Fotbolti.net
12.04.26 - 20:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jökull: Það var bara óþarfi

Auglýsing
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Þetta vara bara góður leikur held ég," sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 2-3 sigur gegn KA á Akureyri í fyrstu umferð Bestu deildarinnar í dag.

„Mér fannst við vera betra liðið. Við erum ekki ánægðir með mörkin sem við gefum. Við byrjuðum leikinn mjög sterkt en svo finnst mér við hleypa þeim inn í þetta. Það var óþarfi."
Lestu um leikinn: KA 2 - 3 Stjarnan
„Þeir ná skyndisóknum og komast inn í þetta. Það var bara óþarfi."

Emil Atlason skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna og það var gott að fá hann strax í gír.

„Það er gott að fá hann af stað, og bara alla. Það eru margir sem spiluðu vel en sem lið getum við lagað ansi margt og gert betur. Við þurfum að gera það."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.