Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 3
0
Ægir
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 4
7
ÍR
Besta kvenna
Víkingur R.
LL 2
1
Stjarnan
Besta kvenna
Breiðablik
LL 2
0
Þróttur R.
Fylkir
3
0
Ægir
Eyþór Aron Wöhler '46 1-0
Máni Austmann Hilmarsson '55 2-0
Benedikt Daríus Garðarsson '61 3-0
24.04.2026  -  19:15
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Hreinn Magnússon
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson
4. Hlynur Sævar Jónsson
5. Orri Sveinn Segatta (f)
6. Guðfinnur Þór Leósson
7. Máni Austmann Hilmarsson ('75)
9. Eyþór Aron Wöhler ('75)
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('82)
17. Birkir Eyþórsson
77. Bjarki Steinsen Arnarsson ('86)
92. Kári Sigfússon
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
30. Sævar Snær Pálsson (m)
11. Magnús Daði Ottesen ('75)
14. Tumi Fannar Gunnarsson ('86)
18. Nikulás Val Gunnarsson ('75)
19. Arnar Númi Gíslason
20. Theodór Ingi Óskarsson ('82)
72. Helber Josua Catano Catano

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Kristófer Sigurgeirsson
Daníel Bjarki Stefánsson

Gul spjöld:
Kári Sigfússon ('14)
Birkir Eyþórsson ('65)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Viðtöl á leiðinni, takk fyrir mig
94. mín
Theodór herjar á vörn Ægis en skotið er lélegt og fer framhjá
92. mín
Dómarinn kemur ekki með neinn uppbótartíma en það er hvort sem er lítið að gerast í þessum töluðum orðum
90. mín
Fylkir búnir að vera hættulegir upp hægri kantinn en vörn Ægis ná boltanum áður enn Kári fær boltann
88. mín
Fylkir virðast ætla sigla þessum sigri heim bara, þeir vilja hreint lak
86. mín
Inn:Tumi Fannar Gunnarsson (Fylkir) Út:Bjarki Steinsen Arnarsson (Fylkir)
85. mín
Kári aftur í góðu færi til þess að negla hann inn, fær boltann nálægt vítapunktinum en skotið er lélegt og Ómar Castaldo tekur hann upp
84. mín
Kári er kominn á vinstri kantinn og hann í mjög góð færi til þess að negla hann en hann notar tána og boltinn fer langt framhjá
82. mín
Inn:Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir) Út:Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
81. mín
Áhorfendatölur 630 í dag
81. mín
Inn:Anton Breki Viktorsson (Ægir) Út:Bjarki Rúnar Jónínuson (Ægir)
78. mín
Orri Sveinn og Adeyemo berjast um boltann, Adeyemo nær að pota í boltann en hann dettur svo á Ólaf sem grípur hann
75. mín
Inn:Magnús Daði Ottesen (Fylkir) Út:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
Sonur Sölva Ottesen að fá mínútur hér í dag, 15 ára!
75. mín
Inn:Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir) Út:Máni Austmann Hilmarsson (Fylkir)
74. mín
Guðfinnur leó tekur skotið fyrir utan vítateig, boltinn fannst í árbæjarlauginni
72. mín
Boltinn í gegnum vörn Fylkis á Adeyemo en það er dæmd rangstaða
70. mín
Barki steinsen af hægri kantinum og hann dettur á Mán Austmann sem tekkur svaka volley sem Ómar ver
69. mín
Dauðafæri Hlynur Sævar fær boltann en er sofandi og willard tekur boltann af honum og kemst í 1v1 gegn Ólafi en hann ver hann burt
67. mín
Inn:Sigurður Óli Guðjónsson (Ægir) Út:Nikola Kristinn Stojanovic (Ægir)
67. mín
Inn:Benedikt Þór Viðarsson (Ægir) Út:Kristinn Ásgeir Þorbergsson (Ægir)
66. mín
Sanabria með fyrirgjöf á Adeyemo sem nær skotinu en það er lélegt og Ólafur grípur hann
65. mín Gult spjald: Birkir Eyþórsson (Fylkir)
Straujar Sanabria, fannst hann taka boltann, stuðningsmenn Fylkis eru óánægðir
63. mín
Fylkismenn herja á Ægi sem vita eiginlega ekki hvað þeir eiga að gera, líklegra að Fylkir skori nr 4
61. mín MARK!
Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
Stoðsending: Kári Sigfússon
Há fyrirgjöf frá Kára sem fer á Baptiste Gateu sem chestar hann beint á Benedikt sem þarf bara að pota hann inn, þetta var alveg skelfilegt
58. mín Gult spjald: Kristinn Ásgeir Þorbergsson (Ægir)
Pirringur kominn
57. mín
Atli Rafn með skot langt fyrir utan vítateig sem fer langt yfir, Ægir með tvær ágætar sóknir sem fara ekki neitt
56. mín
Ægir eru komnir í sókn, vörn Fylkis ná boltanum burt en Ægir voru lengi með boltann í teig Fylkis en tóku bara ekki skotið
55. mín MARK!
Máni Austmann Hilmarsson (Fylkir)
Stoðsending: Kári Sigfússon
Aftur upp hægri kantinn, fyrirgjöf boltinn dettur á Mána Austmann sem tekur svo skotið í hliðarnetið, Ómar í erfiðleikum að sjá hann
52. mín
Fylkismenn vilja mark nr 2, vörn ægis er mjög þétt
50. mín
Willar keyrir upp hægri kantinn en Ólafur ver fyrirgjöfina burt
48. mín
Adeyemo tekinn niður rétt fyrir víta teig, hef séð gefið fyrir minna

