Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Mjólkurbikar karla
Afturelding
LL 3
1
Stjarnan
2. deild karla
Haukar
LL 2
2
Kormákur/Hvöt
Afturelding
3
1
Stjarnan
0-1 Heiðar Ægisson '5
Birkir Már Sævarsson '64 1-1
Bart Kooistra '66 2-1
Birkir Már Sævarsson '75 3-1
Örvar Eggertsson '89
10.06.2026  -  19:30
Malbikstöðin að Varmá
Mjólkurbikar karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: 765
Maður leiksins: Birkir Már Sævarsson
Byrjunarlið:
1. Arnar Daði Jóhannesson (m)
2. Birkir Már Sævarsson ('84)
3. Axel Óskar Andrésson
4. Gunnar Bergmann Sigmarsson ('96)
5. Jón Vignir Pétursson ('46)
6. Aron Elí Sævarsson (f)
8. Bart Kooistra
9. Joacim Holtan ('86)
11. Óðinn Bjarkason
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
33. Andi Hoti
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
85. Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m)
10. Elmar Kári Enesson Cogic
14. Daníel Darri Þorkelsson
19. Sævar Atli Hugason ('96)
23. Ari Hrafn Haraldsson
24. Trausti Þráinsson ('46)
25. Georg Bjarnason ('84)
27. Enes Þór Enesson Cogic
79. Róbert Agnar Daðason ('86)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Garðar Guðnason (Sjúkraþj.)
Þórður Ingason (MÞ)
Gunnar Ingi Garðarsson (Styrktarþj.)
Enes Cogic (AÞ)
Baldvin Jón Hallgrímsson (Liðsstj.)
Þorgeir Leó Gunnarsson (Leikgr.)

Gul spjöld:
Aron Elí Sævarsson ('88)
Róbert Agnar Daðason ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Mjög áhugaverðum leik lokið hér í Mosfellsbæ. Viðsnúningur hjá heimamönnum sem fara í undanúrslit í fyrsta skipti í sögu félagsins!

Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld.

Ég þakka fyrir mig.
96. mín
Inn:Sævar Atli Hugason (Afturelding) Út:Gunnar Bergmann Sigmarsson (Afturelding)
95. mín
Bart reynir skot frá miðju en hittir hann ekki vel.
93. mín Gult spjald: Róbert Agnar Daðason (Afturelding)
Gulum spjöldum rignir þessa stundina.
91. mín Gult spjald: Jökull I Elísabetarson (Stjarnan)
Enn eitt spjaldið og nú er það þjálfarinn.
90. mín Gult spjald: Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan)
Mótmæli
90. mín
5 mínútur í uppbótartíma. Ekki mikið lífsmark eftir í Stjörnunni.
89. mín Rautt spjald: Örvar Eggertsson (Stjarnan)
Seinna gula Pirrings hrinding inn á vítateig Aftureldingar.
88. mín Gult spjald: Aron Elí Sævarsson (Afturelding)
Stoppa skyndisókn
88. mín
Bart leikur listir sínar og kemur boltanum á Óðin sem kemur með boltann inn á teiginn en ekkert verður úr þessu.
86. mín
Inn:Róbert Agnar Daðason (Afturelding) Út:Joacim Holtan (Afturelding)
84. mín Gult spjald: Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
Hlýtur gult spjald fyrir dýfu. Hann kvartar lítið svo þetta virðist hafa verið spot on hjá Twana.
84. mín
Inn:Georg Bjarnason (Afturelding) Út:Birkir Már Sævarsson (Afturelding)
84. mín
Inn:Þorri Mar Þórisson (Stjarnan) Út:Damil Serena Dankerlui (Stjarnan)
84. mín
Inn:Benedikt V. Warén (Stjarnan) Út:Haukur Örn Brink (Stjarnan)
83. mín
Stjarnan vill víti Birnir setur boltann í höndina á Birki af stuttu færi en hún var alveg upp við líkamann og ekkert dæmt.
80. mín
Afturelding leggst aftar á völlinn og Stjörnumenn í leit að einhverri líflínu en komast ekkert áleiðis.
78. mín
Örvar Logi með skot í varnarmann og enn ein hornspyrna sem gestirnir fá.
78. mín
Stjarnan fær hornspyrnu Þeir þurfa mark sem allra fyrst til að halda lífi í þessu.
Settu þig í hleðslu með Hleðslu
75. mín MARK!
Birkir Már Sævarsson (Afturelding)
BIRKIR AÐ GERA ÚT UM LEIKINN Fær langan bolta í gegn frá Óðni og gerir þetta listilega vel. Tekur boltann með hægri fæti framhjá Árna Snæ og klárar með vinstri í sömu hreyfingunni.

Ótrúlega gæðamikið mark og róðurinn orðinn afar þungur fyrir Stjörnuna.
70. mín
Stjörnumenn nú í leit að jöfnunarmarki eftir þennan löðrung frá heimamönnum.
66. mín MARK!
Bart Kooistra (Afturelding)
Stoðsending: Bjartur Bjarmi Barkarson
HVAÐ ER AÐ GERAST!!!!???? Bart Kooistra búinn að koma heimamönnum yfir eftir frábæran skalla. Bjartur lyfti honum á teiginn og Hollendingurinn svoleiðis stangaði boltann inn.

