Fotbolti.net
16.07.26 - 11:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Emil Atla: Í hliðstæðum heimi væri ég kannski að spila hérna

Emil fagnar marki síðasta fimmtudag.

Emil fagnar marki síðasta fimmtudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Markahrókurinn Emil Atlason verður í eldlínunni seinna í dag þegar Stjarnan mætir færeyska liðinu Víkingi Götu í seinni leik liðanna í 1. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni.

Stjarnan er með tveggja marka forystu eftir 3-1 sigur á Samsungvellinum í fyrri leiknum sem fram fór síðasta fimmtudag. Leikurinn í dag hefst klukkan 17:00 að íslenskum tíma og fer fram í Klaksvík í Færeyjum. Emil skoraði öll mörk Stjörnunnar síðasta fimmtudag og ræddi við Fótbolta.net í dag.
Mjög næs í Færeyjum
„Það er bara æðislegt hérna, tók smá rölt hérna í Þórshöfn, það er sól og blíða og svo förum við yfir til Klaksvíkur á eftir. Það er mjög næs. Ég held að við séum svona hálftíma að fara yfir til Klaksvíkur," segir Emil.

„Leikurinn leggst vel í mig, þetta er leikur sem mun líklega vera öðruvísi en fyrri leikurinn á Íslandi. Þeir eru á heimavelli og mæta kannski meira til leiks ef það er hægt að orða það þannig. Við þurfum að vera jarðtengdir, það er bara hálfleikur í þessu. Við megum ekki koma inn í leikinn haldandi að þetta væri búið. Maður veit aldrei með þessa Evrópuleiki, þetta eru öðruvísi leikir en deildar- og bikarleikir, það getur allt gerst."

„Aðstæður í Klaksvík eru fínar, en mér finnst völlurinn samt svolítið harður, boltinn skoppar rosalega mikið og ég held það sé korkur sem er notaður sem uppfyllingarefni í völlinn. Annars er þetta mjög fínt og flott. Við spilum með HM boltanum og við þurfum að venjast honum, hann er aðeins öðruvísi."


Boltinn á auðvelt með að flökta
Er eitthvað sérstakt sem framherjinn spáir í varðandi boltann?

„Boltinn á auðvelt með að flökta, ég myndi lýsa honum þannig að það sé auðveldara að negla í gegnum hann. Þetta er fínasti bolti, ég er ánægður með hann. Það þarf bara að venjast honum."

Með spennandi kantmann
Þú talar um að þeir munu sennilega mæta meira til leiks, kom þér á óvart hvernig Víkingur var í fyrri leiknum?

„Nei, svo sem ekki. Í byrjun vorum við að þreifa á því hvernig þeir eru og fyrri hálfleikurinn var ekki sá besti hjá okkur. Við þurftum að komast í takt við leikinn, en segjandi það fannst mér við vera yfir í leiknum allan tímann. Þeir eru góðir í skyndisóknum og eru með flotta leikmenn innan sinna raða, sérstaklega kantmanninn sem skoraði þetta glæsilega mark. Hann var mest sjáanlegur á vellinum af þeirra leikmönnum."

Aron Benjaminsen skoraði mark Víkings í fyrri leiknum og kom Færeyingunum yfir. Hann er 19 ára kantmaður sem stærri félög hafa augastað á.

Meiri áhersla á varnarleikinn
Eftir að Jón Þór tók við, hefur eitthvað breyst í ykkar leik?

„Ég myndi segja að það sé kannski aðeins meiri áhersla á varnarleiknum. Við viljum að sjálfsögðu reyna að spila góðan sóknarbolta, erum með frábæra leikmenn þegar kemur að því. Hans helsti fókus hefur verið á að reyna laga varnarleikinn. Jón Þór hefur komið mjög flottur inn og við erum að gera nokkuð fína hluti núna."

Áhugi frá Færeyjum
Fyrir tímabilið 2024 barst tilboð í Emil frá færeysku meisturunum í KÍ Klaksvík. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var tilboðið lágt og fór ekkert lengra en það. Talaðir þú eitthvað við einhvern varðandi áhuga þeirra? Varstu svekktur að þetta fór ekki lengra?

„Ég var bara spurður (hvort ég væri til í þetta) og ég sagði bara jááá, mögulega. En svo varð ekkert meira. Svo kom þessi frétt. Ég heyrði ekkert mikið meira."

„Nú er ég hérna í Færeyjum og þetta er mjög næs, ég verð að viðurkenna það, það er alveg gott að vera hérna. Í hliðstæðum heimi þá væri ég kannski (að spila) hérna, ég hef ekkert slæmt að segja um Færeyjar, bara gott að vera hérna akkúrat núna,"
segir Emil.

Leikur Víkings Götu og Stjörnunnar verður í beinni útsendingu á Livey og beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Aron Benjaminsen skoraði mark færeyska liðsins í fyrri leiknum.

Aron Benjaminsen skoraði mark færeyska liðsins í fyrri leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skoraði þrennu í fyrri leiknum.

Skoraði þrennu í fyrri leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Þór var ráðinn þjálfari Stjörnunnar fyrir um mánuði síðan.

Jón Þór var ráðinn þjálfari Stjörnunnar fyrir um mánuði síðan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

HM boltinn í ár - TRIONDA sem Adidas framleiðir.

HM boltinn í ár - TRIONDA sem Adidas framleiðir.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.