Dómarinn sendir Adeyemo út af í eina mín, frekar óþarfi
46. mín MARK!
Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
Stoðsending: Kári Sigfússon
Tók ekki langan tíma

Kári á hægri kantinn með háa fyrirgjöf, Wöhler rétt nær að teigja sig í hann og Ómar Castaldo átti ekki sjens í að verja hann, Ómar stóð eins og stytta.
46. mín
Seinni hálfleikur Fylkismenn byrja
45. mín
Hálfleikur
Þetta var áhugavert en frekar leiðinlegt

Fylkir töluvert hættulegri en samt hefur Ómar Castaldo ekki þurft að verja eitthvað svakalega, en Ægir geta verið hættulegir í skyndisókninni

Það er allt galopið á hægri kantinum fyrir Fylki en þessar fyrirgjafir fara ekki neitt og oftast komast ekki í gegnum fyrsta mann
45. mín
Máni Austmann með hættulegan skalla frá aukaspyrnu en Ómar Castaldo ver þægilega
42. mín
Ægir í hættulega sókn en þegar boltinn kemst á Willard kemst Segatta í hann og tekur boltann
42. mín
Horn hjá Fylki, Ómar nær að kýla hann burt en svo er dæmd aukaspyrna fyrir ægir
41. mín
Bjarki Steinsen á hægri kantinum með hættulegan bolta en vörnin sparkar burt
40. mín
Kári Sigfús á hægri kantinum kemst í skotstöðu en skotið fer beint í varnarmann en dettur á Wöhler sem nær skotinu en það er dæmd rangstaða
38. mín
Boltinn dettur á Kára Sigfús sem kemur sér í skot stöðu rétt fyrir utan vítateiginn en boltinn fer í varnarmann og burt
35. mín
Aukaspyrna rétt hjá víta teigi hjá Mána Austmann en hún fer vel yfir
34. mín
Kári sigfús með enn eina aðra fyrirgjöf á hægri kanti sem er skölluð burt
32. mín
Guðfinnur Leó með misheppnaða sendingu sem fer útaf, komið smá þrot í fylkismenn
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Barki Steinsen með volley rétt fyrir utan teig en Ómar Castaldo var ekki í vandræðum að grípa hann
29. mín
Kári með aðra fyrirgjöf á hægri kantinum en vörn Ægis skalla hana burt
28. mín
Þetta er nú ekkert markaflóð, Fylkir eru búnir að eiga töluvert betri færi en kannski ná ekki góðu skoti á markið fyrir utan þeirra fyrsta skot. Ægismenn á skyndisókninni eru búnir að vera hættulegir en eru ekki búnir að fá neitt almennilegt skot.
24. mín
Benedikt Daríus og Birkir Eyþórs að spila vel saman en vörnin hjá Ægi rétt kemst í boltann og koma honum út
21. mín
Bjarki steinsen aftur á hægri kantinum en fyrirgjöfin fer ekki neitt
19. mín
Bjarki Steinsen á hægri kantinum alveg galopin, fyrirgjöfin er skölluð burt af vörn Ægis, Fylkir er ítrekað að finna góð svæði á hægri kantinum, oftast galopin
18. mín
Stojanovic straujar Wöhler sem liggur eftir niðri, kannski heppinn að fá ekki gult
