Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Mjólkurbikar karla
ÍA
LL 1
2
Víkingur R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 2
0
HK
ÍA
1
2
Víkingur R.
0-1 Óskar Borgþórsson '59
0-2 Aron Elís Þrándarson '74
Markús Páll Ellertsson '94 1-2
12.06.2026  -  20:15
ELKEM völlurinn
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Heiðskýrt en vindasamt
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Daníel Hafsteinsson
Byrjunarlið:
37. Jón Sölvi Símonarson (m)
3. Johannes Vall ('85)
5. Baldvin Þór Berndsen ('86)
7. Haukur Andri Haraldsson
8. Guðmundur Þórarinsson ('46)
11. Gísli Eyjólfsson
13. Erik Tobias Sandberg
21. Böðvar Böðvarsson (f)
22. Ómar Björn Stefánsson ('71)
25. Markús Páll Ellertsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
31. Isak Theodor Eidem (m)
9. Viktor Jónsson ('46)
10. Steinar Þorsteinsson
15. Gabríel Snær Gunnarsson ('85)
16. Rúnar Már S Sigurjónsson ('86)
17. Gísli Laxdal Unnarsson ('71)
20. Ísak Máni Guðjónsson
27. Brynjar Óðinn Atlason
87. Styrmir Jóhann Ellertsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson (AÞ)
Dean Martin (AÞ)
Salvar Georgsson (Forráðam.)
Mario Majic (Sjúkraþj.)
Teitur Pétursson (Liðsstj.)
Dino Hodzic (MÞ)

Gul spjöld:
Guðmundur Þórarinsson ('18)
Johannes Vall ('43)
Markús Páll Ellertsson ('82)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Sanngjarn sigur gestanna staðreynd.

Skýrsla og viðtöl væntanleg.

Ég þakka fyrir mig.
94. mín MARK!
Markús Páll Ellertsson (ÍA)
Er eitthvað eftir? NEI Gott skot í fjærhornið.

Gunnar flautaði leikinn af við miðjusparkið beint eftir markið.
94. mín
Gísli Eyjólfs með fast á lofti skot fyrir utan teiginn sem Aron Snær grípur vel.
90. mín
4 mínútur í uppbótartíma.
89. mín
Aukaspyrna inn á teig Víkings og Viktor Jóns nær föstu skoti sem Aron grípur þó í markinu.
86. mín
Inn:Rúnar Már S Sigurjónsson (ÍA) Út:Baldvin Þór Berndsen (ÍA)
85. mín
Inn:Gabríel Snær Gunnarsson (ÍA) Út:Johannes Vall (ÍA)
85. mín
Aron Elís rennir boltanum á Jóhannes Bjarnason sem skýtur yfir markið úr fínasta færi.
83. mín
Inn:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) Út:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
82. mín Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Eftir hitann sem myndaðist
82. mín Gult spjald: Markús Páll Ellertsson (ÍA)
82. mín
Inn:Jóhannes Kristinn Bjarnason (Víkingur R.) Út:Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
82. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Út:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
81. mín
Hiti í mönnum eftir að Elías fór niður eftir að sjálfur hafa verið dæmdur brotlegur.
Settu þig í hleðslu með Hleðslu
80. mín
Tíu mínútur eftir fyrir heimamenn til að gera eitthvað í þessum leik.
74. mín MARK!
Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
ARON ELÍS Nýkominn inn á og nýbúinn að fá högg á höfuðið en skorar samt að sjálfsögðu með þessum flotta skalla sínum.

Frábær sending inn á teiginn frá Helga sem fer beint á Aron sem gerir þetta vel.

0-2 og Íslandsmeistararnir komnir í góða stöðu.
74. mín
Víkingar fá hornspyrnu eftir fyrirgjöf frá Erlingi sem Erik Tobias kemur aftur fyrir.
72. mín
Inn:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.) Út:Ármann Ingi Finnbogason (Víkingur R.)
72. mín
Inn:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.) Út:Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
71. mín
Inn:Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA) Út:Ómar Björn Stefánsson (ÍA)
68. mín
Skagamenn vilja víti Sveinn Gísli sparkar boltanum út úr teig Víkinga og virðist mögulega sparka aðeins líka í Markús en Gunnar bendir á hornfánann.
67. mín
Ármann Ingi með skot sem fer fram hjá markinu úr álitlegri stöðu.
63. mín
Víkingar hleypa Skagamönnum ekkert áleiðis þessa stundina.
60. mín Gult spjald: Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Brot á Jóni Gísla.
59. mín MARK!
Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson
SÁ ER SJÓÐHEITUR Frábær fyrirgjöf frá Valdimari sem ratar á Óskar sem er einn inni á teignum og klárar vel í fyrstu snertingu

Óskar Borgþórsson heldur áfram að skora!
54. mín
Frábært færi Víkinga Valdimar með frábæran sprett í gegnum miðja vörn ÍA og rennir boltanum á Elías sem er í góðu færi en nær ekki að klára þetta.
49. mín
Þá fór spyrnan hans að sjálfsögðu rakleiðis aftur fyrir endamörk eftir þetta hrós frá mér.
49. mín
Gestirnir fá hornspyrnu sem Daníel undirbýr sig að taka. Föstu leikatriðin hans hafa verið mjög góð hér í kvöld.
46. mín
Þetta er komið af stað.
46. mín
Inn:Viktor Jónsson (ÍA) Út:Guðmundur Þórarinsson (ÍA)
45. mín
Hálfleikur
0 mínútum bætt við þennan fyrri hálfleik
43. mín Gult spjald: Johannes Vall (ÍA)
Virðist stíga á Valdimar en stúkan var ekki sammála Gunnari.
40. mín
Erik Tobias með slæm mistök og gefur beint á Ármann rétt fyrir utan eiginn teig en mjög lélegt skot sem Ármann tekur.
38. mín
Áfram heldur Ármann að fara illa með Skagamenn. Nú brýtur Böðvar á honum eftir skemmtilega hreyfingu frá Ármanni.
35. mín
Skagamenn í veseni á eigin vallarhelmingi og boltinn ratar á Ármann Inga sem rennir honum á Valdimar sem kemur með góða fyrirgjöf en enginn Víkingur er mættur í hættusvæðið.
31. mín
Ármann með góðan sprett og sækir hornspyrnu. Hann hefur verið að valda sínu gamla liði smá hausverk fyrsta hálftímann.
30. mín
Sveinn Gísli á kraftmikinn sprett upp völlinn sem endar með skoti sem fer himinhátt yfir markið.
27. mín
Aftur Baldvin! Kemur mjög góð fyrirgjöf á teig Víkings á fjæsvæðið en Baldvin setur boltann yfir markið.
27. mín
DAUÐAFÆRI SKAGAMANNA Skapast mikill darraðadans inni á teig Víkings og Baldvin mokar boltanum á markið en Aron Snær rétt nær að verja.
26. mín Gult spjald: Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.)
Rífur Hauk niður er Skagamenn voru að komast í fyrsta sinn í langan tíma í sókn.
25. mín
DAUÐAFÆRI Góð sending fyrir markið frá Valdimari sem ratar á kollinn á Elíasi sem setur boltann í stöngina og boltinn skoppar í Jón Sölva og í horn.

Heppnin með Skagamönnum þarna.
25. mín
Eftir aðeins brösuga byrjun hafa Víkingar tekið öll völd á vellinum.
20. mín
ALLT BRJÁLAÐ Gummi Tóta með rosalega svipað brot en Gunnar Oddur sleppir spjaldinu og leikmenn sem og bekkur Víkinga tryllast.

Verður að segjast að Guðmundur Þórarinsson sé stálheppinn að vera enn inni á vellinum.
19. mín
DANNI HAFSTEINS Með enn eina frábæra aukaspyrnuna en nú snýr hann boltann út fyrir vegginn og á nærstöngina en Jón Sölvi nær að slá boltann í burtu.
18. mín Gult spjald: Guðmundur Þórarinsson (ÍA)
Ármann sækir aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Skagans og Gummi Tóta fær gula spjaldið.
16. mín
HÆTTA Á TEIGNUM Daníel með stórkostlega aukaspyrnu inn á teig Skagamanna sem tveir Víkingar ná ekki að koma á markið og aftur er síðan dæmd rangstaða.
14. mín
Spyrnan ratar á Óskar utarlega í teignum og hann reynir skot sem Haukur kemst fyrir.
14. mín
Víkingar fá fyrsu hornspyrnu leiksins
11. mín
Daníel með góða aukaspyrnu inn á teiginn og Kalli rétt svo missir af boltanum en var flaggaður rangstæður.
7. mín
Víkingar kaldir þessar fyrstu mínútur Nokkrar misheppnaðar sendingar hjá þeim á þessum fyrstu mínútum og hafa þeir ekkert komist áleiðis á vallarhelmingi Skagans.
5. mín
Skagamenn í góðri stöðu Snöggt innkast tekið á Hauk sem er við markteiginn en hittir ekki boltann og fer hann aftur fyrir endalínu.
4. mín
Bæði lið þreifa fyrir sér þessar fyrstu mínútur.
1. mín
Leikur hafinn
Tarik sparkar þessu af stað!
Fyrir leik
Sigursælasti leikmaður í sögu íslenskrar knattspyrnu heiðraður Fallega gert hjá Skagamönnum sem vígja minningarstein Sigursteins Gíslasonar en börnin hans, Unnur Elín og Teitur Leó, taka boltann af steininum í fyrsta sinn og bera hann inn á völlinn.
Fyrir leik
Bongóblíða á Akranesi Það er varla hægt að biðja um betra sumarveður en hér á Skaganum er sólin enn á lofti og allt að fyllast af stuðningsmönnum beggja liða.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús Sölvi gerir tvær breytingar frá síðasta leik en Lárus Orri gerir eina.
Fyrir leik
Aðeins um tímabil liðanna Eins og flestir vita eru Víkingar á toppi Bestu deildarinnar en þeir hafa unnið 10 leiki í röð í öllum keppnum.
Víkingar hafa alls unnið 11 af 12 leikjum sínum á tímabilinu, tvo í bikar gegn Fram og HK, en eina jafntefli þeirra kom gegn Blikum í fyrstu umferð Bestu deildar.

Skagamenn sitja hins vegar í 6. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 9 leiki. Þeir unnu Hauka 4-0 og þar næst Grindavík í vítaspyrnukeppni eftir 2-2 leik.
Báðir leikir Skagamanna í bikarnum hafa verið á heimavelli og báðir leikir Víkings hafa verið á útivelli og það sama er á boðstólnum hér í dag.
Fyrir leik
Skemmtilegar fréttir frá fótboltaparinu Karl Friðleifur, leikmaður Víkings, á von á barni en hann greindi frá því í gær og óskum við hjá Fótbolta.net honum og frú innilega til hamingju með það!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fallegt framtak Skagamanna Fyrir leik kvöldsins verður afhjúpaður minningarsteinn til heiðurs Sigursteini Gíslasyni. Fallegt hjá Skagamönnum en Sigursteinn lék á sínum tima 335 leiki og skoraði í þeim 40 mörk.
Fyrir leik
Markús Páll vill fá fólkið á völlinn Markaskorarinn var tekinn í viðtal við Fótbolta.net fyrir leikinn og hafði hann mikið að segja.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Seinast höfðu Víkingar betur Liðin mættust í Bestu deildinni í Víkinni í apríl en þá flengdu Víkingar Skagamenn með 4-0 sigri. Þar skoraði Elías Már tvö mörk en ásamt því voru það Valdimar Þór og Viktor Örlygur sem komust á blað.

Ná Skagamenn að hefna fyrir þetta slæma tap og halda bikarævintýri sínu áfram eða halda Víkingar áfram að vinna allt og alla?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins Gunnar Oddur Hafliðason er aðaldómari leiksins, aðstoðardómararnir tveir eru Ragnar Þór Bender og Kristján Már Ólafs og fjórði dómari er Pétur Guðmundsson. Viðar Helgason er dómaraeftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Mjólkurbikarinn heldur áfram! Verið velkomin í þráðbeina textalýsingu fyrir leik ÍA og Víkings í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla sem fer fram á ELKEM vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dregið verður í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir leikinn. Undanúrslitaleikirnir fara fram 24. og 25. júní.
Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
4. Oliver Ekroth (f)
9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson ('82)
19. Óskar Borgþórsson ('72)
20. Tarik Ibrahimagic
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('83)
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson ('82)
69. Ármann Ingi Finnbogason ('72)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
47. Ögmundur Kristinsson (m)
7. Erlingur Agnarsson ('72)
8. Viktor Örlygur Andrason ('82)
10. Gylfi Þór Sigurðsson
14. Jóhannes Kristinn Bjarnason ('82)
21. Aron Elís Þrándarson ('72)
24. Davíð Örn Atlason ('83)
35. Þorri Ingólfsson
50. Viðar Elí Bjarnason
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Aron Baldvin Þórðarson (AÞ)
Hajrudin Cardaklija (MÞ)
Rúnar Pálmarsson (Sjúkraþj.)
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ)
Kári Sveinsson (Styrktarþj.)
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.)
Daníel Darri Arnarsson (Leikgr.)

Gul spjöld:
Sveinn Gísli Þorkelsson ('26)
Óskar Borgþórsson ('60)
Oliver Ekroth ('82)

Rauð spjöld: