Fotbolti.net
15.07.26 - 20:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gummi Magg riftir við Njarðvík og semur við Víking Ó. (Staðfest)

Gummi Magg riftir við Njarðvík og semur við Víking Ó. (Staðfest)
Canon

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Guðmundur Magnússon er genginn til liðs við Víking Ólafsvík en hann skrifar undir samning út tímabilið.

Guðmundur kemur til liðsins frá Njarðvík. Hann fór í Njarðvík fyrr á þessu ári eftir að hafa spilað á láni hjá Breiðabliki frá Fram. Hann kom við sögu í 13 leikjum fyrir Njarðvík í sumar en hann komst að samkomulagi við félagið um að rifta samningnum.
Hann snýr aftur til Víkings þar sem hann spilaði frá 2011-2013 og aftur sumarið 2019 þar sem hann skoraði fjögur mörk í átta leikjum í næst efstu deild.

Víkingur er í 7. sæti í 2. deild með 15 stig. Guðmundur fær leikheimild þegar félagaskiptaglugginn opnar á morgun. Næsti leikur liðsins er útileikur gegn Hvíta riddaranum á föstudaginn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.