Fotbolti.net
09.07.26 - 22:12
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Jón Þór: Með ólíkindum að við skorum ekki fleiri mörk

Auglýsing
Jón Þór: Með ólíkindum að við skorum ekki fleiri mörk
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst Stjörnuliðið gott í kvöld, pínu áfall að lenda undir í leiknum, en mér fannst við koma vel til baka eftir það" sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar eftir 3-1 heima sigur gegn Víkingur Götu í Sambandsdeildinni.

Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 1 Víkingur Götu

„Á endanum er það með ólíkindum að við skorum ekki fleiri mörk hérna og farið út með stærri forystu til Færeyja."

Hvernig fannst þér leikurinn spilast?

„Mér fannst við vera í smá basli með seinni bolta og stjórn á miðjunni til að byrja með. Um leið og við náðum tökum á því vorum við að hleypa þeim svolítið upp í skyndisóknir tiltölulega auðveldlega. Um leið og við lokuðum því þá fannst mér við taka öll völd á þessum leik. Eins og ég sagði leiftrandi góður sóknarleikur, við vorum að skapa okkur færi heilt yfir allan leikinn. Eins og ég segi, óheppni að ná ekki fleiri mörkum, að markmaðurinn var með ótrúlegar reflex í nokkrum skotum og færum. Birnir með frábært skot í þverslána líka, þannig að við höfðum svo sannarlega geta bætt fleiri mörkum í þessum leik. En í raun og veru ekkert sem við gerum rangt í því, heldur einn af þeim dögum þar sem það datt ekki inn."

Var erfitt að spila á móti Víkingi Götu?

„Við erum að spila á móti hörku liði, þetta eru mjög orkumikið lið, þeir eru sterkir, vel þjálfaðir og með gæði líka í liðinu sínu. Þetta var hörku leikur sem Stjörnuliðið voru virkilega góðir í."

Heiðar Ægis fór meiddur af velli í fyrri hálfleik.

„Heiðar sleit krossband í fyrra og er að koma til baka eftir það og er að spila sig í form. Hann fékk aftan í lærið í þessum leik og sama gerðist í blika leiknum um daginn. Hann er að vinna sig í það að koma sér inn á völlinn aftur."

Sumarglugginn er að opnast bráðum, eru þið að skoða einhverja leikmenn?

„Já, við erum að skoða þau mál og hvað við getum gert í því, það ætti að koma í ljós á næstu dögum."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.