaginn en Haítí verður með á HM í sumar.

Hann fór feikilega vel af stað með Sunderland á þessu tímabili og var kominn með fjögur mörk eftir níu umferðir. Hann hefur hinsvegar ekki skorað síðan og mínútunum farið fækkandi.

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni spila fyrir Haítí, á síðasta ári fékk Jean-Ricner Bellegarde, miðjumaður Wolves, keppnisleyfi með þjóðinni en hann fæddist einnig í Frakklandi.
Fyrir leik
Aron Einar með fyrirliðabandið og Gylfi byrjar líka
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er nostalgíufílingur frá gyllkynslóðinni í byrjunarliði Íslands...
Fyrir leik
Byrjunarlið íslands - Tíu breytingar Það er aðeins Kristian Hlynsson sem byrjar báða leikina.


Haítí hefur opinberað sitt byrjunarlið en ekki Ísland
Fyrir leik
Leikmenn eru mættir út á völl Menn að skoða aðstæður áður en þeir fara inn í klefa og klæða sig í takkaskóna. Byrjunarliðin ættu að fara að detta í hús á hverri mínútu...

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Fyrir leik
Vor í lofti! Það er miklu hlýrra en var á laugardaginn, skyndilega er kominn um fjórtán gráðu hiti. Miklar sveiflur í hitastiginu og leikmönnum ætti ekki að verða kalt í dag!
Fyrir leik
Viðtal við Ísak Bergmann Jóhannesson fyrir leik:
Fyrir leik
Viðtal við Jón Dag Þorsteinsson fyrir leik:
Fyrir leik
Sturluð staðreynd Þjálfari Haítí er franskur og heitir Sebastien Migne. Hann náði því afreki að stýra Haítí á HM án þess að hafa nokkurn tíma komið til landsins.

Mynd: EPA

Fyrir leik
Sögulegur leikur
Mynd: EPA

Haítí lék vináttulandsleik hér í Toronto á laugardag. Liðið tapaði 1-0 gegn Túnis en Sebastian Tounekti, leikmaður Celtic, skoraði sigurmark Túnisa.

Leikur Íslands og Haítí í dag verður sögulegur fyrir þær sakir að þjóðirnar hafa aldrei áður og raunar hefur ekkert íslenskt fótboltalandslið áður mætt Haítí.

Haítí er eins og Kanada að búa sig undir þátttöku á HM í sumar en liðið er í 82. sæti heimslista FIFA, átta sætum neðar en Ísland. Enginn landsliðsmaður Haítí býr á Haítí en þetta er í annað sinn sem þjóðin kemst á HM, hitt skiptið var 1974.
Fyrir leik
Tómar stúkur
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Það var góð stemning og um 30 þúsund manns á leiknum gegn Kanada á laugardag en umgjörðin verður allt öðruvísi gegn Haítí þó leikið verði á sama velli í Toronto.

Leikurinn er klukkan 12:30 að staðartíma á virkum degi og var miðasalan var það dræm að ekki var talið að það stæði undir kostnaði að selja inn á leikinn. Því var ákveðið að þessi leikur í dag verði áhorfendalaus.

Orri Steinn segir verkefnið spennandi þó það verði allt öðruvísi andrúmsloft.

„Skemmtilegur leikur, ekki jafn mikið af fólki en við þurfum að taka vel á þeim og vera klárir. Það var meiri stemning í þessum leik (gegn Kanada) en þá er þetta líka komið yfir til okkar að skapa stemninguna innávið. Við þurfum að taka því mjög alvarlega, Haítí er með mjög gott lið og það verður spennandi verkefni," segir Orri Steinn.
Fyrir leik
Vantar hreinræktaðar níur „Ég geri nú ráð fyrir því að við leyfum einhverjum að fá mínútur. Sumir þurfa kannski að hvíla í næsta leik út af aðstæðum sem ég talaði um í aðdraganda leiksins varðandi meiðsli og mikils leikjaálags. Við munum klárlega gera einhverjar breytingar," sagði Arnar Gunnlaugsson eftir leikinn gegn Kanada.

Orri Steinn Óskarsson skoraði bæði mörk Íslands gegn Kanada en hann hefur misst talsvert úr á þessu tímabili vegna meiðsla.

„Okkur vantar kannski hreinræktaðar 'níur' í þessum glugga af ástæðum sem eru vel kunnar. Menn eru að spila með U21 landsliðinu og sumir eru meiddir," segir Arnar.

Andri Lucas Guðjohnsen er á meiðslalistanum og þá er bróðir hans Daníel Tristan í U21 hópnum og þeir því meðal leikmanna sem ekki eru í A-landsliðshópnum í þessum glugga.

   28.03.2026 20:48
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Fyrir leik
Það er komið að seinni vináttulandsleiknum hér í Toronto Góðan og gleðilegan daginn. Velkomin í beina textalýsingu frá vináttulandsleik Haítí og Íslands sem fram fer í Torontoborg í Kanada. Á sama velli mættu strákarnir okkar liði Kanada á laugardag og þá enduðu leikar 2-2. Allt um þann leik hér:



Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Byrjunarlið:
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
2. Logi Tómasson
3. Hjörtur Hermannsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson ('83)
14. Kristall Máni Ingason ('72)
15. Dagur Dan Þórhallsson
16. Stefán Teitur Þórðarson ('72)
17. Aron Einar Gunnarsson
18. Mikael Anderson ('72)
20. Kristian Hlynsson ('46)
21. Arnór Sigurðsson ('83)

Varamenn:
1. Elías Rafn Ólafsson (m)
13. Anton Ari Einarsson (m)
4. Guðlaugur Victor Pálsson
5. Sverrir Ingi Ingason
6. Andri Fannar Baldursson ('46)
7. Hákon Arnar Haraldsson ('83)
8. Ísak Bergmann Jóhannesson ('72)
9. Orri Steinn Óskarsson (f)
11. Jón Dagur Þorsteinsson ('72)
19. Mikael Egill Ellertsson ('83)
22. Brynjólfur Willumsson ('72)
23. Hörður Björgvin Magnússon

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Davíð Snorri Jónasson
Fjalar Þorgeirsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: