Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 10:15
Kári Snorrason
Íslandsmeistaraparið á von á barni
Mynd: Instagram
Íslandsmeistaraparið Barbára Sól Gísladóttir og Karl Friðleifur Gunnarsson eiga von á sínu fyrsta barni.

Parið tilkynnti um gleðitíðindin á samfélagsmiðlinum Instagram í gærkvöldi.

Barbára Sól er leikmaður Breiðabliks en ljóst er að hún mun ekki spila meira með liðinu á tímabilinu.

Parið afrekaði það að verða bæði Íslandsmeistarar á síðasta tímabili, Barbára með Blikum en Karl með Víkingum.

Alls skipta þau fimm Íslandsmeistaratitlum á milli sín en Barbára vann titilinn annað árið í röð í fyrra.

Þá á Karl Friðleifur þrjá titla á bakinu, vann fyrst 2021, svo 2023 og 2025 með Víkingum.

Bæði eru þau að upplagi hægri bakverðir.
Slapp
banner
banner
banner