Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 17:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Þetta er bara mjög góð spurning"
Eimskip
Mynd: Mummi Lú
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjörtur Hermannsson spilar í dag sinn 29. landsleik en hann er í byrjunarliði Íslands sem mætir Haítí í vináttuleik í dag. Þetta er hans fyrst landsleikur í eitt og hálft ár eða frá því að hann spilaði leiki gegn Tyrklandi og Svartfjallalandi í Þjóðadeildinni í september 2024.

Hann var kallaður inn í landsliðshópinn í nóvember en hafði fyrir það ekki verið í hópum Arnars Gunnlaugssonar.

Í upphitun á SÝN Sport fyrir leikinn, sem er nýhafinn, var rætt um stöðu Hjartar í hópnum og liðinu.

Lestu um leikinn: Haítí 1 -  1 Ísland

„Það er búið að vera miðvarða hallæri, Hjörtur er búinn að vera í hóp á stórmótum og fleira. Kannski margir sem bjuggust við því að hann myndi verða byrjunarliðsmiðvörður. Af hverju hefur það ekki gerst?" spurði þáttarstjórnandinn Kjartan Atli Kjartansson.

„Þetta er bara mjög góð spurning. Hann kemur inn í þetta ungur og er náttúrulega lengi á bekknum, spilar ekki neitt fyrstu 5-6 árin eða eitthvað (í landsliðinu). En svo fær hann sénsinn og mér fannst hann byrjaður að standa sig ágætlega. En svo er hann búinn að vera mikið meiddur líka og misst úr verkefni hér og þar. Svo eru þjálfaraskipti, þau hafa verið svolítið tíð, einhverjir fíla hann ekki og einhverjir fíla hann. Hann hefur heldur betur eitthvað að sanna í þessum leik," sagði fyrrum landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason.

Hjörtur er 31 árs og spilar með Volos í grísku úrvalsdeildinni.
Slapp
banner
banner