Ótrúlegur viðsnúningur heimamanna. Rétt rúm mínúta á milli markanna!!
64. mín MARK!
Birkir Már Sævarsson (Afturelding)
Stoðsending: Óðinn Bjarkason
REYNSLUBOLTINN JAFNAR METIN Óðinn með gríðarlega sterkan skalla á fjærsvæðinu sem hafnar í nærstönginni og fer nánast bara í hausinn á Birki og inn. Hann náði þó að stýra honum inn svo við hrósum honum fyrir það
62. mín
Inn:Arnar Breki Björnsson (Stjarnan) Út:Heiðar Ægisson (Stjarnan)
Markaskorarinn fer útaf
60. mín Gult spjald: Örvar Eggertsson (Stjarnan)
Heimamenn fara loks yfir miðju og Örvari líst ekki á blikuna og tekur á sig gult.
59. mín
Birnir Snær tekur fast skot fyrir utan teig Aftureldingar en yfir fer boltinn.

Heimamenn hafa ekki enn farið yfir miðju í síðari hálfleik.
57. mín
Birkir Már klobbar Örvar og stúkan ánægð með þann gamla.
54. mín
Haukur Brink með vinstri fótar skot sem Arnar Daði ver.
52. mín
Stjarnan fær enn eina hornspyrnu Vel spilað hjá gestunum og Haukur setur boltann fyrir markið en Axel kemur þessu í horn.
49. mín
Birnir með hornspyrnu inn á teiginn sem Arnar Daði grípur.
47. mín
DAUÐAFÆRI Guðmundur Baldvin með skot sem Arnar Daði ver fyrir fætur Emils sem tekur frákastið en Arnar nær að verja aftur.
Besta færi Stjörnunnar í leiknum.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
46. mín
Inn:Trausti Þráinsson (Afturelding) Út:Jón Vignir Pétursson (Afturelding)
45. mín
Hálfleikur
Stjarnan stenst pressu seinustu mínútna en annars heldur rólegum fyrri hálfleik lokið.

Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Seinasti séns fyrri hálfleiksins Afturelding á aukaspyrnu aftarlega á vallarhelmingi Stjörnunnar. Boltinn kemur inn á teiginn en ekkert verður úr þessu.
45. mín
Heimamenn liggja á Stjörnunni Stjarnan stenst þunga pressu þar sem Óðinn náði góðu skoti sem Damil henti sér fyrir og mikill darraðadans myndast í kjölfarið.
45. mín Gult spjald: Haukur Örn Brink (Stjarnan)
Í þriðja sinn sem hann rífur í Aron Elí sem labbaði framhjá honum og fyrsta spjaldið komið í hús.
45. mín
4 mínútur í uppbót.
43. mín
Aftur langt innkast!! Axel Óskar með boltann á teiginn og aftur fá heimamenn dauðafæri!

Nú var það Gunnar Bergmann sem setti boltann í stöngina af stuttu færi.
40. mín
DAUÐAFÆRI Axel Óskar með langt innkast inn á teiginn og boltinn endar hjá Jón Vigni sem er aleinn í miðjum teignum og tekur boltann á lofti viðstöðulaust í grasið og yfir markið.

Langbesta færi leiksins!
38. mín
Örvar fer harkalega í Gunnar Bergmann sem liggur eftir og fær aukaspyrnu en Twana sleppir að lyfta því gula.
35. mín
10 mínútur eftir af fyrri hálfleik og við höfum í raun enn ekki fengið alvöru færi í leikinn að undanskildu markinu.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Twana hefur leyft leiknum að fljóta mikið og bæði lið með menn liggjandi og bekkirnir farnir að kvarta yfir meintum brotum.
27. mín
Inn:Örvar Eggertsson (Stjarnan) Út:Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
Hinn eldfljóti Örvar Eggertsson kemur inn fyrir Andra sem virðist hafa tognað aftan í læri.
25. mín
Andri Rúnar er sestur og þarfnast aðhlynningar. Virðist vera þjáður aftan í lærinu sem er ekki gott.
21. mín
Stjarnan heldur mikið í boltann og Afturelding er framarlega á velinum en samt ekki að pressa af neinum ákafa. Þetta hefur verið rólegt eftir markið.
17. mín
Birnir snær á fleygiferð upp kantinn og laumar honum á Guðmund Baldvin sem nær ekki að koma boltanum á Emil og þriðja hornspyrna gestanna staðreynd.
14. mín
Birnir Snær brýtur af sér og neglir síðan boltanum 70 metra í burtu en sleppur einhvern veginn án spjalds. Twana óvenju rólegur yfir þessu.
13. mín
Önnur hornspyrna gestanna Guðmundur Baldvin með boltann á nærstöngina en boltanum hreinsað frá.
11. mín
Andri Rúnar lúrir fyrir utan teig Mosfellinga og boltinn hrekkur á hann en skot hans fer yfir markið.
10. mín
Gott spil hjá heimamönnum og Bjartur kom með góðan bolta á milli markmanns og varnar en engin rauð treyja í teignum.
9. mín
Afturelding haldið mikið í boltann eftir markið.
5. mín MARK!
Heiðar Ægisson (Stjarnan)
MAÐURINN SEM ÁTTI AÐ BYRJA Á BEKKNUM Það var hornspyrna frá Birni sem fór inn á nærsvæðið og var flikkað á fjærsvæðið af leikmanni Aftureldingar og Heiðar var ákveðnastur á fjærsvæðinu stangaði boltann inn.