17. mín
Ægir er búin að ná nokkrum sendingum á milli sín en einn hár bolti hjá ponjevic og hann fer ekki neitt
14. mín Gult spjald: Kári Sigfússon (Fylkir)
13. mín
ótrúlegur bolti upp hægri kantinn á Kára sem er alveg einn, en boltinn fer í fyrsta mann, hann fær hann aftur en vörnin hjá ægi nær honum burt
11. mín
Fylkismenn vilja víti en dómarinn dæmir auka á Fylki, Kári Sigfús á hægri væng með fyrirgjöf á Wöhler. Varnarmaðurinn var á undan að mati Dómarans
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
8. mín
Rangstaða Stutt horn hjá Fylki, Wöhler tekur skotið og hann dettur á Birki eyþórs sem skorar en það er dæmd rangstaða
8. mín
Vel spilað hjá Fylki, flott spil og Benedikt Darius fær boltann og tekur skotið en það fer í varnarmann og rétt framhjá
5. mín
Arnór Breki með aukaspyrnuna en Ómar Castaldo ver léttilega
5. mín Gult spjald: Dajan Ponjevic (Ægir)
4. mín
Kristinn Ásgeir keyrir upp vinstri kantinn en fyrirgjöfin fer yfir markið og dettur ofaná þaknetið
2. mín
Hættulegt Sanabria er í skyndisókn og Ægir er 2v1, en sendingin er lamin burt af Ólafi
1. mín
Fyrsta sókn, Kári Sigfús keyrir upp hægri kantinn sendir svo boltann inn, varnarmenn ná að koma honum burt en hann dettur beint á Guðfinn Leó sem skýtur yfir markið
1. mín
Leikur hafinn
Ægismenn byrja leikinn
Fyrir leik
Choreography hjá Fylkismönnum í dag er alveg til fyrirmyndar, rífa upp stemminguna
Fyrir leik
Allt að gerast Liðin eru komin í hús og það er alvöru sumarveður í árbænum.
Fyrir leik
Haraldur Hróðmars spáir í spilin Halli segir 3-0 fyrir Fylki

Fyrir leik
Fjórða liðið Hreinn Magnússon er dómari kvöldsins og honum til aðstoðar eru þeir Kristófer Bergmann og Breki Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Umferðin Föstudaginn 24. Apríl
19:15 Fylkir-Ægir
19:15 Afturelding-ÍR

Laugardaginn 25. Apríl
14:00 Vestri-Grindavík
14:00 Þróttur R.-Njarðvík
16:00 Völsungur-Leiknir R.
16:00 HK-Grótta

Og auðvitað eru allir leikirnir í beinni textalýsingu á Fotbolti.net!
Fyrir leik
Ægir Nýliðarnir Ægir heimsækja Fylki í Árbænum. Ægir unnu 2.deildina síðasta sumar með 44 stig. Grótta lenti í öðru sæti með 44 stig en Ægir var með betri markatölu. Jordan Adeyemo markahæsti leikmaður 2. deildarinnar framlengdi við Ægi og mun klárlega spila með þeim þetta sumar. Það var áhugi á honum frá öðrum liðum en hann kaus að vera áfram. Það má segja að hann er ,,one to watch" frá þessu liði. Sérfræðingar hafa spáð því að liðið fari niður en kannski geta þeir komið á óvart!

