| fös 24.apr 2026 13:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 2. sæti
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í öðru sæti er Fylkir og rétt missa þeir af efsta sætinu ef spáin rætist.
Kári Sigfússon var besti leikmaður Keflavíkur þegar liðið vann sér inn sæti í Bestu deildinni á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Benedikt Daríus er einn skemmtilegasti leikmaður deildarinnar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. ?
2. Fylkir, 213 stig
3. Njarðvík, 209 stig
4. Afturelding, 201 stig
5. HK, 158 stig
6. Vestri, 155 stig
7. Grindavík, 110 stig
8. ÍR, 104 stig
9. Leiknir R., 95 stig
10. Grótta, 68 stig
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig
2. Fylkir
Fylkir fer inn í nýtt tímabil í Lengjudeild karla með miklar væntingar á herðum sér og er spáð 2. sæti. Fylkir féll niður fyrir tímabilið í fyrra með skýrt markmið um að snúa strax aftur upp enda hafa þeir appelsínugulu oftar en ekki verið í efstu deild í gegnum tíðina. Raunin varð þó allt önnur. Tímabilið þróaðist illa, úrslitin voru langt undir væntingum og liðið og mátti teljast heppið að halda sæti sínu í deildinni. Þrátt fyrir það ríkir ákveðin bjartsýni í Árbænum fyrir komandi sumar. Fylkir býr yfir umtalsverðum gæðum og reynslu, og ef liðið nær að finna taktinn frá upphafi gæti það fljótt komið sér í hóp þeirra liða sem berjast um efstu sætin. Spurningin er hvort þeim takist að læra af mistökunum frá síðasta tímabili og forðast þá drauga. Fylkir er félag sem á heima í efstu deild og pressan er skýr: Allt annað en alvöru barátta um sæti í Bestu deildinni verður vonbrigði.
Þjálfarinn: Það var risastórt fyrir Fylkismenn að ná að sannfæra Heimi Guðjónsson um að taka við liðinu. Heimir er fótboltaunnendum á Íslandi vel kunnugur, en hann hefur á sínum ferli stýrt liðum FH, Vals og færeyska liðinu HB, öll með góðum árangri. Hann hefur samtals unnið átta deildartitla og fjóra bikarmeistaratitla á ferli sínum og er talinn einn sigursælasti þjálfari landsins. Auk þess á Heimir að baki yfir 300 knattspyrnuleiki sem leikmaður, þar af 6 A-landsleiki. Hann lék með liðum á borð við KR, KA, ÍA og FH. Heimir hefur unnið sjö Íslandsmeistaratitla en núna er hann kominn í öðruvísi verkefni í Árbænum þar sem hann á að byggja upp öflugt lið til framtíðar. Það verður afar spennandi að sjá hvernig honum tekst upp.
Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Númeri of stórir
„Fylkismönnum spáð 2. sætinu eftir vonbrigðin í fyrra, það er svosem ekkert óeðlilegt þar sem Fylkir er einn af þessum klúbbum sem eru númeri of stórir fyrir Lengjudeildina."
„Heimir Guðjóns við stýrið ýtir fullkomlega undir árangur og ekkert annað. Flottir leikmenn sóttir í vetur og þar ber hæst að nefna smá svona Skagageðveiki sem hefur aldrei gert neitt fótboltalið verra."
„Unnu Lengjubikarinn, Fylkir mun gera alvöru atlögu í ár!"
Lykilmenn: Orri Sveinn Segatta og Kári Sigfússon
Orri Sveinn er gríðarlega reyndur miðvörður sem á fjölmarga leiki í Bestu deildinni. Hann er núna ekki með Ásgeir Eyþórsson við hliðina á sér og þarf því að stíga enn frekar upp í varnarleiknum. Ef allt er eðlilegt þá verður Orri einn af allra bestu varnarmönnum Lengjudeildarinnar í sumar. Kári er kominn aftur heim í Fylki eftir að hafa spilað á nokkrum stöðum síðustu ár. Hann var í Keflavík síðasta sumar og var þeirra besti maður er þeir komust upp í Bestu deildina. Hann skoraði alls tíu mörk fyrir Keflavík sem vann sér inn sæti í Bestu deildinni. Það er vonandi fyrir Fylki að Kári finni sig eins vel, ef ekki betur, í Árbænum í sumar.
Gaman að fylgjast með: Magnús Daði Ottesen
Er fæddur árið 2010 en kemur þrátt fyrir það til með að fá hlutverk hjá Fylkismönnum í sumar. Magnús dagði braut blað í sögu Fylkis þegar hann spilaði með liðinu í fyrra, en hann varð yngsti leikmaður í sögu Fylkis til að spila með meistaraflokki - 14 ára og 288 daga gamall. Hann spilaði einn leik í Lengjudeildinni í fyrra en hefur verið spilað nokkuð mikið í vetur. Magnús er sonur Sölva Geirs Ottesen, þjálfara Víkings og hefur ekki langt að sækja fótboltagenin þó hann spili alls ekki sömu stöðu og faðir hans gerði. Magnús Daði er sóknarmaður sem hefur raðað inn mörkum í yngri flokkum.
Komnir:
Kári Sigfússon frá Keflavík
Hlynur Sævar Jónsson frá ÍA
Tumi Fannar Gunnarsson alfarið frá Breiðabliki (var á láni)
Guðfinnur Þór Leósson frá ÍA
Dagur Traustason frá FH
Kristófer Leví Sigtryggsson frá Grindavík
Farnir:
Emil Ásmundsson hættur
Ásgeir Eyþórsson hættur
Halldór Jón Sigurður Þórðarson í ÍBV
Pablo Aguilera til Spánar
Þorkell Víkingsson
Þóroddur Víkingsson
Hilmar Þór Kjærnested Helgason
Fyrstu þrír leikir Fylkis:
24. apríl, Fylkir - Ægir (tekk VÖLLURINN)
2. maí, Fylkir - Vestri (tekk VÖLLURINN)
8. maí, Njarðvík - Fylkir (JBÓ völlurinn)