Fyrsta markið komið!
5. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er Stjörnunnar.
3. mín
Hinum 41 árs gamla Birki Má er stillt upp á hægri kantinum og er hann strax byrjaður að ógna með hlaupum inn fyrir.
1. mín
Leikur hafinn
Ballið er byrjað!
Fyrir leik
Gustav Kjeldsen dettur út Hann virtist finna fyrir í mjöðminni í upphituninni og teymið hefur metið hann óleikfæran. Í stað hans kemur Heiðar Ægison.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn Jökull og Maggi hafa valið liðin fyrir slag kvöldsins.
Fyrir leik
Staðan á Garðbæingum Stjörnumenn eru að endurheimta menn til baka fyrir leik kvöldsins en þeir Örvar Eggertsson, Benedikt Warén, Andri Rúnar Bjarnason og Heiðar Ægisson eru klárir í slaginn. Hins vegar taka Daníel Finns Matthíasson og Jóhann Árni Gunnarsson út leikbann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Mosfellingar geta skrifað söguna Afturelding hefur aðeins einu sinni áður komist í 8-liða úrslit í bikarnum og var það einmitt í fyrra. Með sigri í dag verður það þá í fyrsta skipti sem Afturelding mun leika í undanúrslitum. Mikið í húfi fyrir Mosfellina sem ætla að tjalda öllu til fyrir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leið Aftureldingar Afturelding hóf leik einni umferð á undan Stjörnunni og byrjaði á 2-3 sigri gegn ÍR þar sem Joacim Holtan skoraði tvö mörk og Óðinn Bjarka eitt. Því næst var það Ýmir sem beið þeirra en sá leikur fór 6-1 þar sem Holtan skoraði aftur tvö mörk og Óðinn eitt en ásamt þeim voru Elmar Kári, Bart Kooistra og Róbert Agnar á skotskónum. Að lokum voru það Njarðvíkingar sem máttu þola 5-2 tap þar sem Óðinn skoraði í þriðja bikarleiknum í röð, Elmar Kári skoraði tvö mörk og Aron Elí og Bart Kooistra skoruðu einnig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leið Stjörnunnar Stjarnan byrjaði á 2-1 sigri gegn Selfossi þar sem Emil Atlason setti bæði mörkin í síðari hálfleik en Einar Bjarki Einarsson minnkaði muninn á lokamínútum leiksins. Því næst var það sigur gegn KR, aftur 2-1 sigur, en sá leikur kom beint í kjölfar taps Stjörnunnar í deildinni gegn KR. Aftur skoraði Emil Atlason bæði mörk Stjörnunnar, nú bæði í fyrri hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Þriðja liðið Twana Khalid Ahmed fær traustið og er dómari leiksins, honum til halds og trausts eru Gylfi Már Sigurðsson og Egill Guðvarður Guðlaugsson sem aðstoðardómarar og fjórði dómari er Elías Ingi Árnason. Dómaraeftirlitsmaður er enginn annar en Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
8 liða úrslitin að hefjast! Velkomin í textalýsingu fyrir leik Aftureldingar og Stjörnunnar í 8-liða úrslitum Mjólkubikars karla sem fer fram á Malbikastöðinni að Varmá. Sigurvegari kvöldsins verður fyrsta liðið til þess að tryggja sig inn í undanúrslitin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
2. Heiðar Ægisson ('62)
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
11. Birnir Snær Ingason
17. Haukur Örn Brink ('84)
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
22. Emil Atlason
27. Damil Serena Dankerlui ('84)
32. Örvar Logi Örvarsson
99. Andri Rúnar Bjarnason ('27)
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason (m)
4. Þorri Mar Þórisson ('84)
7. Örvar Eggertsson ('27)
14. Bjarki Hauksson
23. Benedikt V. Warén ('84)
30. Markús Andri Daníelsson Martin
33. Bjarki Hrafn Garðarsson
36. Arnar Breki Björnsson ('62)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Hrannar Bogi Jónsson (AÞ)
Hákon Ernir Haraldsson (AÞ)
Egill Atlason (Sjúkraþj.)
Alex Þór Hauksson (Leikmaður utan hóps)
Rajko Stanisic (MÞ)
Garpur I Elísabetarson (Liðsstj.)

Gul spjöld:
Haukur Örn Brink ('45)
Örvar Eggertsson ('60)
Guðmundur Baldvin Nökkvason ('84)
Guðmundur Kristjánsson ('90)
Jökull I Elísabetarson ('91)

Rauð spjöld:
Örvar Eggertsson ('89)