HM er farið í gang, gleðilega hátíð! Hér er slúðurpakkinn á þessum sólríka föstudegi. Bakverðir orðaðir við Manchester United og Real Madrid vill fá varnarmann Manchester City. Þetta og fleira í pakkanum í dag.
Manchester United hefur áhuga á enska varnarmanninum Lewis Hall (21) hjá Newcastle og hann vill fara á Old Trafford. (Sun)
Antonee Robinson (28), vinstri bakvörður Fulham og Bandaríkjanna, er einnig undir smásjá Manchester United sem skoðar möguleika á markaðnum. (Sky Sports)
Barcelona var ekki tilbúið að bjóða Bernardo Silva (31) sama launapakka og Real Madrid bauð honum. (Marca)
Samningur Silva rennur út í lok júní og hann er á leið til Real Madrid. Viðræður um kaup og kjör eru á lokametrunum. (Fabrizio Romano)
Jose Mourinho vill fá króatíska varnarmanninn Josko Gvardiol (24) frá Manchester City en sá portúgalski vill styrkja vörn Real Madrid. (Teamtalk)
Rúben Amorim (41), fyrrum stjóri Manchester United, gæti tekið við AC Milan en ítalska félagið telur að hann geti komið með nýja orku. (Fichajes)
Barcelona mun ekki kaupa Marcus Rashford (26) frá Manchester United fyrir 26 milljónir punda en ákvæðið rennur út á mánudaginn. (Daily Mirror)
Manchester United gæti reynt við Mamadou Sangare (23) miðjumann Lens eftir að hafa dregið sig út úr baráttunni um Elliot Anderson (23) hjá Nottingham Forest. (TeamTalk)
Þýski varnarmaðurinn Nico Schlotterbeck (26) ætlar að einbeita sér að HM og hætta að hugsa um möguleg skipti frá Borussia Dortmund til Real Madrid. (Bild)
Tyrkneska félagið Trabzonspor vill fá markvörðinn Andre Onana (30) alfarið frá Manchester United í sumar. (Mirror)
Manchester United er einnig að skoða það að losa tyrkneska markvörðinn Altay Bayindir (28) og tékkneska makrvörðinn Radek Vitek (22) sem var á láni hjá Bristol City á síðasta tímabili. (Sky Sports)
Sunderland hefur blandað sér í baráttu um bosníska framherjann Kerim Alajbegovic (18) hjá Red Bull Salzburg. (Teamtalk)
Úfarnir hafa áhuga á að fá Pablo (22) aftur frá West Ham en Cesar Peixoto, sem er ða taka við Wolves, vann með framherjanum hjá Gil Vincente í Portúgal. (Football Insider)
Real Madrid er í viðræðum um að lána argentínska framherjann Franco Mastantuono (18) til Juventus. (TuttoSport)

