Forkeppni Evrópudeildarinnar
Vestri
45'
0
2
2
Qarabag
Lengjudeild karla
Afturelding
86'
3
1
1
Leiknir R.
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Víkingur Götu
LL
2
2
2
Stjarnan
Besta kvenna
Gri/Nja
81'
1
6
6
FH

Víkingur Götu
2
2
Stjarnan

Samtals
3
:
5
Aron Benjaminsen
'58
1-0
Sölvi Vatnhamar
'61
2-0
2-1
Birnir Snær Ingason
'67
2-2
Guðmundur Baldvin Nökkvason
'81
16.07.2026 - 17:00
Djúpumýri í Klaksvík
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Dómari: Karl Koppel (Eistland)
Djúpumýri í Klaksvík
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Dómari: Karl Koppel (Eistland)
Byrjunarlið:
1. Barður Á Reynatrøð (m)
18. Arnbjørn Svensson
6. Arnór Brandsson
('79)
('79)
7. Jakup Johansen
8. Aron Ellingsgaard
('88)
('88)
9. Jørgen Nielsen
10. Sölvi Vatnhamar
14. Ingi Jonhardsson
17. Aron Benjaminsen
24. Jósef Ólavsson
29. Ingi Arngrímsson
Varamenn:
23. Niklas Thomsen (m)
5. Jákup Vilhelmsen
19. Jákup Martin Jarnskor
('88)
('88)
27. Rani Hansen
34. Filip Djordjevic
77. Kaj Bartalsstovu
('79)
('79)
Liðsstjórn:
Jóan Poulsen (Þ)
Gul spjöld:
Jørgen Nielsen ('87)
Aron Benjaminsen ('91)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er búið, Stjörnumenn komast í aðra umferð Sambandsdeildarinnar. Differdange eða Ilves sjáum til. Takk fyrir mig, skýrslan er í pöntunarferli.
93. mín
Færrii
Waren kemst inn í teig og sendir fram fyrir markið á Brink sem kemst ekki í hann og heimamenn koma boltanum burt.
92. mín
Vááááá Jón Þór
Jón Þór með svaka takta á bekknum, nær að halda boltanum á lofti í fjórum.
91. mín
Gult spjald: Aron Benjaminsen (Víkingur Götu)
Gult spjald: Aron Benjaminsen (Víkingur Götu)
Færeyingar að missa hausinn, Aron Benjaminsen fer í fulla ferð í Árna á meðan hann er að sparka boltanum burt.
88. mín
Inn: Jákup Martin Jarnskor (Víkingur Götu)
Út: Aron Ellingsgaard (Víkingur Götu)
86. mín
Danni Finns reynir að koma með sendingu í gegnum vörn heimamanna til Waren en Barður er undan Waren.
83. mín
Aron Benjaminsen með aukaspyrnu inn í teiginn en Stjörnumenn ná að koma boltanum burt.
81. mín
MARK!
MARK!Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
Stoðsending: Daníel Finns Matthíasson
Stoðsending: Daníel Finns Matthíasson
Bannnngggg
Danni Finns með hornspyrnu, Barður reynir að dífa sér í boltann og missir hann undir sig. Boltinn skoppar inn í teignum og Guðmundur Baldvin skorar í opið markið.
79. mín
Stjörnumenn vilja hendi. Waren kemur með fyrirgjöf sem fer í höndina hjá leikmanni heimamanna. En dómarinn dæmir ekki neitt.
78. mín
Hættulegtttt
Bolti fyrir markið en Árni pikkar boltanum burt, ekki langt frá því að Jakup Johansen myndi ná að pota í hann.
76. mín
Hættulegt
L.éleg sending til baka sem Örvar kemst í, sendir á Emil sem kemur með hælsendingu á Guðmund Baldvin sem tekur skotið en beint á Barð.
76. mín
Kjeldsen með mjög hættulegan bolta til baka þegar hann á að þruma honum burt úr teignum. Ekki langt frá því að heimamenn myndu bara ná sendingunni.
72. mín
Jakup Johansen sleppur í gegn en Kjeldsen setur pressu á hann og aftur fyrir, fær ekki horn sem ég skil ekki.
72. mín
Aukaspyrna fyrir Færeyinga, Aron Benjaminsen tekur hana. Ætlar ekki að skjóta og sendir inn í teig en heimenn brjóta af sér og Stjörnumenn fá boltann.
69. mín
Gult spjald: Þorri Mar Þórisson (Stjarnan)
Gult spjald: Þorri Mar Þórisson (Stjarnan)
Færeyingar vilja annað gult, en þeir eru að ruglast á Þorra og Kjeldsen. Þeir eru líkir frændurnir.
68. mín
Inn:Daníel Finns Matthíasson (Stjarnan)
Út:Birnir Snær Ingason (Stjarnan)
Birnir er búin að vera góður í dag, skil þetta ekki.
67. mín
MARK!
MARK!Birnir Snær Ingason (Stjarnan)
Stoðsending: Örvar Eggertsson
Stoðsending: Örvar Eggertsson
Vávávávávává
Jóhann Árni með langa aukaspyrnu inn í teig, beint á Örvar sem skallar beint niður og hann skoppar í áttina að Gumma Baldvin sem nær ekki að hitta boltann. Boltinn skoppar aftur og beint á Birni sem hamrar boltanum inn, klassa mark.
65. mín
Aron Benjaminsen er að sóla allt liðið, hvað er að gerast, maðurinn er að elda þetta lið.
64. mín
Færeyingar eru að taka yfir leikinn, þeir eru bara betri. Miklu miklu betri en Stjörnumenn.
61. mín
MARK!
MARK!Sölvi Vatnhamar (Víkingur Götu)
Stoðsending: Ingi Jonhardsson
Stoðsending: Ingi Jonhardsson
Gamli maðurinnnn
Ingi á vinstri kantinum með háa fyrirgjöf beint á Sölva sem skallar boltanum framhjá Árna, miðverðir Stjörnunnar voru sofandi! Þetta var ekki flókið mark.
58. mín
MARK!
MARK! Aron Benjaminsen (Víkingur Götu)
Já sællll
Arnór Brandsson tekur hornspyrnu og Kjeldsen nær að skalla boltanum burt. Boltinn dettur á Aron Benjaminsen sem er við teigslínuna og lætur vaða strax, boltinn fer í gegnum hópinn og Árni sér boltann ekki, mögulega fer hann í Örvar á leiðinni, veit ekki.
56. mín
Passa sig!
Hár bolti á Þorra sem sendir til baka eða ekki á Árna sem pikkar boltann upp, Færeyingar eru brjálaðir. Dómarinn dæmir ekki neitt og ég ætla að vera ósammála honum. Þetta á að vera aukaspyrna inn í teignum.
55. mín
Skyndisókn hjá Stjörnunni, Örvar á kantinum reynir að senda fyrir markið en sendingin er léleg og Emil kemst ekki í hana. Þarna var tækifæri aftur.
54. mín
Hætta
Þorri reynir að senda fram fyrir markið, en boltinn fer framhjá Örvari og Emil. Þarna var tækifæri.
53. mín
Örvar reynir að koma boltanum fyrir en sendingin er blokkuð, boltinn dettur á Jóhann sem lætur vaða, en skotið er blokkað.
48. mín
Stjarnan fær hornsprynu, Jóhann tekur hana, beint á Kjeldsen sem skallar boltann niður en heimamenn koma boltanum burt.
47. mín
Virðist vera að Gummi Kri hafi fengið aftan á lærið, veit samt ekki hversu alvarlegt það er.
46. mín
Aron Benjaminsen kemst í gegnum vörn Stjörnunnar, reynir að senda á Jakup Johansen sem er í góðri stöðu til þess að skjóta en Þorri stoppar sendinguna.
45. mín
Hálfleikur
Ekki sá skemmtilegasti en vonum eftir fleiri mörkum í seinni. Sjáumst eftir korter.
45. mín
+1
Jóhann Árni með svaka sendingu á Birni sem er á kantinum, Birnir sendir inn í teig á Örvar sem rétt missir af boltanum.
42. mín
Lélegt innkast hjá Færeyingum, Aron Benjaminsen missir af boltanum og stjörnumenn fá markspyrnu.
39. mín
Gult spjald: Gustav Kjeldsen (Stjarnan)
Gult spjald: Gustav Kjeldsen (Stjarnan)
Aron Benjaminsen tekur boltann af Waren, Aron Benjaminsen keyrir í átt að markinu og Kjeldsen tekur hann niður, Kjeldsen ósáttur.
39. mín
Ótrúlegur 5 sek kafli þar sem Jóhann og Þorri sundurspila heimamenn þangað til að Jóhann missir boltann.
38. mín
Stjörnumenn eru vel pirraðir á Aron Benjaminsen, hann Aron réttir fram höndina til þess að hjálpa Jóhanni upp en hann vill ekki sjá hann.
36. mín
Hætta
Aron Benjaminsen að dansa við Örvar Loga, kemur boltanum fyrir og heimamenn ná ekki að pota í boltann og Stjörnumenn koma boltanum burt.
35. mín
Stjörnumenn koma boltanum burt, boltinn fór í höndina hjá Þorra en þetta er aldrei víti.
34. mín
Ingi Jonhardsson með fyrirgjöf, Alex sparkar boltanum burt en beint í Jóhann og fyrir horn.
33. mín
Hornið á fjær, Örvar skallar burt. Boltinn dettur á Aron Benjaminsen sem tekur skotið, skotið fer í Waren og í annað horn.
31. mín
Hornið mjög lélegt og stutt, samt ná heimamenn ekki að koma boltanum burt, darraðadans. Boltinn fer svo á fjær og Birnir nær honum, reynir aðra sendingu sem heimamenn ná loksins að koma burt.
29. mín
Örvar í hættulegu færi en hann nær ekki að skalla boltann, dómarinn dæmir brot á Örvar samt, soft.
28. mín
Þorri reynir að senda inn í teig á Waren sem er í góðri stöðu til þess að skjóta en varnarmaður Víkings rétt nær að pota boltanum burt.
27. mín
Birnir með skot langt langt frá, æfingaskot fyrir Barður Á Reynatrøð sem samt missir hann.
26. mín
Víkingur með boltann fyrir markið en Kjeldsen skallar hann burt, hefði verið hættulegur ef Kjeldsen hefði ekki stoppað þessa sendingu.
23. mín
Þorri með fyrirgjöf inn í teig Víkings, beint á Birni sem reynir að koma honum fyrir markið, boltinn fer á Waren sem missir boltann út af.
19. mín
Nokkrir áhorfendur að horfa á leikinn frítt fyrir utan svæðið, þeir fá tiltal frá gæslunni.
18. mín
Aron Benjaminsen tekur aukaspyrnuna og tekur skotið, Örvar Logi skallar boltann burt en hann virðist meiða sig við skallann. Hann er góður samt, fer ekki út af.
16. mín
Inn:Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
Út:Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan)
Virðist vera meiðsli, sá ekki neitt gerast. Hann var búin að vera góður hingað til í leiknum, sjáum til hvort að þetta hafi áhrif á Stjörnuna.
15. mín
Örvar sleppur í gegnum vörn Víkings, dettur niður í teignum en dómarinn gerir ekki neitt. Rétt hjá dómaranum, dettur mjög léttilega niður.
8. mín
Heimenn taka hana stutt, Aron Benjaminsen fær boltan og lætur vaða, en skotið fór rétt yfir slána. Má ekki gleyma að Aron Benjaminsen skoraði í síðasta leik.
7. mín
Víkingur keyrir svo upp hægri kantinn og Birnir brýtur af sér, hættuleg auakspyrna fyrir heimamenn.
7. mín
Jóhann Árni tekur aukaspyrnuna, lætur vaða beint í vegginn sem er bara einn leikmaður. Lélegt, mín skoðun.
5. mín
Birnir fær aukaspyrnu á góðum stað, fær spark í hnéið. Sjens til þess að koma boltanum inn í boxið.
4. mín
Flott sókn hjá Stjörnunni sem byrjar leikinn vel, þangað til að Örvar missir boltann klaufalega. Örvar og Birnir ekki að tala saman.
1. mín
Heimenn byrja á því strax að sparka boltanum upp og Stjörnumenn taka strax yfir leikinn.
1. mín
Leikur hafinn
Ó já, getur Euro Emil Atla skorað þrennu í dag? Sjáum til. En heimamenn byrja.
Fyrir leik
Ein breyting á liði Stjörnunnar
Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, gerir eina breytingu frá fyrri leiknum. Heiðar Ægisson fór meiddur af velli í fyrri leiknum og inn í liðið kom Þorri Mar Þórisson. Þorri Mar byrjar leikinn í dag og Heiðar er ekki í hóp. Það vekur athygli að Sindri Þór Ingimarsson er ekki í hópnum í dag en hann kom inn á sem varamaður í fyrri leiknum.
Fyrir leik
Leikurinn er sýndur beint á Livey
Smelltu hér til að fara í útsendinguna - Hörður Ágústsson lýsir.
Tryggðu þér áskrift á Livey. Með kóðanum EUROSTARS2026 fæst 30% afláttur af fyrsta mánuði fyrir nýja áskrifendur.
Tryggðu þér áskrift á Livey. Með kóðanum EUROSTARS2026 fæst 30% afláttur af fyrsta mánuði fyrir nýja áskrifendur.
Fyrir leik
Kaj Leo lék lengi á Íslandi
Kaj Leo í Bartalsstovu, leikmaður Víkings Götu, er fyrrum leikmaður ÍBV, FH, Vals, ÍA, Leiknis, Njarðvíkur og KFK. Hann ræddi við Fótbolti.net fyrir fyrri leikinn.
Fyrir leik
Sölvi Vatnhamar eldri bróðir Gunnars
Sölvi Vatnhamar er lykilmaður í liði Víkings Götu. Hann er eldri bróðir Gunnars Vatnhamar leikmanns Víkings Reykjavíkur. Sölvi ræddi við Fótbolta.net eftir fyrri leikinn.
Fyrir leik
Viðtal við þjálfarann Jón Þór eftir fyrri leikinn
,,Mér fannst við vera í smá basli með seinni bolta og stjórn á miðjunni til að byrja með. Um leið og við náðum tökum á því vorum við að hleypa þeim svolítið upp í skyndisóknir tiltölulega auðveldlega. Um leið og við lokuðum því þá fannst mér við taka öll völd á þessum leik. Eins og ég sagði leiftrandi góður sóknarleikur, við vorum að skapa okkur færi heilt yfir allan leikinn. Eins og ég segi, óheppni að ná ekki fleiri mörkum, að markmaðurinn var með ótrúlegar reflex í nokkrum skotum og færum. Birnir með frábært skot í þverslána líka, þannig að við höfðum svo sannarlega geta bætt fleiri mörkum í þessum leik. En í raun og veru ekkert sem við gerum rangt í því, heldur einn af þeim dögum þar sem það datt ekki inn," sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, meðal annars eftir fyrri leik liðanna.
Fyrir leik
Hver þrEmillinn
Emil Atlason, framherji Stjörnunnar, skoraði öll þrjú mörk Stjörnunnar í fyrri leiknum. Hann ræddi við Fótbolta.net um seinni leikinn fyrr í dag.
„Leikurinn leggst vel í mig, þetta er leikur sem mun líklega vera öðruvísi en fyrri leikurinn á Íslandi. Þeir eru á heimavelli og mæta kannski meira til leiks ef það er hægt að orða það þannig. Við þurfum að vera jarðtengdir, það er bara hálfleikur í þessu. Við megum ekki koma inn í leikinn haldandi að þetta væri búið. Maður veit aldrei með þessa Evrópuleiki, þetta eru öðruvísi leikir en deildar- og bikarleikir, það getur allt gerst."
„Aðstæður í Klaksvík eru fínar, en mér finnst völlurinn samt svolítið harður, boltinn skoppar rosalega mikið og ég held það sé korkur sem er notaður sem uppfyllingarefni í völlinn. Annars er þetta mjög fínt og flott. Við spilum með HM boltanum og við þurfum að venjast honum, hann er aðeins öðruvísi."
Viðtalið í heild
„Leikurinn leggst vel í mig, þetta er leikur sem mun líklega vera öðruvísi en fyrri leikurinn á Íslandi. Þeir eru á heimavelli og mæta kannski meira til leiks ef það er hægt að orða það þannig. Við þurfum að vera jarðtengdir, það er bara hálfleikur í þessu. Við megum ekki koma inn í leikinn haldandi að þetta væri búið. Maður veit aldrei með þessa Evrópuleiki, þetta eru öðruvísi leikir en deildar- og bikarleikir, það getur allt gerst."
„Aðstæður í Klaksvík eru fínar, en mér finnst völlurinn samt svolítið harður, boltinn skoppar rosalega mikið og ég held það sé korkur sem er notaður sem uppfyllingarefni í völlinn. Annars er þetta mjög fínt og flott. Við spilum með HM boltanum og við þurfum að venjast honum, hann er aðeins öðruvísi."
Viðtalið í heild
Fyrir leik
Sigurvegarinn fer til Finnlands eða Lúxemborgar
Ljóst er að sigurvegarinn í þessu einvígi mætir sigurvegaranum úr einvígi Differdange (Lúxembourg) og Ilves (Finnland). Staðan þar er jöfn eftir markalausan leik í Lúxemborg.
Sigurvegarinn í einvígi Stjörnunnar og Víkings Götu byrjar næsta einvígi á heimavelli. Næsta einvígi er spilað 23. og 30. júlí.
Sigurvegarinn í einvígi Stjörnunnar og Víkings Götu byrjar næsta einvígi á heimavelli. Næsta einvígi er spilað 23. og 30. júlí.
Fyrir leik
Velkomin til Klaksvíkur!
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í textalýsingu frá leik Víkings Götu og Stjörnunnar í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Um seinni leik liðanna er að ræða í 1. umferð keppninnar og leiðir Stjarnan með tveimur mörkum eftir fyrri leikinn sem fram fór á Samsungvellinum síðasta fimmtudag. Lokatölur þar urðu 3-1 eftir að færeyska liðið komst yfir.
Við lýsinguna í dag er stuðst við sjónvarpsútsendingu Livey frá leiknum.
Leikurinn hefst klukkan 17:00 og fer fram í Klaksvík.
Um seinni leik liðanna er að ræða í 1. umferð keppninnar og leiðir Stjarnan með tveimur mörkum eftir fyrri leikinn sem fram fór á Samsungvellinum síðasta fimmtudag. Lokatölur þar urðu 3-1 eftir að færeyska liðið komst yfir.
Við lýsinguna í dag er stuðst við sjónvarpsútsendingu Livey frá leiknum.
Leikurinn hefst klukkan 17:00 og fer fram í Klaksvík.

Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
4. Þorri Mar Þórisson
('86)
('86)
5. Guðmundur Kristjánsson
('16)
('16)
7. Örvar Eggertsson
('86)
('86)
8. Jóhann Árni Gunnarsson
11. Birnir Snær Ingason
('68)
('68)
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
22. Emil Atlason (f)
('86)
('86)
23. Benedikt V. Warén
32. Örvar Logi Örvarsson
- Meðalaldur 28 ár
Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason (m)
83. Ðuro Stefan Beic (m)
10. Daníel Finns Matthíasson
('68)
('68)
14. Bjarki Hauksson
('86)
('86)
17. Haukur Örn Brink
('86)
('86)
27. Damil Serena Dankerlui
29. Alex Þór Hauksson
('16)
('16)
30. Markús Andri Daníelsson Martin
37. Benjamín Björnsson
99. Andri Rúnar Bjarnason
('86)
- Meðalaldur 23 ár
('86)
Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Olgeir Sigurgeirsson (AÞ)
Hákon Ernir Haraldsson (AÞ)
Rajko Stanisic (MÞ)
Gul spjöld:
Gustav Kjeldsen ('39)
Þorri Mar Þórisson ('69)
Örvar Logi Örvarsson ('86)
Rauð spjöld:





