Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 17:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarni Guðjóns: Að hann yrði atvinnu- og landsliðsmaður kom ekki upp í hugann
Eimskip
Logi Tómasson
Logi Tómasson
Mynd: Mummi Lú
Logi Ólafsson og Bjarni Guðjónsson
Logi Ólafsson og Bjarni Guðjónsson
Mynd: Víkingur
Logi Tómasson er í byrjunarliði Íslands sem mætir Haítí í vináttulandsleik í dag. Leikurinn átti að hefjast 16:30 en hefur verið seinkað vegna þess að það hafa verið eldingar í nálægð við BMO leikvanginn í Toronto.

Á SÝN Sport var rætt um Loga og möguleika hans á því að slá út Mikael Egil Ellertsson í stöðu vinstri bakvarðar í landsliðinu. Mikael hefur leyst stöðuna í undanförnum leikjum.

Lestu um leikinn: Haítí 0 -  1 Ísland

„Mikael hefur gert voða fá mistök upp á síðkastið, það voru nokkrir leikir sem Logi átti sem voru ekki nógu sterkir af hans hálfu og þ.a.l. tapaði hann stöðunni. Því fleiri sterkar frammistöður sem hann sýnir því meira traust kemur til hans. Arnar þekkir Loga inn og út, veit af hans gæðum," sagði Kári Árnason í upphitun fyrir landsleikinn.

„Á einhverju átti maður von, en ég var að aðstoða Loga (Ólafsson) þegar Logi (Tómasson) var að stíga sín fyrstu skref. Að hann yrði atvinnumaður og landsliðsmaður er ekki eitt af því sem kom upp í hugann," sagði Bjarni Guðjónsson sem var aðstoðarþjálfari Víkings 2017 þegar Logi var að koma upp í meistaraflokk. Þá var Logi Ólafsson þjálfari Víkings.

„Ég myndi segja að þetta hafi verið svona fimm ára þrotlaus vinna sem varð til þess (að hann komst á þennan stað)," sagði Kári sem spilaði með Loga hjá Víkingi.

„Ég man að Logi Ólafsson sagði að Logi (Tómasson) væri efnilegur en væri að velta því fyrir sér að verða tónlistarmaður og að hann vissi ekki á hvaða vegferð þessi drengur væri. Hann hefur farið fram úr okkar væntingum," sagði Bjarni.
Slapp