Mynd: Ægir


Komnir
Alfredo Ivan Arguello Sanabria frá Selfossi
Harley Willard frá Selfossi
Dajan Ponjevic frá Serbíu
Sigurður Pétur Stefánsson frá Kormáki/Hvöt
Markús Máni Jónsson frá Víði
Kristinn Ásgeir Þorbergsson frá Árborg
Nikola Kristinn Stojanovic frá Dalvík/Reyni
Benedikt Þór Viðarsson frá Gróttu
Ómar Castaldo Einarsson frá Reyni S.
Hilmar Óli Viggósson frá Val
Gabriel Michael Thull frá Stokkseyri

Farnir
Ivan Rodrigo Moran Blanco til Gíbraltar
Aron Fannar Hreinsson í Fjölni
Bilal Kamal
Jón Jökull Þráinsson
Elvar Orri Sigurbjörnsson í Selfoss (var á láni)
Guðmundur Stefánsson í Selfoss (var á láni)

Mynd: Ægir







Fyrir leik
Fylkir Heimamenn Fylkir lentu í 8. sæti á síðasta tímabili, það var vægast sagt vonbrigði þar sem margir spáðu því að þeir myndu komast upp í topp sætin. Árni Guðna núverandi aðstoðarþjálfari FH var rekin á miðju tímabili og Arnar Grétars tók svo yfir og stýrði restina af tímabilinu. Nú er Heimir Guðjónsson tekin yfir og er markmiðið klárlega að komast upp um deild. Fylkir unnu líka Lengjubikarinn eftir að hafa unnið KR í vítaspyrnu.



Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon


Komnir
Kári Sigfússon frá Keflavík
Hlynur Sævar Jónsson frá ÍA
Tumi Fannar Gunnarsson alfarið frá Breiðabliki (var á láni)
Guðfinnur Þór Leósson frá ÍA
Dagur Traustason frá FH
Kristófer Leví Sigtryggsson frá Grindavík

Farnir
Emil Ásmundsson hættur
Ásgeir Eyþórsson hættur
Halldór Jón Sigurður Þórðarson í ÍBV
Pablo Aguilera til Spánar
Þorkell Víkingsson
Þóroddur Víkingsson
Hilmar Þór Kjærnested Helgason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð








Fyrir leik
Lengjudeildin er byrjuð! Veriði hjartanlega velkomin í þessa beina textalýsingu frá Tekkvellinum, það er fyrsta umferðin í lengjudeildinni. Það er leikið í í Árbænum á Tekk vellinum og fá heimamenn Fylkir, nýliðanna Ægir í heimsókn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

föstudagur 24. apríl
19:15 Fylkir-Ægir (tekk VÖLLURINN)
19:15 Afturelding-ÍR (Malbikstöðin að Varmá)

laugardagur 25. apríl
14:00 Vestri-Grindavík (Kerecisvöllurinn)
14:00 Þróttur R.-Njarðvík (AVIS völlurinn)
16:00 Völsungur-Leiknir R. (GPG völlurinn)
16:00 HK-Grótta (Kórinn)
Byrjunarlið:
1. Ómar Castaldo Einarsson (m)
7. Kristinn Ásgeir Þorbergsson ('67)
8. Atli Rafn Guðbjartsson
9. Jordan Adeyemo
11. Stefan Dabetic (f)
19. Nikola Kristinn Stojanovic ('67)
20. Alfredo Ivan Sanabria
22. Harley Willard
45. Dajan Ponjevic
50. Baptiste Gateau
80. Bjarki Rúnar Jónínuson ('81)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
12. Gabriel Michael Thull (m)
5. Anton Breki Viktorsson ('81)
14. Benedikt Þór Viðarsson ('67)
15. Sigurður Óli Guðjónsson ('67)
16. Markús Máni Jónsson
21. Einar Breki Sverrisson
27. Marko Panic

Liðsstjórn:
Nenad Zivanovic (Þ)
Guðbjartur Örn Einarsson
Dimitrije Cokic
Ivaylo Yanachkov
Bjartmar Þór Unnarsson

Gul spjöld:
Dajan Ponjevic ('5)
Kristinn Ásgeir Þorbergsson ('58)

Rauð spjöld: