Kári Sigfússon er skemmtilegur karakter og öflugur fótboltamaður. Hann er 23 ára kantmaður sem var valinn besti leikmaður Keflavíkur á síðasta tímabili. Hann skoraði alls tíu mörk fyrir Keflavík sem vann sér inn sæti í Bestu deildinni.
Kári þreytti frumraun sína í meistaraflokki 2020 með Fylki, lék með Gróttu 2021, Elliða 2022, Þrótti Vogum 2023 og svo Keflavík síðustu tvö tímabil. Hann sneri aftur til uppeldisfélagsins, Fylki, í vetur og í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Kári þreytti frumraun sína í meistaraflokki 2020 með Fylki, lék með Gróttu 2021, Elliða 2022, Þrótti Vogum 2023 og svo Keflavík síðustu tvö tímabil. Hann sneri aftur til uppeldisfélagsins, Fylki, í vetur og í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Kári Sigfússon
Gælunafn: KS/Kóts
Aldur: 23
Hjúskaparstaða: Lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: 2020 í janúar, man ekkert eftir leiknum en Maguire slummaði honum í vinkilinn á móti Tranmere Rovers þennan dag.
Uppáhalds drykkur: Screwdriver
Uppáhalds matsölustaður: McDonald’s, er einmitt að biða eftir pöntun nuna hehe.
Uppáhalds tölvuleikur: Prime fort
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Ja, virkilega þungur i þeim.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Rikki fer til ameríku
Uppáhalds tónlistarmaður: Eyþor wöhler og svo er ég líka geðveikur
Uppáhalds hlaðvarp: Hlaðvarpið hja 12:00 var otrulegt skolaarið 20/21.
Uppáhalds samfélagsmiðill: Tiktok, sérstaklega reikningurinn hjá forseta vor
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Claude.com, mín hægri hönd í þessu lífi
Fyndnasti Íslendingurinn: Bjartur Jörvi Ingvason
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Tek úr lás
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Ég er til í allt
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Jóhann þór Lapas húsvörður Arion Banka, magnaður keeper.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Heimir Guðjónsson.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Valdimar Daði Sævarsson á dansgólfinu i verslo, á sínum degi var hann ótrú….
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: David Beckham
Sætasti sigurinn: Komast upp með Kef var veikt
Mestu vonbrigðin: Það er tvennt, brottrekstur markmannsþjálfara Gróttu í fyrra og svo meiðslin hjá Einari Eyjólfssyni 2017. What could have been…
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Magnús Andri aka Slakurbarber, íslenski musiala.
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Eyþór Aron Wöhler, hann á eftir að ná langt þessi strákur.
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Ólafur Kristófer markmaðurinn minn.
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Hekla Margrét Sigfúsdóttir
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Cr7
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Rífa sig úr að ofan og fá gult zzzzz…
Uppáhalds staður á Íslandi: Garðhúsið hjá Afa mínum
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Það gerðist nú bara í síðustu viku, ég spilaði fyrstu 20 mínúturnar í Árbænum og seinni 70 í skessunni. Það er nú er ekki frá sögu færandi nema ég gleymdi treyjunni minni í þurrkaranum í Fylki. Maður er mennskur eftir allt saman.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Eg er með hjátrú að vera ekki með hjatrú
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Jaa fullt, mikill hestamaður.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Phantom
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Í öllu sem var tilgangslaust
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Björn Skúlason fyrrverandi leikmaður Grindavíkur útaf því að við erum góðir vinir, Bjarni Ben fyrrverandi leikmaður stjörnunar no words needed og Theodór Ingi leikmaður Fylkis útaf því að ég elska hann. Spurning um að græja þetta.
Bestur/best í klefanum og af hverju: Theodór Ingi er bestur, hann er svo hress þessi strákur. Alveg hreint reitir af sér brandarana. Heyrið í honum, 8543554.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Eg myndi senda Mána Austmann í Survivor, spurning hvort hann endist í meira en 30 sekúndur.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég á fallegustu móðir landsins
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Sindri Snær Magnússon og Sindri Kris, hélt þeir myndu reynast mér erfiðir en þetta eru svo mikið mínir menn.
Hverju laugstu síðast: Minn helsti kostur er heiðarleiki
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Ufff fotavinna zzzzzzzz
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spurja CR7 um villuna hans yfir eina helgi í sumar til þess að frumsýna BS ritgerðina sem ég og dagur margeirs erum að skrifa. Sú ritgerðin…
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Afram fylkirrr! Fylgist með með leikmanni númer 72, prinsinum frá kólombíu.



