Fotbolti.net
12.04.26 - 16:44
Ívan Guðjón Baldursson

Viggó ánægður að vera kominn aftur heim

Auglýsing
Viggó Valgeirsson er mættur aftur til Vestmannaeyja og ætlar að láta til sín taka.

Viggó Valgeirsson er mættur aftur til Vestmannaeyja og ætlar að láta til sín taka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viggó Valgeirsson efnilegur leikmaður ÍBV var í byrjunarliði heimamanna og skoraði eina markið í fyrri hálfleik gegn FH í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 FH
ÍBV gerði 1-1 jafntefli við FH í fyrstu umferð á nýju tímabili í Bestu deild karla.

„Við vorum góðir í fyrri og aðeins slakari í seinni, það er súrt að missa þetta niður í jafntefli en stig er alltaf stig. Við hefðum átt að vinna þetta 100%," sagði Viggó í viðtali að leikslokum.

Viggó er uppalinn hjá ÍBV en lék með Njarðvík í fyrra og er mjög ánægður með að vera kominn heim aftur og að spila í Bestu deildinni.

„Ég fór aðeins í fyrra til að fá að spila meira og fékk góða reynslu með Gunna í Njarðvík. Ég er mættur aftur núna alveg klár í Bestu deildina. Það er gott að vera kominn aftur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.