Liverpool hefur samband við Bournemouth - Inter vill tvo leikmenn Tottenham - Arsenal hefur áhuga á Konsa
Í BEINNI
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 4
1
Njarðvík
Fylkir
4
1
Njarðvík
Birkir Eyþórsson '12 1-0
Birkir Eyþórsson '32 2-0
Guðmundur Tyrfingsson '40 3-0
Guðmundur Tyrfingsson '43 4-0
4-1 Bragi Karl Bjarkason '67 , víti
17.07.2026  -  19:15
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Áhorfendur: 303
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson
4. Hlynur Sævar Jónsson
5. Orri Sveinn Segatta (f)
7. Máni Austmann Hilmarsson ('78)
9. Eyþór Aron Wöhler ('78)
14. Tumi Fannar Gunnarsson ('78)
17. Birkir Eyþórsson ('90)
20. Theodór Ingi Óskarsson ('80)
70. Guðmundur Tyrfingsson
77. Bjarki Steinsen Arnarsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
30. Kristófer Leví Sigtryggsson (m)
6. Guðfinnur Þór Leósson ('78)
8. Dagur Traustason ('78)
18. Nikulás Val Gunnarsson ('78)
19. Arnar Númi Gíslason
23. Aron Snær Guðbjörnsson ('90)
92. Kári Sigfússon ('80)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Arnór Gauti Brynjólfsson (Styrktarþj.)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson (MÞ)
Kristófer Sigurgeirsson (AÞ)
Ágúst Aron Gunnarsson (Liðsstj.)
Stefán Hafþór Stefánsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Bjarki Steinsen Arnarsson ('38)
Birkir Eyþórsson ('71)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta var sannfærandi! 4-1 Fylkissigur staðreynd. Hann hefði getað orðið stærri. Viðtöl og skýrsla væntanleg
95. mín
HÆTTA Aftur fer í Guy Smit í skógarhlaup en í þetta sinn nær hann ekki til boltans. Dagur Traustason er hins vegar of lengi að athafna sig og varnarmaður Njarðvíkur nær að komast inn í skot hans
93. mín
303 áhorfendur í kvöld
91. mín
Fimm mínútur í uppbót
90. mín
Inn:Aron Snær Guðbjörnsson (Fylkir) Út:Birkir Eyþórsson (Fylkir)
85. mín Gult spjald: Símon Logi Thasaphong (Njarðvík)
Sparkar Bjarka Steinsen niður
80. mín
Inn:Kári Sigfússon (Fylkir) Út:Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir)
79. mín
Oumar Diouck skýtur útaf í góðu færi
78. mín
Inn:Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir) Út:Tumi Fannar Gunnarsson (Fylkir)
78. mín
Inn:Dagur Traustason (Fylkir) Út:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
78. mín
Inn:Guðfinnur Þór Leósson (Fylkir) Út:Máni Austmann Hilmarsson (Fylkir)
71. mín Gult spjald: Birkir Eyþórsson (Fylkir)
68. mín
Inn:Haraldur Smári Ingason (Njarðvík) Út:Eiður Aron Sigurbjörnsson (Njarðvík)
68. mín
Inn:Sigurjón Már Markússon (Njarðvík) Út:Aron Einarsson (Njarðvík)
67. mín Mark úr víti!
Bragi Karl Bjarkason (Njarðvík)
Gott víti Sendir Ólaf í vitlaust horn, fast í vinstra hornið
66. mín
Njarðvík fær víti Theodór Ingi er klaufi. Omar Diouck er sloppinn í gegn en Theodór eltir hann uppi. Þeir eru báðir komnir inn í teig og Theodór er réttum megin við Omar en togar hann svo niður.

Fylkismenn ósáttir með dóminn
63. mín
Frábært spil hjá Fylki, nokkrir þríhyrningar í teig gestanna sem endar með skoti Guðmunds sem er varið
62. mín
Guy Smit! Langur bolti á Guðmund Tyrfings sem er sloppinn einn í gegn. Guy Smit sér hins vegar við honum
59. mín
Hröð sókn Fylkis endar með fínu skot frá Eyþóri Wöhler sem er þó varið
58. mín
Máni Austmann með fínt skot fyrir utan teig sem er varið
55. mín
Hörkuskot Orri Sveinn með boltann utarlega í teig eftir hornspyrnu Fylkis. Lætur vaða en aftur ver Guy Smit vel
54. mín
Dauðafæri Tumi sloppinn einn í gegn en Guy Smit ver vel frá honum
51. mín
Þetta var áhugavert Guy Smit fer í skógarhlaup og nær boltanum á undan Theodóri Inga. Hann ákveður síðan að reyna að skýla boltanum og missir hann frá sér í innkast. Fylkismenn reyna að taka það hratt en Smit og Theodór flækjast saman þegar Smit reynir að hlaupa tilbaka. Arnar flautar og Fylkismenn þurfa að taka innkastið aftur
47. mín
Fylkir skorar rangstöðumark Eyþór Wöhler með fyrirgjöf á Guðmund Tyrfings sem klárar vel á fjær. Þetta var tæpt
46. mín
Inn:Stefán Gísli Stefánsson (Njarðvík) Út:Arnar Helgi Magnússon (Njarðvík)
46. mín
Inn:Símon Logi Thasaphong (Njarðvík) Út:Leandro Fernandes (Njarðvík)
46. mín
Inn:Valdimar Jóhannsson (Njarðvík) Út:Björn Aron Björnsson (Njarðvík)
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Njarðvík gerir þrefalda breytingu í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Fjörugum fyrri hálfleik lokið. Fylkismenn búnir að leika á alls oddi og leiða með fjórum mörkum
43. mín MARK!
Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Stoðsending: Theodór Ingi Óskarsson
Fylkir að pakka Njarðvík saman Theodór með frábæra fyrirgjöf af hægri kantinum á Guðmund Tyrfings sem klárar færið af mikilli list.
40. mín MARK!
Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Stoðsending: Bjarki Steinsen Arnarsson
Þetta var skrautlegt Boltinn hrekkur til Bjarka inn í teig. Hann á fasta fyrirgjöf sem skoppar aðeins en fer þó beint á Guðmund á fjærstöng sem er nánast með allt markið fyrir framan sig. Hann hittir boltann illa og Guy Smit reynir að bjarga á línu, slær boltanum í Björn Aron og inn.

Spurning hvort Guy hafi náð að bjarga honum á línu og þá er þetta sjálfsmark, leyfum hins vegar Guðmundi að njóta vafans
38. mín Gult spjald: Bjarki Steinsen Arnarsson (Fylkir)
Rífur Oumar Diouck niður
37. mín
Bragi Karl með skot úr aukaspyrnu sem fer í vegginn en hrekkur aftur til hans. Viðstöðulaust skot hans fer svo beint á Ólaf í markinu
32. mín MARK!
Birkir Eyþórsson (Fylkir)
Stoðsending: Máni Austmann Hilmarsson
2-0!!!! Theodór Ingi með boltann á hægri kantinum og sendir út á Mána Austmann. Hann framlengir á Birki sem á skot rétt fyrir utan teig. Það fer af Arnleifi og inn
29. mín
Njarðvík fær sína fyrstu hornspyrnu
23. mín
Leikurinn hefur verið í jafnvægi eftir að Árbæingar komust yfir
18. mín
Theodór Ingi í fínu skotfæri fyrir utan teig. Skot hans fer yfir
12. mín MARK!
Birkir Eyþórsson (Fylkir)
Stoðsending: Máni Austmann Hilmarsson
Skemmtilegt mark Fylkir fær aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu. Tumi Fannar kemur með lúmska sendingu meðfram jörðinni á Mána Austmann sem fór í hlaupið á nærstöng. Hann kemur boltanum inn í pakkann og þar er Birkir Eyþórsson sem potar boltanum í netið.

Þetta var beint af æfingasvæðinu
9. mín Gult spjald: Oumar Diouck (Njarðvík)
Fálmar hendinni og fer í andlitið á Bjarka Steinsen
6. mín
Einn í gegn Bragi Karl er sloppinn einn í gegn. Það er stundum sagt að það sé verra að fá of mikinn tíma í færunum og á það við í þessu tilviki. Ólafur Kristóger étur Braga.
4. mín
Dauðafæri Guðmundur Tyrfings með frábæran bolta á Eyþór Wöhler. Skalli hans er hins vegar misheppnaður
3. mín
Njarðvík setur boltann í netið Bragi Karl með frábæran sprett upp að endalínu og sendir út. Alexander Helgi skorar af öryggi. Bragi Karl missti hins vegar boltann útaf í sprettinum og Fylkir fær markspyrnu
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið af stað Heimamenn byrja leikinn
Fyrir leik
Örlítil töf Aðstoðardómararnir standa við sitthvort markið. Það þarf væntanlega að laga netið
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, gerir eina breytingu á sínu liði frá 2-5 sigri gegn Vestra. Orri Sveinn Segatta kemur inn fyrir Guðfinn Þór Leósson.

David Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, gerir sömuleiðis eina breytinga frá leik síðasta leik. Bragi Karl Bjarkason kemur inn fyrir Símon Loga Thasaphong.
Fyrir leik
14. umferðin Í gær
Afturelding 3 - 2 Leiknir R. (Malbiksstöðin að Varmá)

Í dag
19:15 Fylkir-Njarðvík (tekk VÖLLURINN)

Á morgun
14:00 Grindavík-ÍR (Stakkavíkurvöllur)
14:00 Grótta-Ægir (Vivaldivöllurinn)
16:00 Þróttur R.-Völsungur (AVIS völlurinn)

Á mánudaginn
19:15 HK-Vestri (Kórinn)
Fyrir leik
Spáin Góðvinur Fótbolta.net, Balvin Már Borgarsson, spáir í 14. umferð Lengjudeildarinnar.

Fylkir 1 - 1 Njarðvík
„Hér mætast stálin stinn, þétt skák sem endar með jafntefli."

Fyrir leik
Vendingar í Njarðvík Félagsskiptaglugginn opnaði í gær og Njarðvíkingar eru búnir að sækja sér leikmann. Miðjumaðurinn ungi, Viktor Nói, mun leika með liðinu út tímabilið, en hann kemur á láni frá FH.
Þá rifti Guðmundur Magnússon samningi sínum við félagið og er genginn til leiks við Víking Ólafsvík.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fylkir Fylkir er í öðru sæti deildarinnar með 27 stig og í þéttum pakka á toppi deildarinnar. Fylkismenn mæta heitir til leiks, þeir hafa unnið fimm af síðustu sex leikjum í deild og bikar. Liðið fór til Ísafjarðar á mánudaginn og vann sannfærandi 5-2 sigur á Vestra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Njarðvík Njarðvík situr í 6. sæti deildarinnar með 20 stig. Stigasöfnunin gekk brösulega fyrri hluta móts en liðið hefur nú unnið tvo síðustu leiki. Síðasti leikur var vægast sagt áhugaverður, 5-4 sigur gegn Grindvíkingum, í leik þar sem tvo þétt og varnarsinnuð lið áttu að mætast.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Dómarateymið Arnar Ingi Ingvarsson er dómari leiksins og honum til aðstoðar eru Arnþór Helgi Gíslason og Mikael Ívan Axelsson. Dómaraeftirlitsmaður er Sigurður Hannesson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Lengjan kallar Góða kvöldið kæru lesendur og verið þið velkomnir í þráðbeina textalýsingu frá Tekk vellinum. Hér mun Fylkir taka á móti Njarðvík í 14. umferð Lengjudeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Guy Smit (m)
2. Felix Lima Santos
5. Arnar Helgi Magnússon ('46)
6. Arnleifur Hjörleifsson
7. Bragi Karl Bjarkason
8. Leandro Fernandes ('46)
9. Oumar Diouck
14. Aron Einarsson ('68)
18. Björn Aron Björnsson ('46)
21. Alexander Helgi Sigurðarson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson (f) ('68)
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
12. Daði Fannar Reinhardsson (m)
3. Sigurjón Már Markússon ('68)
10. Valdimar Jóhannsson ('46)
16. Hrafn Guðmundsson
17. Símon Logi Thasaphong ('46)
22. Stefán Gísli Stefánsson ('46)
26. Haraldur Smári Ingason ('68)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
N/A (Styrktarþj.)
Halldór Geir Heiðarsson (AÞ)
Jaizkibel Roa Argote (MÞ)

Gul spjöld:
Oumar Diouck ('9)
Símon Logi Thasaphong ('85)

Rauð spjöld: