Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Í BEINNI
Besta deildin
Stjarnan
LL 3
2
FH
Stjarnan
3
2
FH
Birnir Snær Ingason '25 1-0
1-1 Kjartan Kári Halldórsson '42 , víti
1-2 Tómas Orri Róbertsson '60
Guðmundur Baldvin Nökkvason '65 2-2
Andri Rúnar Bjarnason '86 3-2
17.04.2026  -  20:15
Samsungvöllurinn
Besta deildin
Aðstæður: Skýjað og létt gola. Teppið í toppstandi
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 1305
Maður leiksins: Ibrahim Turay (Stjarnan)
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
7. Örvar Eggertsson ('76)
8. Jóhann Árni Gunnarsson
11. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson ('76)
21. Ibrahim Turay
22. Emil Atlason ('36)
23. Benedikt V. Warén ('72)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason (m)
2. Heiðar Ægisson ('76)
10. Samúel Kári Friðjónsson ('72)
14. Bjarki Hauksson
17. Haukur Örn Brink
20. Alpha Conteh ('76)
30. Markús Andri Daníelsson Martin
36. Arnar Breki Björnsson
99. Andri Rúnar Bjarnason ('36)

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Alex Þór Hauksson
Rajko Stanisic
Egill Atlason
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Hrannar Bogi Jónsson
Orian Burzic

Gul spjöld:
Guðmundur Kristjánsson ('33)
Örvar Eggertsson ('41)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stjarnan tekur sigurinn hér í Garðabæ og byrjar mótið með fullt hús stiga eftir tvo leiki. Sanngjarn sigur sem hefði mögulega átt að vera stærri.

Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
94. mín
Skorar næstum úr ómögulegu færi! Birnir nær boltanum við vinstra hornfánann, hann gefur hann á Andra sem fer framhjá einum og keyrir inn á teig. Færið er rosalega þröngt en skotið hans fer bara rétt yfir markið.
93. mín Gult spjald: Gils Gíslason (FH)
Árni kemur út að sópa frá marki og Gils kemur á fleygiferð aðeins of seinn og keyrir á hann.
91. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti fjórar mínútur
89. mín
Vondur árekstur! Stjarnan með aukaspyrnu sem Ísak Óli ætlar að reyna skalla frá á sama tíma og Jökull ætlar að lemja boltann frá. Þeir skella þá saman og Jökull þarf aðhlynningu eftir það.
86. mín MARK!
Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
Stoðsending: Samúel Kári Friðjónsson
ER ÞETTA SIGURMARKIÐ!!? Frábær sending inn í teig frá djúpri stöðu og Andri er algjör refur inn í teig og pikkar boltanum fram hjá Jökli!

Stjarnan verið töluvert betri aðilinn og eru að vinna sér þetta inn.
85. mín
Laus bolti á hægri kantinum og Gils er ekkert eðlilega fljótur. Hann stingur menn af og nær að koma boltanum fyrir en það er enginn inn í teig. Baldur Kári nær svo boltanum á jarðri teigsins og tekur skotið en framhká.
84. mín
Inn:Aron Jónsson (FH) Út:Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Hafsent inn á fyrir hættulegasta sóknarmann FH. Það á að verja stigið.
84. mín
Leikurinn spilast alfarið á vallarhelmingi FH þessar síðustu mínútur. Stjarnan ætlar sér að vinna þennan leik.
78. mín
Hátt yfir Andri tíar upp boltann fyrir Jóhann Árna sem ætlar að taka þrumuskot úr góðu færi en boltinn í varnarmann. Hann berst svo til Turay sem tekur skotið en hátt yfir.
77. mín
Heiðar Ægisson sem var að koma inn á er að spila sinn fyrsta leik í langan tíma eftir erfið meiðsli.
76. mín
Inn:Alpha Conteh (Stjarnan) Út:Örvar Eggertsson (Stjarnan)
76. mín
Inn:Heiðar Ægisson (Stjarnan) Út:Daníel Finns Matthíasson (Stjarnan)
Daníel Finns leggst í grasið, eitthvað þjáður og fær aðhlynningu.
74. mín
Stjarnan með hornspyrnu sem Daníel tekur. Boltinn kemur á fjær þar sem Kjeldsen nær skallanum en framhjá.
72. mín
Inn:Samúel Kári Friðjónsson (Stjarnan) Út:Benedikt V. Warén (Stjarnan)
72. mín
Kjartan Kári með fast skot af löngu færi en Árni er vel staðsettur og grípur boltann.
70. mín
Inn:Arngrímur Bjartur Guðmundsson (FH) Út:Birkir Valur Jónsson (FH)
70. mín
Inn:Gils Gíslason (FH) Út:Adolf Daði Birgisson (FH)
68. mín
Stjarnan heldur áfram þungri sókn Jóhann Árni með góðan bolta á fjær og Kjeldsen nær skallanum í átt að marki en varnarmenn FH komast fyrir.
67. mín
Rétt fyrir markið voru Stjörnumenn vissir um að þeir hefðu skorað. Þá var alvöru þvaga fyrir framan markið og ómögulegt fyrir mig að sjá en þar var allavega FH-ingur sem bjargaði á línu, eða rétt fyrir innan línu. Það skýrist líkast til seinna.
65. mín MARK!
Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
Þeir eru ekki lengi að jafna!! Jóhann Árni kemur með góðan bolta inn á teig sem Benedikt nær að skalla í átt að marki en Jökull ver. Hann ýtir boltanum hins vegar beint á Guðmund sem er með opið markið fyrir framan sig og hann getur ekki annað en skorað!
62. mín
Inn:Viktor Nói Vidarsson (FH) Út:Grétar Snær Gunnarsson (FH)
62. mín
Inn:Sverrir Páll Hjaltested (FH) Út:Kristján Flóki Finnbogason (FH)
61. mín
Mini myndaveisla frá Hafliða
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

60. mín MARK!
Tómas Orri Róbertsson (FH)
FH-ingar komast yfir!! Þetta kom heldur betur upp úr þurru. FH-ingar vinna boltann á miðjum vellinum og Tómas keyrir af stað með boltann. Hann lætur vaða fyrir utan teig og þetta var hnitmiðað! Stöngin inn, frábært skot!
59. mín
FH með horn, og Stjörnumenn skalla fyrsta bolta frá. FH-ingar halda boltanum inn í teig og úr verður heljarinnar þvaga í kringum boltann en Helgi dæmir svo sóknarbrot.
52. mín
Andri í færi! Benedikt Warén fær boltann á eigin vallarhelmingi og brunar fram. Hann fer framhjá einum og kemur svo boltanum inn á teig. Andri er sterkur og gerir vel í að snúa sér til að komast í færi, skotið hans fer hins vegar framhjá.
50. mín
Gott færi eftir horn Daníel tekur hornið fyrir Stjörnuna og hann kemur með góðan bolta inn á miðjan teiginn. Gummi Kri nær skallanum en beinir honum framhjá.
48. mín
Birnir reynir skotið fyrir utan teig en þetta fer framhjá.
47. mín
Djúp fyrirgjöf hjá Ibrahim Turay og Örvar nær skallanum á nær en framhjá.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
45. mín
Hálfleikstölfræði Með boltann: Stjarnan - 67,6% FH 32,4%
Skot: Stjarnan - 6 FH - 4
Skot á mark: Stjarnan - 2 FH - 3
Horn: Stjarnan - 3 FH - 1

Tölfræði tekin hjá SÝN Sport
45. mín
Vítadómurinn Eftir frekari skoðun á endursýningum í hálfleik, verður að segjast að Stjörnumenn geta verið svekktir með þennan dóm. Örvar og Ísak eru báðir að reyna að henda sér á lausan bolta fyrir opnu marki. Mér sýnist Örvar vera fyrstur í boltann en fer svo vissulega í Ísak. Verulega harður dómur af mínu mati.
45. mín
Hálfleikur
XB

Í hálfleik þá er tilvalið að kynna sér framboð Framsóknar í Garðabæ en oddviti listans, Hlynur Bæringsson, þekkir vel hvað til þarf til að ná góðum árangri í Garðabæ.

-auglýsing

Framsókn
45. mín
Hálfleikur
Jafnt í hálfleik! Stjarnan var með öll völd á leiknum en FH náði að grípa í tökin í svona fimm mínútur þar sem þeir náðu jöfnunarmarkinu. Þá stilla þeir upp seinni hálfleiknum í alvöru spennu!
45. mín
+3 Stjarnan heldur í boltann lengi inn á vallarhelmingi FH. Að lokum fær Benedikt boltann fyrir utan teig, með fínt pláss og lætur vaða. Fínt skot en rétt framhjá.
45. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti fjórar mínútur
43. mín
Vítadómurinn er umdeildur, og ég átti erfitt með að sjá á endursýningum hvort þetta væri réttmætt. Mögulega koma fleiri sjónarhonr á þetta í hálfleik.
42. mín Mark úr víti!
Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Fast og öruggt! Kjartan neglir bara fast á mitt markið á meðan Árni skutlar sér í annað hornið.

Leikurinn er jafn!
41. mín Gult spjald: Örvar Eggertsson (Stjarnan)
41. mín
Heldur betur allt að gerast Kjartan Kári fyrst með skot sem Árni ver vel. Það skapast síðan stórhætta úr horni og Örvar dæmdur brotlegur inn í teig.
40. mín
FH fær víti!!
39. mín
Allt að gerast Allskonar atburðir sem eiga sér stað á stuttum tíma. Turay fer í mjög glennilega tæklingu sem hefði mögulega verið bara rautt ef hann hefði hitt Kjartan Kára. Kjeldsen stöðvar svo Kjartan en ekkert dæmt. FH heldur boltanum, koma honum út til hægri og gefa fyrir á Kára Kristjáns sem tekur skotið af stuttu færi en varið.
36. mín
Inn:Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan) Út:Emil Atlason (Stjarnan)
Þetta getur ekki verið góð tíðindi fyrir Stjörnumenn. Emil byrjað tímabilið mjög vel, og hlýtur að vera eitthvað meiddur fyrst hann fer svona snemma af velli.
35. mín
Stjörnumenn vilja víti! Birnir Snær kemur upp hægri kantinn og gefur boltann fyrir. FH-ingar stöðva boltann enn hann skoppar svo upp í hendina á Grétari. Hefði verið grimmt að dæma á þetta þar sem hann situr og er að stiðja sig með þessari hendi.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín Gult spjald: Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan)
Rífur Kjartan Kára niður aftan frá.
29. mín
Turay fær aðhlynningu og þarf því að vera útaf velli í mínútu. Helgi hins vegar ákveður að dæma ekkert á þetta.
27. mín
Ibrahim Turay liggur sárþjáður og heldur um andlitið. Í endursýningum má sjá að Grétar setur olnbogann beint í kjammann á Turay. Líkast til ekki viljandi samt.
25. mín MARK!
Birnir Snær Ingason (Stjarnan)
Stoðsending: Örvar Eggertsson
Búnir að vera hóta þessu lengi! Stjarnan vinnur boltann á miðjum vellinum og snúa hratt vörn í sókn. Benedikt færir boltann út til hægri á Örvar sem gefur boltann fast fyrir markið endalangt og Birnir er mættur á fjær þar sem hann klárar þetta vel!
23. mín Gult spjald: Baldur Kári Helgason (FH)
Boltinn farinn útaf í innkast fyrir Stjörnuna en Baldur lætur eins og hann taki ekki eftir því og reynir að senda á liðsfélaga.
21. mín
Frábær varlsa! Stjarnan með horn sem FH-ingar ná að hreinsa. Boltinn fer alla leið aftur á Árna sem kemur með langan bolta aftur fram á Emil sem gerir frábærlega í að taka boltann niður og ná skoti á markið. Jökull stekkur til og kemur með stórkostlega vörslu!
19. mín
Stjarnan með aukaspyrnu rétt hjá miðhringnum. Jóhann Árni lyftir boltanum inn á teig og Gummi Kri nær skallanum en beinir honum beint útaf.
17. mín
Benedikt með mjög háa fyrirgjöf inn á teiginn sem Örvar nær að skalla en enginn kraftur á þessum bolta og Jökull sækir boltann sem er á leiðinni framhjá.
12. mín
RÉTT FRAMHJÁ!! Frábær skyndisókn hjá Stjörnunni! Guðmundur Baldvin með rosalegann bolta í gegn og Örvar er auðvitað fljótari en allir. Hann rétt nær til boltans á undan Jökli og reynir að vippa yfir hann en skotið hans fer rétt framhjá fjærstönginni!
9. mín
Skalli að marki! Stjarnan með hornspyrnuna og það er Daníel sem tekur hana. Góður bolti á nær sem Emil nær að skalla í en beint á Jökul sem handsamar boltann.
9. mín
Stjarnan með aukaspyrnu nálægt miðlínunni sem Jóhann Árni lyftir inn í teig. Jökull kemur út og blakar boltanum aftur fyrir.
5. mín
Svona sýnist mér uppstillingarnar vera Stjarnan 3-2-4-1

Árni
Guðmundur - Kjeldsen - Daníel
Turay - Jóhann
Örvar - Guðmundur Baldvin - Benedikt - Birnir
Emil

FH 4-3-3
Jökull
Birkir - Ísak - Carlson - Baldur
Kári - Tómas - Grétar
Adolf - Flóki - Kjartan
3. mín
Góður langur bolti! Stjörnumenn með fastan bolta fram yfir vörn FH-inga sem Emil kemst í. Hann fer með boltann inn á teig og tekur skotið en beint á Jökul í markinu.
1. mín
Leikur hafinn
Helgi flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Minningarstund Steinar J. Lúðvíksson minnst hér fyrir leik með mínútu þögn.
Fyrir leik
Fer að bresta á Leikmenn ganga til vallar, stúkan tekur við sér í stuðning. Það er að myndast stemning!
Fyrir leik
Fyrir leik
Síðasti leikurinn í umferðinni Heil umferð fór fram í dag og það er bara þessi leikur eftir. Úrslitin í leikjum dagsins eru hér.

Valur 2-1 ÍBV
KA 0-2 Víkingur
KR 5-2 Þór
Breiðablik 1-0 ÍA
Fram 3-1 Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Byrjunarliðsfregnir Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar gerir tvær breytingar á liði sínu frá 3-2 sigri þeirra fyrir norðan gegn KA. Samúel Kári Friðjónsson sest á bekkinn, en Sindri Þór Ingimarsson er ekki með í hóp. Fyrir þá koma Daníel Finns Matthíasson og Benedikt Warén.

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir einnig tvær breytingar frá því að þeir gerðu jafntefli við ÍBV í fyrstu umferð. Kári Kristjánsson og Kristján Flóki Finnbogason koma inn í liðið. Gils Gíslason sest á bekkinn en Arnór Borg Guðjohnsen er ekki með í hóp.
Fyrir leik
Leiknum seinkað um korter Miðað við KSI.is lítur út fyrir að það sé búið að seinka leiknum um 15 mínútur.
Fyrir leik
Adolf Daði snýr heim og Emil á skotskónnum Farið var yfir þá hluti sem ætti að vera áhugaverðast að fylgjast með í annari umferð deildarinnar. Þar mátti finna tvo punkta úr þessum leik.
Fyrir leik
Spáin Tónlistamaðurinn Ágúst, sem spilaði meðal annars með Völsungi, Þór, ÍR og Magna hefur verið að gera mjög skemmtilega hluti að undanförnu. Hann var nýlega kynntur sem nýr brekkusöngvari á Þjóðhátíð í Eyjum og var að gefa út lag með Unu Torfa. Hann verður spámaður okkar þessa vikuna.

Stjarnan 4 - 0 FH
Sem Arsenal maður þá elska ég þessa nýju leikþætti hjá Stjörnunni, fundir inni á miðjum velli og Jökull er sennilega með ljósaperuna inni í klefa líka eins og minn maður Arteta, en því miður fáum við enga fundi hjá Stjörnunni í þessum leik þar sem þeir eru að fara rúlla yfir FH-ingana.
Fyrir leik
Dómarinn Helgi Mikael Jónasson verður með flautuna í dag en honum til aðstoðar verða, Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eysteinn Hrafnkelsson. Arnar Þór Stefánsson er fjórði dómari og Jón Magnús Guðjónsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Glugginn ennþá opinn Félagaskiptaglugginn er ennþá opinn en þetta eru breytingarnar á hóp liðanna eins og er.

Stjarnan
Komnir
Birnir Snær Ingason frá KA
Darri Bergmann Gylfason frá Augnabliki
Gustav Kjeldsen frá Vestra
Sveinn Sigurður Jóhannesson frá Val

Farnir
Adolf Daði Birgisson í FH
Steven Caulker hættur og farinn til Tyrklands
Þorlákur Breki Baxter til Keflavíkur (var á láni hjá ÍBV)
Baldur Logi Guðlaugsson til Keflavíkur
Sigurður Gunnar Jónsson í HK (lán)
Andri Adolphsson hættur
Aron Dagur Birnuson í Þrótt R. (á láni)
Tristan Freyr Ingólfsson í Gróttu
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


FH
Komnir
Jökull Andrésson frá Aftureldingu
Kári Kristjánsson frá Þrótti R.
Adolf Daði Birgisson frá Stjörnunni
Sverrir Páll Hjaltested frá ÍBV
Tobias Carlsson frá Svíþjóð
Viktor Nói Viðarsson frá Belgíu
Aron Jónsson frá Aftureldingu
Kristján Snær Frostason frá HK
Arnór Borg Guðjohnsen frá Vestra (var á láni)
Gils Gíslason frá ÍR (var á láni)
Axel Marcel Czernik frá Breiðabliki

Farnir
Sigurður Bjartur Hallsson til Spánar
Björn Daníel Sverrisson hættur og tekinn við Sindra
Böðvar Böðvarsson í ÍA
Ahmad Faqa til AIK (var á láni)
Bjarni Guðjón Brynjólfsson í Þór á láni
Bragi Karl Bjarkason í Njarðvík
Einar Karl Ingvarsson í Hauka
Jóhann Ægir Arnarsson í Njarðvík á láni
Dagur Traustason í Fylki
Mathias Rosenörn
Dagur Örn Fjeldsted í Breiðablik (var á láni)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
FH gerði jafntefli í Eyjum Hafnfirðingar fóru líka út á land í fyrstu umferð þar sem þeir mættu ÍBV en liðin skildu jöfn eftir leikinn 1-1. Skýrsluna og viðtöl eftir leikinn má sjá hér fyrir neðan.



Fyrir leik
Stjarnan vann í fyrstu umferð fyrir norðan Stjarnan fór til Akureyrar í fyrstu umferð þar sem Garðbæingar unnu 3-2 gegn KA. Hér fyrir neðan má sjá skýrsluna úr þeim leik og viðtölin eftir leikinn.


Fyrir leik
Besta deildin heilsar! Komið þið sæl og verið velkomin í beina textaýsingu frá leik Stjörnunnar og FH í 2. umferð Bestu deildar karla.

Leikurinn hefst klukkan 20:00 og verður spilaður á Samsung vellinum í Garðabæ.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Birkir Valur Jónsson ('70)
4. Tobias Carlsson
6. Grétar Snær Gunnarsson ('62)
7. Kjartan Kári Halldórsson ('84)
8. Kári Kristjánsson
9. Kristján Flóki Finnbogason ('62)
14. Adolf Daði Birgisson ('70)
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
23. Tómas Orri Róbertsson
37. Baldur Kári Helgason
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
10. Sverrir Páll Hjaltested ('62)
19. Aron Jónsson ('84)
31. Ísak Atli Atlason
32. Gils Gíslason ('70)
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson ('70)
39. Benjamín Bæring Þórsson
40. Róbert Hugi Sævarsson
66. Viktor Nói Vidarsson ('62)

Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Arnar Sigþórsson
Guðmundur Jón Viggósson
Benjamin Gordon Mackenzie
Númi Már Atlason
Kjartan Sturluson

Gul spjöld:
Baldur Kári Helgason ('23)
Gils Gíslason ('93)

Rauð spjöld: