Í dag leikur íslenska landsliðið gegn Haítí í seinni vináttulandsleik gluggans. Leikurinn hefst 16:30 að íslenskum tíma og verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Það er kanadískt dómarateymi á leiknum og dómarinn er kvenkyns, hin 29 ára gamla Carly Shaw-Maclaren sem hefur verið alþjóðlegur dómari síðan 2022.
Það er kanadískt dómarateymi á leiknum og dómarinn er kvenkyns, hin 29 ára gamla Carly Shaw-Maclaren sem hefur verið alþjóðlegur dómari síðan 2022.
Lestu um leikinn: Haítí 0 - 0 Ísland
Gerard-Kader Lebui og Twayne Anderso eru aðstoðardómarar og Mathieu Souare fjórði dómari.
Dómgæslan var talsvert í brennidepli þegar Ísland mætti Kanada síðasta laugardag en vonandi verða Shaw-Maclaren og hennar teymi með allt í teskeið í dag.
Athugasemdir


